25.02.1925
Neðri deild: 16. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2884 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)

50. mál, tollalög

Jón Baldvinsson:

Það hefir töluvert verið deilt um þetta frv. og um tölur þær, sem nál. er bygt á. Háttv. flutningsmenn eru líka í seinni tíð farnir að hörfa frá því aftur, sem þeir reyndu að sanna í upphafi, að innflutningurinn hafi minkað vegna ríkiseinkasölunnar, og eins hörfa þeir nú óðfluga frá hinu, að tollurinn muni nema meiru en tekjurnar eru nú af versluninni. Það er líka svo, að það sjest greinilega. þegar borinn er saman innflutningurinn á árunum 1914.—21, hvernig hann gengur í bylgjum. Það er eðlilegt, því að í góðum árum. Þegar kaupgeta fólks eykst, þá neytir það meira af þessum vörum. Þannig skera árin 1916 og 1919 sig úr vegna óvenjulegs ástands í landinu. Aftur á móti voru árin 1921— 1923 sjerstök kreppuár, einhver þau verstu, sem komið hafa langalengi, og því ekki nema eðlilegt, að það kæmi niður á innflutningnum, enda reyndist það svo, sjerstaklega árið 1922. Árið 1923 fer hann aftur dálítið að vaxa, en þó mest á árinu 1924. Sala tóbaks 1924 er þannig 9% meiri en árinu á undan, og 19% meiri á vindlum og vindlingum. Að innflutningurinn er svo jafn bæði árin. Þótt salan sje meiri hið síðara, stafar af því, að þá eru minni birgðir fyrirliggjandi.

Það er skiljanlegt út frá peningaástandinu í landinu, að salan var ekki meiri en raun varð á fyrstu árin, sem einkasalan stóð. Menn gátu ekki keypt og urðu að spara við sig. Það er ekki fyrri en á miðju árinu 1924, að úr fer að rætast. Mjer þykir því ekki ólíklegt þó að það komi upp úr kafinu, að tóbakssalan hafi orðið meiri seinni helming þess árs en á nokkru hálfu ári áður.

Það er heldur ekki úr vegi að minnast á það, að fjöldi manns er þeirrar skoðunar, að tóbakseyðslan, jafnvel þó hún gefi ríkinu tekjur í aðra hönd, sje alls ekki æskileg. Þeir menn líta fyrst og fremst á það, hvað þjóðinni sje í raun rjettri fyrir bestu. Og út frá þessu sjónarmiði ætti ekkert að gera til þess að örva innflutning tóbaks, heldur halda einkasölunni, ef hún að einhverju takmarkaði tóbaksneysluna í landinu.

Hvað aukinni smyglun viðvíkur, þá hefir það verið sagt, að engin hætta sje á henni, því að kaupmenn myndu í því efni hafa eftirlit hver með öðrum. Jeg sje ekki annað en að í þessari röksemdafærslu liggi ásökun til kaupmanna, því að þetta verður varla skilið á annan hátt en þann, að meðan ríkiseinkasalan sje við lýði, þá hafi þeir samtök um smyglunina, en hætti þeim, þegar landsverslunin sje afnumin. En er óhugsandi, að þeir haldi áfram slíkum samtökum, þótt einkasalan verði afnumin? Er hvötin ekki sú sama að koma hver upp um annan, til að koma í veg fyrir misrjetti, meðan landsverslunin stendur? Það væri þá af fjandskap við hana einungis, að þeir gerðu það ekki.

Háttv. 4. þm. Reykv. (MJ) talaði um gengisgróðann 1924 og vildi ekki samsinna því, að hann ætti ekki að dragast frá tekjum þess árs. Nú tók jeg það fram hjer í hv. deild á laugardaginn var, að ef þessi gengisgróði væri falinn í þessum 350 þús. kr. eða ef honum hefði verið varið til að greiða venjulegan kostnað af versluninni, þá bæri að draga hann frá. En nú fór hann einmitt í það að greiða óvenjuleg útgjöld, nefnilega útsvar af versluninni, sem lengi var talið vafasamt, hvort þyrfti að greiða, en sem svo var borgað samkvæmt dómi, er fyrst fjell 1924.

Hv. 1. þm. G.-K. (ÁF) er hreinn og beinn, eins og hann er vanur. Hann krefst þess, að kaupmönnum sje fengin öll verslun í hendur, því að það sje þeirra rjettur. Allar hömlur á verslunarfrelsinu kveður hann vera „hreinræktaðar bolsevikakenninga“. En hann hefir þá fyr á tímum verið sjálfur bolseviki, því að 1912 var hann fylgjandi einkasölu á kolum og salti. Jeg lasta það ekki, en skoðun hans þá horfir nokkuð öðruvísi við en síðar hefir orðið.

Þá sný jeg mjer að háttv. þm. V.-Sk. (JK). Hann gerði sig að siðameistara þessarar hv. deildar og fór hörðum orðum um þá menn, er hann taldi vilja kollvarpa núverandi þjóðfjelagsskipulagi. En orð hans hitta harðast þann mann, sem hann vildi síst styggja, nefnilega hæstv. atvrh. (MG), því að hann barðist fyrstur manna hjer fyrir einkasölu á tóbaki og flutti frv. um það. Annars var ræða hv. þm. (JK) ekkert annað en venjulegur Morgunblaðsvaðall um frjálsa verslun, sem venjulega er í því fólgin, að verslunarhringarnir í hinum ýmsu vörutegundum banna kaupmönnum að selja þær undir því verði, er þeir hringarnir, ákveða.

Hv. aðalflm. (BL) komst því miður úr jafnvæginu, þegar hann talaði síðast. Hann var með dylgjur gegn forstöðumönnum landsverslunarinnar og fór þeim orðum um hana, að hún væri pólitískt vígi, og þaðan væru farnar ránsferðir til fjár og valda. Auðvitað gerði hann enga tilraun til að rökstyðja þennan framburð sinn. En meir en meðalóskammfeilni má það kallast að ráðast að mönnum með svo svívirðilegum aðdróttunum að þeim fjarverandi. Verður að víta það. Þetta lýsir líka hinni mestu lítilmensku hjá hv. þm. (BL). Því að hann átti kost á því að koma með þessa árás á þingmálafundi fyrir norðan, þar sem forstjóri landsverslunarinnar var viðstaddur, en þá var hann lungamjúkur

Jeg vil svo ljúka þessari aths. minni með því að víkja nokkrum orðum að ræðu hv. þm. Ísaf. (SigurjJ). Það þarf ekki að taka það fram, að allir hans útreikningar eru ramvitlausir, og svo er það einnig, sem hann las um steinolíuverðlagið. Annars er það eftirtektarvert, að síðan landsverslunin var stofnuð hefir altaf kveðið við í blöðum kaupmanna, hversu miklu lægra verðlagið sje annarsstaðar. En jafnan hefir þetta reynst uppspuni einber. Að þessu sinni var það verðlagið á steinolíu í Kaupmannahöfn. sem háttv. þm. (SigurjJ) varð svo tíðrætt um, og sem hann taldi mun lægra þar en hjer. Jeg þori nú að fullyrða, að þó að lægra verð hafi einhverntíma verið á steinolíu í Kaupmannahöfn, þá hefir það aldrei átt sjer stað síðan landsverslunin hjer tók olíuverslunina í sínar hendur, að hægt hafi verið að útvega ódýrari olíu handa landsmönnum. Núna er verðið í Kaupmannahöfn á olíu talsvert hærra en hv. þm. nefndi til. — Þannig hrynja allar þessar tölur, ef við þær er komið. Og þó látið hafi verið í veðri vaka tylliboð um lægra verð en hjá landsversluninni, þá hafa þeir, sem fyrir slíku stóðu, altaf orðið að láta í minni pokann, þegar á átti að herða og við tilboð átti að standa, og mun svo og hjer vera.