25.02.1925
Neðri deild: 16. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2888 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)
50. mál, tollalög
Klemens Jónsson:
Það hafa ýmsir hv. þm. orðið til þess að gera sjer mikinn mat úr þeim ummælum mínum, að ekki væri að svo stöddu umtalsmál um, að ríkið tæki alla verslunina í sínar hendur, og hafa viljað leggja þann skilning í þau, að það væri „prógram“ Framsóknarflokksins, að öll verslunin yrði þjóðnýtt. En ummæli þessi standa aðeins fyrir minn reikning og það er alveg óþarft að fara að gera sjer áhyggjur út af því, að það sje flokksmál Framsóknarflokksins að styðja slíka stefnu. Mjer vitanlega hefir aldrei neitt slíkt borið á góma þar. Jeg vil því mælast til þess, að hv. þm. taki þetta aðeins sem mín eigin orð.
Annars skal jeg minna á það, að þetta, að ríkið taki verslunina í sínar hendur, er alls ekki ný skoðun. Hún er æfagömul og miklu eldri en bolsevisminn. Því að jeg minnist þess, að einhver gáfaðasti maður, sem setið hefir hjer á þingi, og sem nú er kominn undir græna torfu, var sannfærður um það, að heillavænlegast væri, að ríkið tæki alla verslunina í sínar hendur. Þessi maður var Jón heitinn í Múla. Við ræddum um þetta marga kvöldstund, og jeg hygg, að það hafi verið hans heitasta áhugamál. Jeg tók þessu allfjarri þá, en síðan hefi jeg með nánari íhugun og meiri reynslu komist að þeirri niðurstöðu, að þetta væri alls ekki óhugsandi, og sennilega á þessi skoðun eftir að gægjast betur fram.
Mjer var aðeins leyft að gera stutta athugasemd, og verð jeg því að takmarka mig. Jeg hefði þó ástæðu til að gera athugasemdir við allmargt í ræðu háttv. 4. þm. Reykv. (MJ), en verð að láta flest af því bíða til 2. umr., ef málið kemst svo langt. En þó vildi jeg nú leyfa mjer að drepa á fátt eitt.
Hv. þm. (MJ) hjelt því fram, að það væri rangt að telja varasjóðinn með tekjum af versluninni, þar sem hann væri áætlaður fyrir væntanlegu tapi, og það sjáist fyrst, er verslunin er gerð upp, hvers virði hann sje. En hvernig kemst hv. þm. (MJ) í kringum það, að hann sje þrátt fyrir það tekjur, sem verslunin gefur af sjer? Jeg skal ekki bera á móti því, að vel geti orðið tap á versluninni. Bæði geta ófyrirsjáanleg óhöpp viljað til, og eins vita allir, að hjer á landi er margt óskilamanna. En það tap nemur þó varla meiru en svo, að það hitti aðeins varasjóðinn, og þannig á hann sinn þátt í að tryggja verslunina.
Hv. þm. (MJ) spurði um það, hvar varasjóðurinn væri niðurkominn og hvort hann væri geymdur sjerstaklega. Jeg get svarað því strax, að jeg geri ráð fyrir því, að þessi varasjóður, eins og flestir varasjóðir annars, sje í veltu. Kaupmenn nota varasjóði sína til að auka veltuna, og ekki veit jeg til, að bankar ávaxti þá sjerstaklega eða leggi þá til hliðar. Svo þetta er engin nýung með varasjóð landsverslunarinnar.
Að því hefir verið fundið sem röngu, að miða afkomu verslunarinnar við árið 1924, vegna þess að þá hafi árferði verið með afbrigðum gott, alveg eins og það hefði verið rangt að mjög við fyrsta rekstrarárið. Jeg skal taka það fram, að það hefði verið bersýnilegt ranglæti, hefðu hv. flm. miðað við fyrsta árið eitt út af fyrir sig. En af þessu tvennu virðist mjer liggja miklu nær að taka síðasta árið. Ef kaupmaður vill áætla afkomu sína á næsta ári, myndi hann leggja afkomu síðasta ársins til grundvallar, en ekki fyrri árin, þegar hann var ennþá ekki búinn að koma verslun sinni í fast horf. Jeg spái líka, að það sýni sig, að ef tóbakseinkasalan fær að lifa, þá muni það ekki svíkja neinn að byggja á útkomu síðasta árs.
Þá harmaði hv. þm. (MJ) það, að sumir kaupmenn hefðu orðið að hætta að reka verslun við það, að einkasalan var sett á stofn. En hver hefir svift þá rjettinum til að halda áfram að versla? Þeir geta verslað með tóbak eftir sem áður, og ef þeir hafa hætt að versla vegna einkasölunnar, þá hefir orsökin aðeins verið sú, að þeir hafa ekki getað lagt eins mikið á þessa vöru eins og áður. Annars er það í sjálfu sjer ekki svo óalgengt, að menn sjeu sviftir rjettindum. Menn muna, að þeir, sem ráku vínverslun áður, gerðu það samkvæmt sjerstöku leyfi, sem heimilaði þeim vínsölu, en voru bótalaust sviftir því við aðflutningsbannið. Þeir, sem reka tóbaksverslun, gera það samkv. almennu leyfisbrjefi, sem þeir gjalda 50 kr. fyrir, án þess sjerstaklega sje tekið fram, að þeir hafi leyfi til að versla með tóbak, svo þeir gætu ekki kvartað, þó sú vara væri tekin undan. En nú er enginn sem hindrar þá, nema þeir sjálfir; þeir þykjast ekki græða nóg á sölunni.
Ummælum þeim, sem hjer hafa fallið um steinolíuverðið, er jeg ekki viðbúinn að svara, en vafalaust er hægt að hrekja þau.