24.04.1925
Neðri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2699 í B-deild Alþingistíðinda. (1767)

116. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun

Fjármálaráðherra (JÞ):

Þetta frv. var borið fram af fjhn. Ed. eftir mínum tilmælum, og efni þess er ekkert annað en að framlengja óbreytt lög frá 4. júní 1924, um gengisskráning og gjaldeyrisverslun. En í þeim er svo ákveðið, að þau standi ekki nema til ársloka 1925.

Um ástæður fyrir framlengingunni hefi jeg ekki annað að segja en það, að tilhögun þessi hefir að mínum dómi reynst gagnleg, og jeg tel rjett, að þeirri skipun verði haldið fyrst um sinn.