06.05.1925
Neðri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2712 í B-deild Alþingistíðinda. (1776)
116. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun
Ágúst Flygenring:
Jeg vildi aðeins segja nokkur orð út af brtt. hv. meiri hl. fjhn.
Á síðasta þingi vakti einkum fyrir mönnum, að gengi ísl. krónunnar bæri að festa af varúð, með hliðsjón af fjárhagsástandi landsins, einkum gagnvart útlöndum og með tilliti til atvinnuvega landsmanna. Mörgum hefir þótt hækkun krónunnar of ör síðan í fyrra. Var þá svo til ætlast af hálfu flm. laganna um gengisskráningu og gjaldeyrisverslun, að hækkunin yrði ekki of ör og að fult tillit yrði tekið til kaupgjalds innanlands og verðs afurða vorra.
En þessum málum er varla hægt að skipa sæmilega, nema með þeirri þekkingu, sem atvinnuvegirnir einir geta látið í tje, þ. e. a. s. þeir menn, sem fulla þekkingu hafa á okkar atvinnulífi, og þá sjerstaklega á þessum tveimur aðalbjargræðisvegum þjóðarinnar. Undir því er velgengni þjóðarinnar komin, hvernig atvinnuvegunum, einkum landbúnaði og sjávarútvegi, reiðir af.
Jeg get nú ekki sjeð neina hættu í því fólgna, að þeir tveir menn, sem nú er hugsað að bæta við gengisnefndina, samkvæmt brtt. á þskj. 393, njóti jafnrjettis við þá, sem fyrir eru, einnig að því er skráningu gengisins snertir. Vitanlega má velja þessa menn svo, að trygging sje fyrir því, að þeir viti, hver ábyrgð hvílir á herðum þeirra, er þeir ákveða gengið.
Ef þetta ráð hefði verið upp tekið strax í fyrra, að fulltrúar landbúnaðar og sjávarútvegs ættu einnig sæti í nefndinni, þá hefði áreiðanlega af því hlotist, að gengishækkun krónunnar hefði orðið meira hægfára en raun varð á. Það er nú líka svo, að alt of hraðfara gengishækkun getur bakað stórtjón; af henni getur hlotist kyrstaða eða kreppa í atvinnulífi þjóðarinnar. Þeir, sem fást við atvinnurekstur, vita glegst, að þjóðarheildinni er stór hætta búin, ef gengishækkuninni er ekki stilt í hóf eftir föngum, eftir því sem við á.
Jeg mun nú eftir atvikum halda fast við frv. eins og það er nú, en ekki greiða atkv. með neinni brtt.
Þýðingarlaust er að deila um það, hvort fleiri eða færri eiga að taka þátt í gengisskráningunni, vegna þess að ef glompa verður gerð í því efni, þá verða atvinnuvegirnir að bera þann halla. En öll þjóðin bíður auðvitað tjón, þegar atvinnuvegirnir verða fyrir halla.
Jeg vona því, að hv. þdm. líti einkum á þetta mál frá þjóðhagslegu sjónarmiði, og þá munu þeir ekki kjósa að bæta öðrum við nefndina en fulltrúum aðalatvinnuveganna, sem fengju þá fullkominn atkvæðisrjett um gengisskráninguna á borð við aðra nefndarmenn.