06.05.1925
Neðri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2730 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)

116. mál, gengisskráning og gjaldeyrisverslun

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg heyri það á hv. flm. brtt. á þskj. 393, að þeir eru ekki ánægðir með álit og till. fjhn. Jeg skal

nú ekki taka fram fyrir hendur hv. frsm. nefndarinnar, en vil aðeins skýra mína afstöðu til málsins.

Jeg skal þá fyrst viðurkenna það, að atvinnurekendur horfa með ótta fram á það, að gengi krónunnar hækki ört. Nú er það öllum vitanlegt, að kaupgjald hefir hækkað frá því í fyrra um 10%, og alt að 18% í sumum tilfellum, og þar við bætist, að sumar útlendar vörur til útgerðar hafa hækkað mikið í verði. Þess vegna er það ekki að undra, þótt atvinnurekendur sjeu kvíðafullir.

Sú ráðstöfun, sem gert er ráð fyrir á þskj. 393, getur ekki komið í veg fyrir það, að krónan hækki, enda tel jeg, að ekki beri að hefta hægfara hækkun gengisins.

Ef bankarnir eiga að fara með gjaldeyrisverslunina, hljóta þeir að hafa mest áhrif á það, hvert gengi er skráð, nema því aðeins, að ríkisvaldið geri einhverjar sjerstakar ráðstafanir í þeim efnum, og verður það þá vitanlega að leggja fje til þess að þær ráðstafanir komist. til framkvæmda.

Okkur nefndarmönnum fanst sjálfsagt, að seljendur gjaldeyris, sem hafa orðið fyrir þyngstum búsifjum af hækkun krónunnar, fái menn í nefndina, er geti gefið allar upplýsingar um það, hvernig horfi við í það og það skifti, og hafi það verksvið að halda í, fremur en örva hækkun krónunnar.

Það er nú svo, að bankarnir hafa sömu hagsmuni og seljendur gjaldeyris, að þeim er óhagur í því, að gengið hækki. Bankarnir hljóta að tapa á hækkandi gengi, og væri eðlilegt, að þeir yrðu fyrir halla við hækkunina, þar sem vextir eru háir og þegar þess er gætt, að þeir starfa mest með innlent fje. Bankarnir verða að vera öryggisventillinn í þessu máli, og þar sem ríkisvaldið gerir ekki sjerstakar ráðstafanir, þá eru það þeir sem eiga að hafa skrániuguna á hendi.

Þetta eru þær ástæður, sem vöktu fyrir mjer og flestum nefndarmönnum. Jeg sje enga ástæðu til þess að taka fleiri óatkvæðisbæra menn inn í gjaldeyrisnefndina. Eins og nál. ber með sjer kom það til athugunar, hvort rjett mundi að stýfa krónuna eða lækka gullgildi hennar frá því, sem það á að vera. Jeg hygg, að enginn mundi nú vilja setja gullgengi við 70%, hvað þá lægra. Stýfing krónunnar er ekki eins auðvelt mál eins og sumir hv. þdm., sjerstaklega þm. Str., ætla.