02.04.1925
Neðri deild: 49. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2673 í B-deild Alþingistíðinda. (1737)
99. mál, innheimta gjalda af erlendum fiskiskipum
Þórarinn Jónsson:
Það er nú reyndar óþarfi að taka til máls, þar sem bæði hæstv. fjrh. og háttv. 2. þm. Rang. hafa gengið inn á till. fjvn. Háttv. 2. þm. Rang. sagði, að til 1922 hefðu allar tekjur af erlendum fiskiskipum runnið í ríkissjóð, uns hann feldi úrskurð sinn. En samkv. launalögunum áttu allar aukatekjur lögreglustjóra að falla úr sögunni um leið og launin voru hækkuð. Þótt lögin um innheimtu gjalda af erl. fiskiskipum kunni sökum klaufalegs orðalags að hafa gefið tilefni til úrskurðarins, þá er þetta þó aðalatriðið í málinu, og því er í sjálfu sjer skýlaust, hvernig bar að skilja lögin eftir anda þeirra. Hv. 2. þm. Rang. ljet og þá skoðun í ljós, að hann teldi ekki rjett, að gjöld þessi rynnu í vasa lögreglustjóra, og þar er jeg honum alveg sammála. Þó taldi hann hinsvegar nokkurn vafa á því, hvort rjett væri að svifta þá þessu gjaldi. Jeg veit, að þetta veltur nokkuð á nýrri lagasetningu og lögskýringu, en hana vil jeg strika út, svo þetta sje ekki lengur vafasamt. Það má vera, eftir þeim upplýsingum sem hjer hafa komið fram, að nefndin hafi sett hundraðsgjaldið fullhátt, því mjer skilst, að þessi innheimta hafi verið framkvæmd víða um land þannig, að lítið hafi verið fyrir henni haft, svo sem ummæli hv. þm. Barð. (HK) bentu til, er hann sagði, að gjaldið væri yfirleitt ekki innheimt annarsstaðar en í sýsluskrifstofunum. En þar sem svo lítið er fyrir þessu haft, er því minni ástæða til að óttast, að innheimtan falli niður, þó hundraðsgjaldið lækki, heldur verði hún framkvæmd jafnrækilega og áður. Það er aðeins þetta eitt, þegar hreppstjórar eiga í hlut, og sýslumenn semja ekki við þá um innheimtuna. Það getur verið í einstöku tilfellum kostnaðarauki fyrir hreppstjórana. En þó er það alveg ófyrirsynju, því þeim ber lögum samkvæmt að fá greiddan kostnað sinn hjá hlutaðeigandi embættismanni, og þurfa því ekki að ganga inn á neina samninga.
Allar þessar ástæður, sem jeg nú hefi talið, falla þá um sig sjálfar, og er þá ekki um að gera nema eina ástæðu til þess að þdm. vilji ekki ganga inn á till. fjvn., en hún er sú, að nefndin hafi gengið of langt í till. sínum.
Hv. þm. Barð. sagði, að það yrði að gæta þess, að lög þessi yrðu ekki brotin, og eins að hlaða ekki störfum á einstaka menn. Um fyrra atriðið vil jeg skírskota til fyrri umr. um málið, og ekki fara neitt frekar út í það. En hitt er ekkert nýstárlegt, enda eiga hjer embættismenn hlut að máli, sem ber skylda til að vinna þau störf, sem ríkið þarf að fela þeim. Það er alkunnugt, að á öllum sviðum hafa hlaðist aukin störf á ýmsa embættismenn, sýslunarmenn og stofnanir ríkisins, og er ástæðulaust að tala um slíkt. En lögreglustjórum landsins á ekki að vera vandara um að líta eftir innheimtu þessari eftirleiðis, þó þeir hafi sumir hverjir hirt gjaldið sjálfir langa hríð án þess að lög stæðu til. Jeg tel engan vafa á því, að till. á þskj. 218 verður samþykt.
Umr. frestað.