24.02.1925
Neðri deild: 15. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2827 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)

50. mál, tollalög

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg hafði ekki hugsað mjer upphaflega að taka til máls. Bjóst satt að segja ekki við, að mál þetta myndi taka svo langan tíma við 1. umr. sem raun er á orðin. Og jeg gerði heldur ekki ráð fyrir, að hjer mundu koma fram ýms af þeim ummælum, sem hjer hafa fallið. Hinsvegar finst mjer mál þetta mikilsvert, og er því rjett að gera nokkra grein fyrir atkvæði sínu, og ekki síst vegna þess, með hvaða forsendum það er flutt hjer. Virðist svo standa nú með þetta mál eins og þegar það var upphaflega flutt 1921, því það er fyrst og fremst fjárhagsatriði fyrir landið, hvernig um það fer. Þær röksemdir, sem færðar voru fram, þegar mál þetta var fyrst flutt, voru aðallega þær, að með þessu móti mætti afla landinu tekna án þess að íþyngja almenningi og án þess að ríkissjóði gæti áskotnast slíkar tekjur af þessari vörutegund á annan jafnauðveldan hátt. Gert var ráð fyrir, að þessi tekjustofn mundi í bestu tilfellum gefa 200 þús. kr. á ári. Reyndar kom mönnum ekki saman um þetta; aðrir spáðu talsvert lægri tekjum. Hinar verri spár heyrðust aðallega frá þeirri stjett, sem glegst átti að vita deili á þessu máli, verslunarstjettinni. Með þessari breytingu (að landið tæki tóbakssöluna í sínar hendur) gerðu kaupmenn jafnvel ráð fyrir, að tekjurnar kynnu að hrökkva niður í 90 þús. kr. á ári. Og ekki var laust við, að gefið væri í skyn, að þannig gæti farið, að tóbaksverslun landsins gæfi hreint engar tekjur. Nú hafa menn reynsluna, þó að hún sje ekki löng, og hefir hún orðið mjög á annan veg en spárnar. Á síðasta ári hafa tekjurnar orðið 350 þús. kr., auk 35 þús. kr., er lagðar voru í varasjóð verslunarinnar. Á áfengis- og tóbaksverslun var gert ráð fyrir 1921 ½ milj. kr. tekjum. Þær námu 1924 um 800 þús. kr. Þetta þykir mjer glæsileg reynsla, það sem hún nær; og frá þessu sjónarmiði hafa hv. flm. ekki ástæðu til að afnema einkasöluna. Til þess verða því að liggja aðrar ástæður; en jeg verð að segja, að engar slíkar ástæður hafa komið fram, er rjettlætt geti það að afnema tóbakseinkasöluna. Tekjuþörf landsins er síst minni nú en þegar einkasölunni var komið á. Það atriði, sem virðist koma fram beint og óbeint um þetta mál og vera höfuðatriðið hjá hv. flm., er að verslunarstjettin eigi að annast um sölu á þessari vöru eins og öðrum og bæta beri úr tekjumissi ríkissjóðs með hækkuðum tolli. Þegar litið er á fjárhag ríkisins 1921 og hvernig hann er nú, þá er síst ástæða til að grípa til þessara ráða, sjerstaklega þar sem rök hv. flm. svífa mjög í lausu lofti. Eftir útreikningi þeirra hlýtur ríkið að tapa minst 100 þús. kr., og vitanlega getur það orðið miklu meira. Langtum líklegra, að landið verði fyrir stórkostlegum tekjumissi, nái þessi breyting fram að ganga. Hæstv. fjrh. gat þess í fjárlagaræðu sinni hjer um daginn, að sín stefna væri sú, að borga allar lausaskuldir ríkisins á 3—4 árum, sem nema um 4 milj. kr. Mjer líkar þetta vel. Þeim, sem annars hafa kynt sjer nokkuð fjárreiður ríkissjóðs, hlýtur að vera það ljóst, hversu brýn þörf er að grynna eitthvað á skuldunum. En jafnframt sem það á að gerast, liggur það í augum uppi, að ekki má rýra þá tekjustofna, sem ríkið hefir nú. Til þess að það sje gert, þurfa að vera þær brýnu ástæður, að ekki verði umflúið.

Jeg býst við því, að ef þessi breyting nær fram að ganga, muni tollhækkun tóbaks, miðað við innflutninginn 1924, nema 180 þús. kr. Jeg hirði ekki að nefna smátölur, þær skifta litlu í þessu sambandi. Reyndist nú rjett spá hv. flm., að þegar tóbaksverslunin kæmist í hendur einstaklinga, myndi innflutningur aukast a. m. k. um 10%. Þá ætti þessi tollauki að nema 270 þús. kr. Jeg geri ráð fyrir, að þó að kaupmenn fengju þessa vöru til meðferðar. og fengju að haga sjer með öflun og sölu eftir því, sem þeim best hentaði, þá mundi verð hækka sem næst því, sem tollhækkuninni nemur. Jeg held þeim sjeu ekki gerðar getsakir með þessu. Þessi aukni skattur legst á neytendur tóbaksins, og er það álitleg upphæð. Jeg get búist við, að ýmsir kaupmenn leggi meira á vöruna einmitt vegna tollhækkunarinnar. Því að þeir eiga það á hættu með þessa vöru eins og aðrar að hún rýrni — og hafa hv. flm. gert töluvert úr því —, eða þeir verði fyrir tjóni og vanskilum. Þeir þurfa að gera fyrir öllu. En því meira fje, sem þeir greiða fyrirfram í tolli, því meiri ástæða til að leggja meira á vöruna, svo að þeir beri ekki skarðan hlut frá borði. Jeg hygg alveg óhætt að gera ráð fyrir, að tollhækkun lendi öll á neytendum, og sennilega meira en því nemur. En færi nú svo, að þingið fjellist ekki á þessa tollhækkun og núverandi tollgjald til ríkissjóðs væri látið halda sjer, en afnám einkasölunnar samþykt, þá mun ríkið missa eitthvað um 350 þús. kr. á ári, auk þess, sem lagt er í varasjóð landsverslunar, eftir innflutningi síðasta árs að dæma. Getur þetta vitanlega orðið meira eða eitthvað minna, en reynslan, sem fengin er, sýnir, að tekjurnar hafa aukist ár frá ári. Virðist ekki ástæðulaust að benda á, að ríkið má ekki eigi á hættu að tapa þessum tekjum. Og þær ástæður, sem færðar eru fram með breytingunni, eru svo veigalitlar, að þegar litið er til fjárhags ríkissjóðs, þá er ekki lítandi á þær.

Mjer hefir virst hæstv. stjórn vilja leggja á það ríka áherslu, að sem mest næðist í ríkissjóð. Í því skyni hafa komið fram frv. þess eðlis, að gjöldum er ljett af ríkissjóði og varpað yfir á almenning. Skal jeg í því sambandi nefna sjúkratrygginguna. — frv., sem gerir ráð fyrir, að almenningur greiði sem næst 335 þús. kr. á ári. Sóknargjaldafrv. mundi færa 80 þús. kr. á ári af ríkissjóði og yfir á herðar almennings. Breytingin á launakjörum kennara mun nema 160 þús. kr., sömuleiðis ljett af ríkissjóði.

Þessar upphæðir eru þess eðlis, að ekki verður hjá því komist að greiða. Þetta nemur samtals 575 þús. kr. Færi svo, að frv. yrði samþykt eins og það er úr garði gert, bætast hjer við 180 þús. kr. Þá er þetta orðið 755 þús. kr.

Aukist nú innflutningur tóbaks, svo sem hv. flm. gera ráð fyrir, nemur upphæðin nálega 850 þús. kr. Skatturinn, sem með þessu frv. er ætlast til að lagður verði á almenning, nemur sem næst 9 kr. á hvert mannsbarn á landinu.

Eins og menn muna, voru á síðasta þingi samþykt verðtollslög og gengisviðaukalög, og samkv. yfirliti hæstv. fjrh. nema þeir tollar síðastl. ár l½ milj. kr. Það er rjett að nefna þetta, þegar verið er að gera upp fjárskifti ríkissjóðs við einstaklingana. Nemur þessi upphæð þá til samans eitthvað um 2 milj. og 300 þús. kr. Það verður sem næst 24 kr. á hvert mannsbarn á landinu. Þetta er svo mikil aukning á sköttum, að jeg bjóst alls ekki við frv. frá neinum hv. þm., sem leiða lengra inn á þessa braut. Og síst mætti búast við, að í flokki hæstv. stjórnar sje gerður leikur að því að rýra tekjur ríkissjóðs að allverulegum mun.

Jeg get þegar lýst því yfir hvað snertir sjálfan mig, að mjer virðast ástæðurnar fyrir breytingunni svo veigalitlar, að jeg get ekki ljeð atkv. mitt til að koma á þessari tollhækkun.

Hv. flm. þessa frv. hafa haldið fram. að sú rýrnun, sem orðið hefir á innflutningi þessarar vöru, muni að sumu leyti stafa af því, að tóbaki sje smyglað inn. En sje svo, að nú sje tóbak óleyfilega inn flutt sem verulegu nemur, — hversu miklu meiri hætta verður þá á því, þegar margir verða innflytjendur og varan ómerkt flutt inn í landið.

Auðkenningin á tóbakinu, sem gert er ráð fyrir í frv., myndi vart verða kostnaðarlaus, og myndi sá kostnaður að sjálfsögðu rýra þær tekjur, sem hv. flm. gera ráð fyrir, að af tollhækkuninni leiði. Og jeg tel ekki óviðeigandi að benda á það, að því hærri sem tollur er, því ríkari hvöt er til að flytja tóbak óleyfilega inn í landið, enda viðurkent af ýmsum. Í þessu sambandi vil jeg skírskota til ummæla sjerfróðs manns, sem mikið hefir við kaupsýslu fengist. Geri jeg ráð fyrir, að menn leggi fult svo mikið upp úr þeim og þó jeg eða aðrir ósjerfróðir menn færum að spá. Þessi ummæli eru að finna í B-deild Alþt. 1917, bls. 1264—5. Skal jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa þar fáein orð:

„Þá er lagt til, að tóbakstollur hækki upp í 3 kr. Það mætti ef til vill takast. En þó er jeg ragur við það, þar sem hjer vantar tollgæslu. Tóbak má fela í allskonar umbúðum og innan um aðrar vörur, og freistingin er því meiri sem tollurinn er hærri. Er þó öllum vitanlegt, að þegar hafa komist upp allstórfeld tollsvik á þessari vöru. En tolllöggjöf verður að stefna að því, að menn hafi sem minsta hvöt til að reyna að koma sjer hjá tollgreiðslu. Þess vegna er hjer, í tollgæslulausu landi, ráðlegast að leggja toll á sem flestar vörutegundir, en ekki of háan. Á vindlingunum munar litlu, en gæti þó leitt til hins sama.“

Jeg býst við, að þetta sje rjett athugað. Þá var tollurinn 2—4 kr. á kg. Hversu miklu meiri hætta á tollsvikum, þegar búið er meira en að tvöfalda tollinn frá því.

Vörugæðin hygg jeg, að ekki sjeu ver trygð í höndum ríkisins heldur en eiga þau undir vali kaupmanna. Jeg get ekki dæmt um gæði tóbaks, því að jeg neyti þess ekki, en margir tóbaksneytendur hafa sagt mjer, að þeir fái jafnbetra tóbak nú en áður, sem oft var mjög slæmt. Og víst er um það, að mest af þeim birgðum, sem landsverslun tók við af kaupmönnum. var mjög ljelegt.

Þá vil jeg víkja að því atriði, sem ýmsir telja kost við breytinguna, sem sje það, að tóbaksinnflutningur muni aukast við að salan kemst í hendur kaupmanna. Jeg verð að telja slíkt ókost, en ekki kost, því að það er öldungis víst, að enginn lifandi maður hefir gott af tóbaksnautn. Miklu fremur hið gagnstæða, sje þess neytt að verulegum mun. Jeg tel því í þessu efni árangur landsverslunar síður en svo óheppilegan, þótt innflutningur tóbaks minkaði, þar sem tekjurnar hafa orðið meiri en menn bjuggust við.

Að því er snertir verðlag tóbaks hygg jeg óhætt að segja, að samkv. reynslu síðari ára áður en landsverslunin tók við sje síst verra verðlag hjá henni en kaupmönnum.

Það er ljeleg ástæða þegar talað er um áhættu landsverslunar út af tóbaksversluninni. Samkv. reynslunni þarf ekki að óttast hana. Sje áhætta fyrir landið að versla, þar sem hægt er að vita öll deili á vörugæðum og innflutningi, hversu miklu meiri er áhætta kaupmanna? Þeir vita ekki hver af öðrum, hvað mikið þeir flytja inn. Fyrir þessari áhættu verða þeir að gera, þegar þeir verðleggja vöruna. En viðvíkjandi þessum aukna innflutningi á tóbaki mætti minna á ummæli hæstv. fjrh., sem eru í B-deild Alþt. frá 1921, þau, að þetta sje vörutegund, sem menn ættu á engan hátt að gera gyllingar til að auka á innflutning hennar eða nautn. En ein höfuðröksemd flytjenda þessa frv. er nú sú, að innflutningur og nautn tóbaks mundi aukast, ef verslunin yrði frjáls. Mjer virðist sú ástæða fremur mæla móti málinu en með því. Jeg hygg, að jeg sje nú búinn að sýna nógu ljóslega, að það geti ekki verið af umhyggju fyrir þörf ríkissjóðs eða hag almennings, sem frv. þetta er fram komið. Hjer hljóta því að vera aðrar ástæður á bak við, og það er þá heldur ekkert launungarmál, að frv. er flutt að vilja kaupmanna, sem frá fyrstu tíð hafa verið andvígir því, að ríkið hefði verslun með höndum. Vil jeg því til sönnunar minna á brjef Verslunarráðsins til þingsins, dags. 2. mars 1921, þar sem það mælir eindregið á móti einkasölufrv. þeim, sem þá lágu fyrir þinginu, m. a. tóbakseinkasölunni. Komst Verslunarráðið að þeirri niðurstöðu í brjefi þessu, að tekjur ríkisins af þeirri einkasölu mundu ekki nema fullum 100 þús. kr. Geta menn nú sjeð, hve nærgætnir þeir hafa verið, þar sem tekjur ríkisins af henni námu á síðasta ári 350 þús. kr. Þeir færðu þá þau rök, sem hv. flm. þessa frv. færa nú enn fram, til stuðnings sínu máli, að frjáls samkepni yrði að fá að njóta sín og ekki mætti leggja neinar hömlur á hana, svo kaupsýslumenn landsins gætu rekið verslun þess á heilbrigðum grundvelli. En hvernig er nú annars varið þessari frjálsu samkepni? Hún er þó ekki svo heilög, að ekki megi gefa henni gætur. Mjer hefir stundum virst hún ekki sem heilbrigðust, svo naumast sje rjett að láta allar ástæður víkja fyrir henni. Maður hefir sjeð sitthvað skjallegt frá þessari samkundu, sem kölluð er Verslunarráð, sem bendir til þess, að kanpmönnum þyki hagur sinn ekki fulltrygður á þennan hátt, og þess vegna hafi þeir samband sín á milli um sölu og verð á vörum. (HK: Er það eins hjá kaupfjelögunum?). Jeg get svarað hv. þm. (HK) þegar, þó að viðkunnanlegra væri, að hann kæmi með sínar aths. í ræðuformi. Hann er sjálfur sá samvinnumaður og veit það glögg deili á kaupfjelagsskapnum, hvað hann má sín lítils samanborið við alla kaupmenn landsins, svo að þótt þau vildu, gætu þau ekki notið sín á sama hátt. Til þess skortir þau fje. Hv. þm. (HK) þekkir líka mörg svæði á þessu landi, þar sem engin kaupfjelög eru.

Í brjefi sínu frá 21. febr. 1921 kemst Verslunarráðið svo að orði (með leyfi hæstv. forseta):

„Það eru nú orðin bein lífsskilyrði fyrir þjóðina alla, að verðfall það, sem orðið er og síðar kann að verða, nái hingað sem fyrst. Verðið á afurðum vorum hefir fallið mikið undanfarið, og engar líkur til þess, að það fari aftur hækkandi. Ef við eigum að geta haldið framleiðslunni uppi í landinu, verður framleiðslukostnaðurinn að lækka. Það verður með því eina móti, að vjer njótum verðfallsins á aðfluttum vörum, bæði þeim, sem þarf til framleiðslunnar, og almennum lífsnauðsynjum.“

Þessi kafli stendur í brjefi Verslunarráðsins, þar sem það er að andmæla því, að landsverslun verði haldið áfram og landið annist sölu í nokkurri mynd. Allir geta skrifað undir það, að æskilegt sje, að verðfall verði hjer á vörum jafnóðum og erlendis. svo sem frekast er unt, og skal jeg ekki synja fyrir alla viðleitni í þá átt. En eitthvað mun þó á skorta. Vil jeg í tilefni af þessu benda á greinarkorn eftir kaupmann hjer í bænum frá 6. des. f. á., þar sem hann kvartar yfir því. að stórkaupmenn hafi gert samtök sín á milli um það, að láta sig ekki verða aðnjótandi viðskifta framvegis, og sje ástæðan sú, að þeim hafi þótt verðlag hjá sjer svo lágt, að þeir vildu þess vegna útiloka hann frá öllum viðskiftum. Þetta mun vera rjettur framburður, a. m. k. hefir hann ekki verið ósannaður. Kaupmaður þessi hafði auglýst áður og skorað á almenning að versla við sig, því að hann byði eins lágt verð og lægra en heildsalarnir. Það getur verið, að þeir hafi litið svo á, að kaupmaðurinn væri að hampa þessu til þess að spilla fyrir viðskiftum við þá, en til þess gat engin ástæða verið, ef verð var eins lágt hjá þeim og hægt var. En nær liggur að ætla, eins og kaupmaður skýrði frá, að hinni frjálsu samkepni hafi þótt verðið lágt og verðfallið koma fullsnemma. Svona getur hún verið, þessi blessaða frjálsa samkepni. Hún á svona anga til.

Jeg vil nú lýsa því yfir, svo andmælendur mínir geti gengið í skrokk á mjer við fyrsta tækifæri, ef þeim sýnist svo, að hvenær sem jeg sje hag almennings betur borgið með landsverslun heldur en með verslun kaupmanna, þá mun jeg styðja landsverslun. Jeg kýs heldur, að landið hafi hag af slíkri verslun. Jeg er ekki svo hlyntur frjálsri verslun, að jeg vilji að hagur almennings og landsins alls verði að einskonar fórn á altari kaupsýslunnar aðeins til þess að fáeinir kaupmenn geti skarað eld að sinni köku.

Jeg hefi ekki ætlað að fara langt út í umræðurnar um þetta mál. En jeg hefi þó ekki komist hjá því að drepa á ýms atriði, sem hjer hafa valdið deilum.

Hv. 2. þm. N.-M. (ÁJ) kvaðst ekki geta tekið afstöðu til málsins að svo komnu, og ekki fyr en nefnd hefði fjallað um það. Þetta kann að vera ástæða fyrir hann, en vænna hefði mjer þótt um það, ef hv. þm. (ÁJ) hefði getað skapað sjer skoðun á málinu þegar í byrjun. Málið er svo ljóst, að mjer virðist öllum vorkunnarlaust að greiða atkvæði um það nú þegar á sama hátt og þeir mundu síðar gera. Það eru engar líkur til þess, að það skýrist nokkuð hjeðan af.

Hv. 1. þm. G.-K. (ÁF) gerði allmikið úr þeirri ástæðu gegn einkasölunni, hve mikið væri innflutt af tóbaki ólöglega. Það getur vel verið, að svo sje; um það skal jeg ekkert segja. En jeg held, að vandkvæðin nú liggi einkum í því að selja slíkt tóbak, þar sem birgðir landsverslunar allar koma merktar erlendis frá. En sje þetta svo nú, þá ættu allir að sjá, hversu miklu auðveldara verður að flytja inn og selja slíkt tóbak, enda hvötin til slíks meiri en nokkru sinni áður, ef tollurinn verður eins hár og hv. flm. frv. ætlast til. Nú vil jeg spyrja þennan hv. þm. (ÁF): Hverjir eru það, sem nú flytja ólöglega inn tóbak? Jeg geri varla ráð fyrir því, að það sjeu menn, sem fara í öðrum erindum en kaupsýsluerindum. Ekki gera fiskimenn það nje fiskiskip. Það hljóta að vera menn, sem fá vörur frá útlöndum í allstórum stíl. Þetta er einfalt mál. Enginn flytur inn mjög mikið tóbak í vösum sínum eða ferðaskrínu sinni. Hvaða menn eru þetta þá, ef ekki sjálfir kaupsýslumennirnir? Og flytji þeir nú inn óleyfilega tóbak í stórum stíl, eins og hv. þm. (ÁF) heldur fram, þá munu þeir ekki gera minna að því, ef verslunin er gefin frjáls og undanbrögðin þar með verða miklu einfaldari.

Þá vil jeg víkja nokkrum orðum að hv þm. Ak. (BL). Jeg tók ekki eftir því hvað hann er búinn að tala oft við þessa umr., en jeg vænti þess, að hæstv. forseti leyfi honum að gera aths., ef ástæða þykir til, þótt nú sje hv. þm. dauður. Jeg mun ekki fara langt út í ræður hans Fyrsta ræðan var hóglátleg, og frá hans sjónarmiði, sem engin bönd vill þola á frjálsri samkepni, var hún fullgóð. En í síðari ræðu sinni vjek hann að öðru atriði, sem mjer þótti dálítið undarlegt. Hann sagði, að verið væri að gera landsverslun að pólitísku vígi þeirra manna, sem vildu greiða götu hennar. Kvaðst hann síðar mundu fletta betur ofan af athæfi hennar og gera nánari grein fyrir reikningum hennar. Hvað fyrra atriðið snertir, þá hygg jeg, að hv. þm. (BL) skjóti heldur en ekki yfir markið. Hvernig ætti landsverslunin, ef starfsemi hennar er annars heilbrigð, að geta verið nokkrum flokki pólitískt vígi? Jeg get ekki skilið orð hv. þm., nema það sje meining hans, að sökum þess að forstöðumaður landsverslunarinnar er flokksbróðir minn og fleiri manna, sem talað hafa á móti frv., þá viljum við halda landsverslun áfram vegna launanna, sem þessi maður fær. Jeg held, að jeg hafi í ræðu minni hjer á undan gert ljósa grein fyrir því, að til þess liggja aðrar og meiri ástæður, enda er þessi svo ómerkilega lítils verð, að furðu gegnir. Við andmælendur háttv. þm. (BL) höfum miklu meiri ástæðu til að segja, að málaflutningur hans hjer komi úr pólitísku vígi, því að það er kunnugt, að verslunarstjett landsins hefir frá upphafi amast við afskiftum ríkisins af versluninni, og alt, sem hv. þm. hefir sagt um það mál hjer, er talað út úr hug kaupmanna, og því alls ekki ofmælt að segja, að hann sje að reka erindi þeirra nú í þinginu. Jeg er ekki með þessu að segja, að þetta sje neitt svívirðilegt, því vera má, að skoðanir sjálfs hans falli hjer saman við hagsmunaástæður kaupmannanna. Var Skúli fógeti að reka erindi kaupmanna?). Ef hv. þm. er ekki betur að sjer í sögu en hann er í verslunarmálum og nú bentu orð hans til, þá ætti hann að lokinni umr. að setjast niður og lesa Einokunarsöguna eftir Jón Aðils.

Þá ætla jeg að víkja að hinu atriðinu, er hv. þm. Ak. (BL) ljest mundu gera betri grein fyrir reikningum landsverslunarinnar og viðskiftum. Jeg verð að segja, að ef hv. þm. veit, að ekki sje hjer alt með feldu, þá er honum skylt að greina frá því. Og það gerir skyldu hans enn meiri að draga þetta fram í dagsljósið, að hann er að gefa það í skyn, að við, sem mælum á móti frv., sjeum að verja landsverslun af hvötum, sem hann er að dylgja um, en segir þó ekki hreinlega, hverjar sjeu. Jeg skora nú á hv. þm. Ak. (BL), að hann geri grein fyrir því, í hverju landsverslun sje ábótavant og hvað hann eigi við með dylgjum sínum um afstöðu okkar andmælenda hans til málsins. Geri hann það ekki, þá heiti hann minni maður.

Jeg get látið hjer staðar numið. En þó vil jeg að lokum geta þess, að fari svo, að frv. þetta verði samþykt, hvort heldur sem er með eða án tollhækkunar, þá verð jeg að segja það, að þeim, sem til slíks stofna, sje ekki einkarsárt um gjöld almennings nje fjárhag landsins, og mun jeg þá neyðast til þess að álíta hjer eftir, að þeim sje ekki eins mikil alvara um að koma fjárhag ríkisins í betra horf og þeir hafa látið. Jeg hefi beygt mig fyrir nauðsyn þess að afla ríkinu tekna. jafnvel þó að mjer hafi þótt nokkuð langt gengið í því að íþyngja þjóðinni með opinberum gjöldum. Og jeg hefi greitt atkvæði á síðasta þingi — og geri líklega enn — á móti fjárveitingum til góðra og nytsamlegra fyrirtækja. af þeirri ástæðu einni, að reyna að flýta fyrir því, að fjárhagur ríkisins komist í lag. En sýni það sig nú, að flokkur stjórnarinnar hirði ekki meira um fjárhag landsins en svo að hann þröngvi þessu frv. í gegn, þá er okkur hinum óvandur eftirleikurinn hvað snertir önnur frv., sem fram kunna að koma og ætluð eru til þess að bæta upp tekjumissinn sem þetta frv., skapar.