20.02.1925
Neðri deild: 12. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2769 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)

50. mál, tollalög

Jakob Möller:

Jeg verð að segja, að mjer hefði fundist að frv. þetta hefði fremur átt að kenna við afnám einkasölunnar en við breytingar á tolllögunum. Og sannfærður er jeg um, að það, sem úrslitum ræður í þessu máli, verður fyrst og fremst það, hvort menn „principielt“ vilja hafa einkasölu eða ekki. En það gerir málið aðeins flóknara að fara að blanda óskyldum efnum inn í það.

Þegar um er að ræða að afla ríkissjóði tekna, verður jafnan að líta á það, hversu langt sje fært að ganga í því að leggja toll á hverja vörutegund. En fram hjá þessu gengur frv. algerlega; í því er hugsað eingöngu um að ná ákveðinni upphæð með tollinum.

Þetta gildir auðvitað jafnt hvort sem rætt er um að leggja toll á eða ná tekjum með einkasölu. Og jafnóskynsamlegt er að íþyngja mönnum um of með tollum sem með einkasölu. Einnig verður þess að gæta, að manna verði ekki með of háum vörutollum freistað til tollsvika, og eins hins, að kaupgetu neytendanna verði ekki ofboðið. Áhrif þess að ganga of langt í þessu efni hefir einkasalan sýnt og sannað. Þó miðað sje við innflutning síðasta árs, þá kemur það þó greinilega í ljós, að hann hefir minkað mjög frá því, sem áður var. Og þó ekki sje sagt, að fylt hafi verið upp í skarðið með ólöglegum innflutningi. þá hefir ríkissjóður að minsta kosti ekki fengið eins miklar tekjur af versluninni og til var ætlast.

Einkasalan hefir líka þá ókosti í viðskiftum, sem maður veit, að hafa haft þær afleiðingar, að margir landshlutar hafa löngum verið tóbakslausir. Það er fjarri rjettu, sem háttv. 2. þm. Rang. (KlJ) sagði, að menn hefðu haft greiðan aðgang að tóbakinu. Það stafar sjálfsagt að nokkru leyti af því, hvað álagningin er há; það kostar svo mikið fje að birgja sig upp með þessa vörutegund. Sá ókostur mundi líka fylgja háum tolli; smákaupmenn standast ekki við að snara út svo hárri upphæð í tolli löngu áður en varan er seld.

Jeg hefði kosið helst, að þetta tvent væri algerlega aðskilið; frv. Um afnám einkasölu borið fram sjerstaklega, og í öðru lagi tekið til athugunar, hvernig bæta skuli ríkissjóði tekjumissinn. Þannig bar jeg málið fram á síðasta þingi, og jeg er jafnsannfærður um nú, að það er rjetta aðferðin. Hefði það vitanlega eins nú átt að koma til kasta þeirrar nefndar, sem fjallar um þau mál, hvernig afla ætti ríkissjóði tekna í þetta skarð. Þetta mál mun að líkindum koma til nefndar, sem jeg á sæti í, og get jeg haft tækifæri til að hafa öll afskifti af því þar, og þarf því litlu við að bæta nú. Þó vil jeg benda á það, út af því, sem sagt er um tekjur, sem ríkissjóður hefir haft af einkasölunni, að ekki óverulegum pósti er algerlega slept, sem er tekjurýrnun orsökuð af bundnu fje í einkasölunni. Væri hætt að starfrækja hana, losnaði svo og svo mikið fje fyrir ríkissjóðinn, sem hann nú fær ekki vexti af. Varasjóður landsverslunar er nú 1 milj. 700 þús. kr., sem mun gefa 100—150 þús. kr. í vexti. Menn geta gert hvort sem þeir vilja, dregið þetta frá tekjum af versluninni eða fært til tekna ríkissjóðs, þegar gera skal upp, hvernig afla skuli tekna í staðinn. Vegna þessa atriðis er gróðinn af versluninni hvergi nærri eins glæsilegur og menn láta í veðri vaka. Að öðru leyti vil jeg ekki blanda mjer inn í deilur um þetta mál, og í sjálfu sjer er rjettara að ræða málið frekar við síðari umr. Þessi umr. á aðallega við „princip“-hlið málsins, því að þótt talað sje um að breyta tolllögunum, er þó aðalefni frv. að leggja niður einkasöluna.