21.02.1925
Neðri deild: 13. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2820 í B-deild Alþingistíðinda. (1821)

50. mál, tollalög

Jakob Möller:

Það er verið að kenna einkasölustefnuna við framsóknarflokkana, en jeg sje ekki betur en að það sje herfileg misþyrming á rjettri hugsun í þessu máli. Sannleikurinn er sá, að það er óþarfi að leita langt aftur í tímann til að komast að raun um það, að alstaðar eru það íhaldsflokkarnir, sem barist hafa fyrir einkasölunni og komið henni á. Svo hefir það reynst í Svíþjóð, Frakklandi, Austurríki og annarsstaðar þar, sem þessi stefna hefir verið tekin upp. Það er þess vegna auðsætt, að það er okkar Framsóknarflokkur, sem er að taka upp stefnu íhaldsflokkanna. En hvers vegna er það, að íhaldið hefir tekið til þessara ráða? Auðvitað til þess eins að koma mönnum undan því að greiða beina skatta af gróðafje, sem þeir annars yrðu að gjalda. Jeg verð því fyrir hönd framsóknarflokkanna á öllum tímum, liðnum og óliðnum, að mótmæla því, að þeim sje borin einkasölustefnan á brýn. Hún hefir aldrei verið og mun ekki verða borin uppi af þeim.

Um ágæti einkasölunnar yfirleitt þarf ekki að ræða. Hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) talaði um hina miklu tolla, sem væru á tóbaksvörum í Englandi. En þó munu þær vera þar síst dýrari en t. d. í Frakklandi, en tekjurnar þar minni.

Hv. þm. V.-Ísf. talaði að lokum um það, að þeir, sem væru móti einkasölunni, legðust um leið gegn hagsmunum þjóðar innar. Nú er það svo, að það sýnir sig, að löglegur innflutningur á tóbaki minkar við einkasöluna, — en ætli mikill vafi sje á því, að þegar sje farið að flytja inn í landið tollsviknar tóbaksvörur? Efalaust eykst sá innflutningur jöfnum höndum eftir því sem landsverslunin starfar lengur. Það er sá munur á okkur og öðrum þjóðum, að þær hafa margfalt meiri kraft og betri aðstæður til að verjast smyglun.

Þá kemur það alls ekki þessu máli við, sem hv. þm. (ÁÁ) var að tala um, að grípa fram í fyrir kaupmönnum til að skapa rjettlátt verð. Tilgangur einkasölunnar er alls ekki sá, að halda okurverði niðri, heldur aðeins að afla landinu tekna. En því verður ekki á móti mælt, að mjög óheppilegt er að gera þannig einstakar vörutegundir að tekjustofnum fyrir ríkissjóðinn, ekki síst með hliðsjón af því, að með mjög háum tolli verður altaf mikið gert til þess að fara í kringum lögin. Auk þessa kemur þessi skattur jafnt niður á alla, án tillits til efna. Þá er það engu að síður fullkominn misskilningur að halda því fram, að þetta komi ekki verslunarfrelsinu við. Það er fyrirsláttur þeirra manna, sem reyna að fara í kringum sína eigin stefnu, af því þeir þora ekki að fylgja henni fram, þegar á hólminn er komið. Það er hvorttveggja, að einkasölustefnan er brot á rjetti einstaklinganna til að reka verslun og sömuleiðis brot á móti hagsmunum almennings, sem íþyngt er með þessu. Þetta er því í eðli sínu algerlega andstætt stefnu framsóknarflokkanna, en hinsvegar í fullu samræmi við stefnu allra íhaldsflokka. Okkar íhaldsflokkur hefir brugðist öðruvísi við, og virði jeg hann fyrir það.