25.02.1925
Neðri deild: 16. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2891 í B-deild Alþingistíðinda. (1836)
50. mál, tollalög
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg hefi sama sem ekkert tafið þessar umr. og ætla mjer ekki að gera það. Þær hafa staðið það lengi, að flestir vona, að þeim verði nú bráðum lokið. Jeg ætla ekki að blanda mjer inn í deilur eða fara út í neinar almennar athugasemdir; þess vegna vona jeg, að þessi fáu orð, sem jeg segi að þessu sinni, verði ekki til þess að lengja umr. úr því sem komið er.
Aðallega kvaddi jeg mjer hljóðs til þess að beina nokkrum orðum til ríkisstjórnarinnar.
Vil jeg þá í fyrsta lagi minna hana á það, að um mál þetta hafa orðið óvenjumiklar og langar umr. Mál þetta hefir nú tekið upp svo að segja allan fundartíma deildarinnar í fjóra daga, og er það sjaldgæft við 1. umr. Þær hafa líka orðið almennari þessar umr. en venja er til. Jeg vil minna hæstv. stjórn á, og jeg held það sje rjett hjá mjer, að þm. úr níu kjördæmum hafa talað á móti þessu frv., og stjórnin veit vel, að margir eru eftir, sem líka myndu tala á móti því, ef þeim þættu ekki umr. orðnar of langar. Og vitanlega liggur ein og sama hugsun á bak við allar ræður þessara þm. úr 9 kjördæmum, sem mótmælt hafa. Það er ekki „princip“, sem liggur á bak við nema aðeins hjá einum andmælanda. Nei, hin hugsunin og sú, sem öllum er sameiginleg, er að vilja ekki sleppa af vissum tekjum ríkissjóði til handa. Ekkert nema hagur ríkissjóðs vakir fyrir þessum þm., sem móti frv. hafa talað. Þeir vilja ekki, að ríkissjóður missi af vissum og sjerlega auðfengnum tekjum. Umhyggja þeirra fyrir ríkissjóði er eina ástæðan, sem veldur andstöðu þeirra við frv.
Í öðru lagi vil jeg minna á, að stjórnin hefir lýst því yfir, að hún vildi á allan hátt treysta fjárhag ríkisins. Jeg vil ekki að svo stöddu efast um, að þar fylgi hugur máli. Hæstv. fjrh. (JÞ) lýsti og hinu sama yfir að nokkru leyti í ræðu þeirri, er hann flutti, þegar hann lagði fjárlagafrv. fyrir deildina. Hann sagði einnig þá, að stærstu flokkar þingsins í fyrra hefðu tekið saman höndum til þess að rjetta fjárhag landsins og afgreiða fjárlögin skynsamlega. Jeg er þakklátur hæstv. fjrh., að hann lætur Framsóknarflokkinn þar njóta sannmælis.
Það var enginn ágreiningur í fjvn. í fyrra. Þar unnu báðir flokkarnir saman að því að afgreiða fjárlögin á þeim grundvelli, að vel mætti við una. Og enn sem komið er helst hin sama góða samvinna hjá nefndinni, og jeg vona, að ekkert komi það fyrir á þessu þingi, er spilli henni. Og úr því hæstv. fjrh. hefir látið Framsóknarflokkinn njóta þessa sannmælis, mun enginn efa, að Framsóknarflokkurinn á þessi ummæli skilið. Þá get jeg fullvissað hæstv. landsstjórn um það, að flokkurinn hefir sama góða viljann á því að halda öllu óbreyttu frá í fyrra og vonar, að fjárlögin fái líka afgreiðslu og þá. En þá væntum við og hins sama af stjórnarflokknum og stjórninni, og sjerstaklega að ekki sje kastað burtu vissustu og hagstæðustu tekjustofnunum.
Í þriðja lagi vil jeg benda hæstv. landsstjórn á það, að höfundar þessa skipulags, sem nú á að rífa niður, eru tveir ráðherrar — og þó einkum annar þeirra —, sem nú eiga sæti í stjórninni. Upphaflega var því lýst yfir af þeim, er þetta skipulag vildu upp taka, að það væri gert af fjárhagsástæðum. Mjer dettur ekki í hug að rengja, að svo hafi verið, og geri heldur ekki ráð fyrir, að þessir ráðherrar, eða meiri hluti núverandi stjórnar, hafi skift um skoðun. Og nú er því aftur lýst yfir af okkur öllum, sem móti frv. höfum talað, að hjer sje um fjármál að ræða og af fjárhagsástæðum einum sprottið, að við viljum halda þessu skipulagi. Við virðum fyrri stefnu meiri hluta núverandi stjórnar um frv. þetta, og lýsum því ótvírætt yfir, að við stöndum með meiri hl. stjórnarinnar í þessu fjárhagsmáli.
Er þá undarlegt, þótt jeg spyrji: Hvað er þá eiginlega því til fyrirstöðu, að að þessu ráði verði horfið áfram og tóbakseinkasalan fái að starfa í friði? Meiri hluti núverandi stjórnar eru höfundar þessa skipulags og allur aðalandstöðuflokkur stjórnarinnar fylgir henni í þessu máli. Við lýsum því yfir, að allur flokkurinn vilji styðja meiri hluta stjórnarinnar í því að bjarga þessu máli. Hvað er þá til fyrirstöðu, að svo megi verða, að tóbakseinkasalan haldi áfram? Jú, það er til fyrirstöðu, að einstakir menn í flokki stjórnarinnar hafa bundist samtökum um að afnema ríkiseinkasölu á tóbaki af einskærum áhuga fyrir hinni frjálsu verslun, eins og þeir orða það.
Afstaðan er þá þessi:
Við, andstæðingar stjórnarinnar, bjóðum að styrkja meiri hluta hennar um mikið fjárhagsmál, er hún hefir áður borið fram til sigurs, en hennar eigin stuðningsmenn vilja nú eyðileggja.
Nú spyrjum við, hverju stjórnin svarar, og hljótum að leggja mikið upp úr, hvernig meiri hluti hennar snýst í þessu máli. Það er hennar eigið fjárhagsmál, sem við bjóðumst til að styðja.
Ef stjórnin, eða meiri hl. hennar, neitar þeirri útrjettu hönd andstæðinganna til bjargar þessu máli hennar, þá vil jeg benda henni á það, að hjer getur orðið um alvarlegar afleiðingar að ræða.
Og hvað eigum við þá að halda um alvöru stjórnarinnar í fjármálum landsins, ef hún hrindir frá sjer samtökum andstæðinganna og virðir að engu viðleitni þeirra til bjargar hennar eigin fjárhagsmálum, þegar hennar flokksmenn bregðast skyldu sinni að styðja hana?
Það er þetta, sem jeg vildi taka fram, og jeg vona, að jeg hafi stilt svo orðum mínum, að umr. þurfi ekki mikið að lengjast mín vegna. Jeg vil aðeins ljúka máli mínu með því, að ef stjórnin ætlar að kasta frá sjer þessum vissu og auðteknu tekjum einkasölunnar, þá gái hún að því fyrst og fremst, að hún stofni ekki til óþarfa sundrungar og klofnings um fjármálin, er leiði til þess, að ekkert samkomulag verði um skynsamlega afgreiðslu fjárlaganna.