21.02.1925
Neðri deild: 13. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2805 í B-deild Alþingistíðinda. (1814)

50. mál, tollalög

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg stóð einungis upp til að mótmæla einu atriði í ræðu háttv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), sem mjer fanst svo mikil fjarstæða, að ekki má standa ómótmælt. Hann sagði, að með þessu frv. væri verslunarstjettin að heimta einn tekjustofn ríkissjóðs yfir í sínar hendur. Þetta nær engri átt. Frv. er fram komið í þeirri mynd, að vera fyrst og fremst tollaukafrv., og þannig frá því gengið að hvorttveggja fylgist að, niðurlagning einkasölunnar og hækkun tollsins. Eins og jeg gerði grein fyrir í fyrri ræðu minni, er það nokkurt álitamál, hvort í frv., eins og það er yfir höfuð, felist nokkur skerðing á tekjum ríkissjóðs. Að minsta kosti munar það heldur litlu, og má slíkt vel komast til leiðrjettingar í nefnd, ef ástæða þykir.

Úr því að jeg er staðinn upp, vil jeg segja það út af ummælum hv. þm. (ÁÁ), að jeg var hvorki að afsaka eða ásaka tóbakseinkasölu í öðrum ríkjum; slíkt kom mjer ekki til hugar. Jeg skýrði aðeins frá þessu eins og hverri annari staðreynd um slík fyrirtæki annarsstaðar. Þar er þetta fremur iðnaður heldur en verslunarfyrirtæki.

Hv. þm. (ÁÁ) taldi, að jeg gengi nauðugur til þessa leiks. Frv. hefi jeg ekki borið fram, en aðeins lýst mínu áliti gagnvart þeirri hlið, sem veit að ríkissjóði. Og jeg get ekki annað en látið mjer í ljettu rúmi liggja, að því er snertir tekjur ríkissjóðs, hvort frv. gengur fram eins og það er nú, eða núverandi ástand helst. Það munar aldrei miklu á hvorugan bóginn. Út af ýmsum ummælum, sem fallið hafa, er rjett að geta þess, að eftir öllum þeim tölum, sem hægt er að festa hendur á, er yfir höfuð ekki hægt að sanna að ríkiseinkasalan á tóbaki hafi fært ríkissjóði beinan tekjuauka. Tökum við til dæmis innflutning á tímabilinu frá 1914—1921 og leggjum núverandi tollgjald á þann innflutning, gera tolltekjurnar að meðaltali á ári kr. 7,30 á hvert mannsbarn í landinu. Taki maður svo tekjur af einkasölunni þau 3 ár, sem hún hefir staðið, og reikni eins og í fyrra dæminu eftir þeirri tollhæð, sem nú er, fáum við kannske kr. 7,40 á hvert mannsbarn í landinu. Jeg verð að segja það, að þeir menn, sem halda því fram, að sá tilgangur að útvega tekjuauka með einkasölunni hafi ekki náðst, hafa sterkt vopn í höndum, þar sem slíkar tölur eru. En munurinn er svo lítill, að ekki er hægt að staðhæfa, að orðið hefði á annan veg að öllu óbreyttu. Það, sem auðsjeð er að tóbakseinkasalan hefir leitt af sjer, og verður ekki um deilt, er minkun á tóbaksinnflutningi. Ríkissjóður hefir haft sömu tekjur af minna tóbaksmagni heldur en áður þurfti. Ekki verður heldur deilt um það, að einkasalan hækkaði tóbaksverðið. Það nær engri átt að halda fram, að önnur eins álagning á tóbakið og einkasalan hefir framkvæmt samkvæmt lögum, hefði verið viðhöfð í frjálsri verslun. (MT: Jú, jú!). Jeg skal þá leyfa mjer að benda á stórt verslunarfyrirtæki, S. Í. S., sem kaupir tóbak af landsverslun og selur kaupfjelögum. Heldur hv. þm. — sem er vel kunnugur S. Í. S. — að það mundi framkvæma sömu álagningu og landsverslun, ef það keypti tóbakið beint frá verksmiðjum. Það nær ekki nokkurri átt.

Það, sem þá getur verið álitamál, er það, hvort menn vilja halda áfram að stefna að minkun tóbaksinnflutningsins. Virtist mjer háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) gjarnan óska þess, og var hann jafnvel að minna á þá möguleika, að tóbakseinkasalan tæki alveg fyrir tóbaksinnflutning með tímanum. Að svo stöddu gæti jeg ekki óskað slíks, vegna ríkissjóðsins; ekki veitir honum af þessum tekjum. Það er erfitt að segja um afleiðingar breytingarinnar, sem stungið er upp á nú, því að maður hefir ekki reynsluna til að taka tölur eftir og byggja áætlanir á. Jeg hefi að gamni mínu reiknað út, hvað þessar tolltekjur, sem stungið er upp á í frv., myndu gera mikla upphæð á mann eftir meðalinnflutningi þriggja síðustu. ára, og koma þá kr. 6,68 á hvern mann í landinu. Miðað við meðalinnflutning áður en einkasalan komst á, verða tolltekjurnar kr. 9,76 á mann eftir frv. Jeg held, að hvernig sem menn velta tölum þessum fyrir sjer, sje ómögulegt annað en álíta það hreinustu fjarstæðu, að verið sje að heimta tekjustofn ríkissjóðs öðrum til handa.

Það, sem hv. þm. (ÁÁ) sagði um framsókn og íhald, skal jeg að mestu leiða hjá mjer. En það gat ekki annað en glatt mig að heyra þann skilning hjá hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), að það eru íhaldsflokkarnir, bæði hjer og annarsstaðar, sem hafa tekið að sjer verkefnin, sem framsóknarflokkarnir höfðu á öldinni sem leið. Það er laukrjett. Það er mentun og þekking hv. þm., sem kom honum til að segja þennan sannleika. Íhaldsflokkarnir hjer og annarsstaðar berjast fyrir að viðhalda því þjóðfjelagsfrelsi og persónufrelsi innan þjóðfjelagsins, sem framsóknarmenn 19. aldar áunnu þjóðunum til handa með langri og strangri baráttu.

Hv. 1. þm. Árn. (MT) gat þess, að jeg hefði lýst eftir lögum um tóbaksiðnað. Jeg geri það ekki, nema svo fari, að núverandi fyrirkomulag tóbakseinkasölunnar haldi áfram. Þá verður að taka löggjöfina um tóbaksiðnað til endurskoðunar. Í lögunum frá 1919 er miðað við frjálsa verslun, og verði hún innleidd aftur, þarf ekki nýja löggjöf um þetta efni.