06.05.1925
Neðri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2714 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)
116. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg skal leiða hjá mjer almennar aths. um mál þetta, nema sjerstakt tilefni gefist síðar. Jeg þarf heldur ekki að fara mörgum orðum um brtt. á þskj. 393, þar sem þær hafa yfirleitt fengið góðar undirtektir og hv. meiri hl. fjhn. hefir fallist á meginatriði aðaltill., enda þótt hann hafi að vísu borið fram við hana brtt. þess efnis, að fulltrúar atvinnuveganna, sem ráðgert er að bæta við gengisnefndina, hafi ekki atkvæðisrjett um sjálfa skráningu gengisins. Um þessa brtt. hv. meiri hl. hefi jeg fyrst og fremst það að segja, að ef af henni á að leiða, að haldið verði áfram á sömu braut og síðastl. ár með skráningu gengisins, þá verð jeg á móti því að svifta fulltrúa landbúnaðar og sjávarútvegs atkvæðisrjetti um þetta efni, þar sem tilgangi okkar flm. brtt. á þskj. 393 verður þá ekki náð. Hinsvegar þarf ef till vill ekki að óttast þetta, og þess vegna vil jeg heyra, hvernig hv. fjhn. tekur aths., sem jeg vil láta fylgja brtt. hennar. Ef hún felst á þær aths., þá gerir í rauninni ekkert til, þó að fulltrúar atvinnuveganna hafi ekki atkvæðisrjett um gengisskráninguna, vegna þess að það er rjett, sem hv. meiri hl. segir, að þær stofnanir, sem velja eiga mennina, hafa ekki aðstöðu til að kaupa erlendan gjaldeyri. En ef menn vilja annars fara nákvæmlega út í þá sálma, þá á fulltrúi landsstjórnarinnar í nefndinni að rjettu lagi ekki heldur að hafa atkvæðisrjett um skráninguna, þar sem stjórnin a. m. k. selur engan erlendan gjaldeyri. En þar sem hann hefir nú atkvæðisrjett, þá getur ekki verið um mikið „princip“-brot að ræða, þó að fulltrúar atvinnuveganna fái einnig atkvæðisrjett.
Ef frv. verður nú samþykt með brtt. á þskj. 393, þá lít jeg svo á, að í þeirri samþykt sje fólgin yfirlýsing Alþingis um, að nefndarmönnum í gengisnefndinni skuli fjölgað fyrst og fremst í þeim tilgangi, að nefndin skuli rannsaka, hvort rjett sje að festa gengi ísl. krónunnar og með hverjum ráðum það sje hentugast. Þetta verður aðalverkefni nefndarinnar fram að næsta þingi, sem þá mun skera úr þessum atriðum. En fram að þeim tíma skal nefndin hafa að baki sjer þingvilja um að hækka ekki, eða a. m. k mjög varlega, gengi krónunnar.
Að vísu hafa fulltrúar atvinnuveganna ekki atkvæðisrjett um sjálfa skráningu gengisins, ef brtt. hv. meiri hl. nær samþykki, en þeir hafa eigi að síður aðstöðu til að fylgjast með öllu, sem gerist í nefndinni. Geta þeir því snúið sjer til stjórnarinnar og leitað fulltingis hennar, ef þeim virðist gengið vera hækkað of ört, ekki síst þar sem þeir hafa að baki sjer þingvilja, sem segir, að gengi skuli varlega, hækkað, eða e. t. v. fest áður en langt um líður.
Verði frv. afgreitt þannig, að brtt. á þskj. 393 verði samþykt, lít jeg ennfremur á það sem yfirlýsingu Alþingis um, að íslenska ríkið sje tilbúið til að kaupa útlenda gjaldeyrinn til afborgunar á vöxtum og skuldum með því gengi, sem gengisnefndin ákveður, og að það sje haft fyrir augum, að krónan hækki ekki um of.
Þetta yrði mikil trygging fyrir bankana, því þeir mega þá vera vissir um, að genginu muni vera haldið í festu samkvæmt vilja Alþingis. Því skoða jeg, að Alþingi með því að samþykkja þessar brtt. gefi þá yfirlýsing, að það vilji veita bönkunum stuðning í þessu máli.
Að síðustu lít jeg svo á, og það með fullum rjetti, því jeg hefi átt tal um það við þann mann úr Landsbankastjórninni, sem sæti á í gengisnefndinni, að Landsbankinn hafi skilið það svo á síðastliðnu ári, að það væri vilji Alþingis, að krónan hækkaði sem mest, enda bendir orðalag laganna í þessa átt. Þess vegna taldi Landsbankinn það árið sem leið skyldu sína að stuðla að því að krónan hækkaði. En ef málið verður nú afgreitt á þeim grundvelli, sem við flm. brtt. á þskj. 393 viljum, þá lít jeg svo á, að sá þingvilji sje nú ekki lengur til, sem fyrir lá um það, að krónan hækki, heldur að nú skuli genginu haldið föstu, og að bankarnir verði því hjer eftir að telja það skyldu sína að halda genginu föstu. Þess vegna er það, ef hv. fjhn. getur fallist á það, sem jeg nú hefi sagt, og málið verður afgreitt á þennan hátt, þá finst mjer ekki mikil hætta stafa af því, þótt fulltrúar útvegsins og landbúnaðarins missi atkvæðisrjett í gengisnefndinni. En ef skoðun mín í þessu efni mætir sterkum mótmælum, og það að málið verði þannig afgreitt, þá mun jeg greiða atkv. á móti till. hv. fjhn., því jeg get ekki fallist á annað en að atvinnurekendurnir fái tryggan grundvöll til þess að standa á, að þeir viti, að ekki þurfi að óttast stórkostlega hækkun krónunnar, þegar líður á sumarið, því slík hækkun er að mínu viti stærsta hættan fyrir þá.
Jeg get rjett minst á till. hv. 2. þm. Reykv. (JBald) um að bæta enn mönnum í nefndina, sem sje fulllrúa frá Alþýðusambandinu og öðrum frá Verslunarráðinu. Jeg er á móti því. Tilætlun okkar er sú að genginu sje haldið föstu, og af því getur hvorki verkamönnum, kaupmönnum, embættismönnum nje neinum staðið nein hætta: þeir geta aðeins beðið tjón, ef krónan lækkar. Þess vegna er þeim engin þörf á því að fá fulltrúa í nefndina. Atvinnurekendurnir eru þeir, sem mest hafa beðið tjón undanfarið af hækkun krónunnar, og því eiga þeir fyrst og fremst tilkall til þess og rjett á að fá að hafa fulltrúa í nefndinni.