29.04.1925
Neðri deild: 67. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2641 í B-deild Alþingistíðinda. (1703)

118. mál, herpinótaveiði

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg bjóst ekki við að tala í þessu máli, því að jeg hefi ekki vit á því. En hv. þm. Ak. (BL) sagði nokkur orð, sem valda því, að jeg stend upp. Jeg verð að mótmæla, að um nokkra ágengni af hálfu landbúnaðarins gegn sjávarútveginum sje eða hafi yfirleitt nokkurntíma verið að ræða í þeim viðreisnarmálum, sem hafin hafa verið fyrir hönd landbúnaðarins. Landbúnaðurinn hefir einmitt alstaðar verið olnbogabarnið.

En í máli því, sem hjer ræðir um, hefi jeg sannfærst um það af umræðum, að hagsmunir sjávarútvegsins sjeu meiri en hagsmunir einstakra manna í Skagafirði. Jeg hefi í raun og veru komist að sömu niðurstöðu og hv. þm. Ak. (BL) og tel skyldu mína að fylgja þeim, er sama leggja til, þótt jeg hefði meiri hneigð til þess að standa með bændunum.