20.04.1925
Neðri deild: 60. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2903 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)

50. mál, tollalög

Frsm. meiri hl. (Jakob Möller):

Þó að allmikið hafi þegar verið rætt og ritað um þetta mál, þá þykir mjer rjett að láta nokkur orð fylgja þessu frv., þegar það nú kemur hjer til 2. umr.

Jeg ætla þó ekki að þessu sinni að fara langt út í það að bera saman frjálsa verslun og einkasölu yfirleitt. Því að fyrst og fremst má segja, að það sje þrautrætt mál, og lítil von þess, að fylgismönnum annarar stefnunnar takist að sannfæra hina í þingræðum. En jeg veit heldur ekki til þess, að hjer sje innan veggja nema einn maður, sem heldur því fram, að allsherjar einkasala sje heillavænleg eða hagfeld þjóðinni. Að minsta kosti hefir enginn flokkur í þinginu, nema jafnaðarmannaflokkurinn, tekið á stefnuskrá sína allsherjar einkasölu. Það er því ástæðulaust að ræða málið á þeim grundvelli. — Hinsvegar virðist liggja hjer allnærri að álykta frá því almenna til hins sjerstaka. Ef allsherjareinkasala er ill, þá hlýtur líka einkasala á einstökum vörutegundum að vera ill, nema þá að sýnt sje fram á, að alveg sjerstaklega sje ástatt.

Það verður ekki sjeð, að þannig sje á nokkurn hátt sjerstaklega ástatt um tóbakið, að hentugra muni almenningi, að á því sje einkasala, fremur en á öðrum vörum. Því er haldið fram, að einkasala á steinolíu sje hentug, eða jafnvel nauðsynleg, til þess að vernda notendur frá okri einokunarhringa. Því er haldið fram, að einkasala á áfengi sje sjálfsögð, af því að hafa beri hönd í bagga með þeirri verslun, og helst ætti með öllu að aftra því, að menn ættu nokkurn kost á því að ná í þá vöru. Hvorugu þessu er til að dreifa um tóbakið. Það er enga tóbakshringi að óttast. Og sú stefna er heldur ekki uppi, að útrýma tóbaki úr landinu. Og jeg hefi yfirleitt enga ástæðu heyrt færða fyrir því, að einkasala ætti betur við um tóbak en aðrar vörur, hverju nafni sem nefnast, nema þá eina, að hún væri hentugri til að ná tekjum í ríkissjóð af tóbakssölu í landinu en frjáls verslun. — Jeg verð því að telja það viðurkent, að einkasala á tóbaki hafi til að bera alla þá ókosti, sem viðurkendir eru á einkasölu yfirleitt, og sem gera það að verkum, að menn vilja ekki koma á einkasölu á öllum vörum, jafnt nauðsynlegum sem ónauðsynlegum. En þeir ókostir eru aðallega fólgnir í því, að vörurnar verða dýrari og verri. En þó nú að tóbak sje það, sem kallað er óþarfi, þá gegnir í rauninni alveg sama um það og aðrar vörur, sem mjög alment eru notaðar af landsmönnum, að það verður almenningi til skaða, ef varan er gerð dýrari eða verri en hún þyrfti að vera, og eru allar ráðstafanir af hálfu löggjafarvaldsins, sem fara í þá átt, í sjálfu sjer öldungis óverjandi.

Jeg sje það, að í skýrslu, sem hjer liggur fyrir frá landsverslun, er því haldið fram, að einkasalan á tóbaki sje hentugri og ódýrari fyrir almenning en frjáls verslun. En sú skýrsla er vitanlega samin af mönnum, seni trúa á ágæti einkasölufyrirkomulagsins, ekki aðeins á tóbaksversluninni, heldur á allri verslun. — En það er að öðru leyti í fáum orðum að segja um þá skýrslu, að á henni er ekkert að græða um þetta atriði, ekkert annað en órökstuddar staðhæfingar um það, að svona og svona miklu dýrari myndu vörurnar verða í frjálsri verslun. Alveg samskonar skýrslur mætti búa til um hvaða vörutegundir, sem vera skyldi, en jeg geri ráð fyrir því, að hið háa Alþingi mundi verða nokkuð tregt í taumi á allsherjareinkasölubrautinni, hvað mörgum skýrslum af þessu tægi, sem yfir það rigndi.

Jeg fyrir mitt leyti held því fast fram, að einkasölufyrirkomulagið sje ilt, um hvaða vörutegundir sem er að ræða, og yfirleitt, ef ekki eru alveg sjerstakar, knýjandi ástæður fyrir hendi, en skal, sem sagt, ekki fara lengra út í að rökræða það að svo stöddu.

En þá er að athuga þá hlið þessa máls, sem sjerstaklega veit að ríkissjóðnum og tekjuþörf hans.

Það er yfirlýst, að til einkasölu á tóbaki hafi verið stofnað eingöngu með það fyrir augum að ná sem mestum tekjum í ríkissjóð. Það var heildsala tóbaksins, sem fyrst og fremst átti að gera að fjeþúfu fyrir ríkissjóðinn. En í framkvæmdinni hefir það gengið miklu lengra, enda hefði eðlilegur heildsöluágóði ekki hossað hátt. En menn gerðu sjer þá alveg rangar hugmyndir um heildsöluágóðann, af því að menn höfðu alveg óvenjulegt ástand fyrir augum, og hjeldu jafnvel, að það væri algild regla, sem þá ef til vill hefir aðeins þekst dæmi til hjá einhverjum ófyrirleitnum okrara, að álagning í heildsölu væri alt að 100%. Ef svo hefði verið, þá gat vitanlega verið þarna leikur á borði fyrir ríkissjóðinn. En reynslan hefir sannað, að hjer var aðeins um ofsjónir að ræða. Venjuleg heildsöluálagning mun vart nema meira en rekstrarkostnaðir landsverslunarinnar, og ágóði verslunarinnar verður því í raun og veru bein viðbót við tollinn, auk þess sem klipið er af eðlilegum sölulaunum smásala, með því að ákveða þau svo lág, að það þykir yfirleitt ekki borga sig að versla með þessar vörur í smásölu utan Reykjavíkur. Hinsvegar er það auðsætt, að gera má þessa verslun að fjeþúfu fyrir ríkissjóðinn, með því að selja vöruna svo og svo háu verði. Það er kosturinn, sem þetta fyrirkomulag hefir til að bera fram yfir tollálögurnar.

En meiri hluti nefndarinnar lítur svo á, að þegar um það er að ræða, hvort halda skuli áfram einkasölu á tóbaki, eða í þess stað að hækka toll á tóbaksvörum, þá megi ekki líta á það eitt, á hvern hátt tekjur ríkissjóðs af þessum vörum geti orðið mestar í einstaka ári, en jafnframt verði að gæta þess, að íþyngja ekki neytendum að óþörfu með aðferðinni til að ná tekjunum, með því að gera vöruna dýrari en hún þyrfti að vera, án þess þó að tekjur ríkissjóðs verði sem því svarar meiri til jafnaðar. En eins og hjer hagar til, þá getur ekki hjá því farið, að tóbaksvörur allar verði dýrari með einkasölufyrirkomulaginu heldur en í frjálsri verslun. Einkasalan verður altaf aukaþáttur í versluninni. Hún hefir í raun og veru ekkert annað hlutverk en að innheimta tekjur ríkissjóðs af þeim vörum, sem hún selur. Ef hún væri ekki, myndu allar meiriháttar smásöluverslanir kaupa tóbaksvörur milliliðalaust af sömu heildsöluverslunum og verksmiðjum erlendis, sem einkasalan skiftir við. Smásalar, sem kynnu að verða að sæta því að kaupa vörur með óhagkvæmari kjörum, verða þá að keppa við hina og bera sjálfir hallann. Rekstrarkostnaður einkasölunnar hlýtur þannig að langmestu leyti að verða aukakostnaður, sem á vörur þessar legst, og verður einkasalan því óumflýjanlega allþungur baggi á þeim landsmönnum, sem tóbak nota. En sá aukaskattur, sem þannig er lagður á landsmenn, og ekki kemur þó ríkissjóði til góða, nemur, samkvæmt rekstrarreikningi einkasölunnar fyrir síðastliðið ár, fullum 92 þús. kr., eða nálega 25% af þeirri upphæð, sem tekjur ríkissjóðs af einkasölunni nema það ár. Virðist það óhæfilega mikill innheimtukostnaður á tekjum ríkissjóðs, og þó hefir sá kostnaður orðið hlutfallslega miklu meiri árið 1923. Hinsvegar liggur í augum uppi, að ná með tollhækkun því sem næst sömu tekjum af tóbakinn, án þess að innheimta þess tollauka kosti ríkissjóð nokkuð.

Það skal þó játað, að einstaka ár kunna að nást meiri tekjur í ríkissjóð af tóbaki með einkasölufyrirkomulagi en með tolli, einkanlega meðan verðlag er reikult og peningagengi óstöðugt. En af sömu ástæðum leiðir þá einnig, að annað árið má búast við minni tekjum, auk þess sem talsverð áhætta fylgir þá einkasölunni fyrir ríkissjóð, ekki síst ef hún er rekin að mestu með lánsfje.

Það er viðurkent, að tekjurnar af einkasölunni árið 1924 hafa orðið meiri en tolltekjurnar hefðu orðið samkvæmt frv. því, sem hjer liggur fyrir, ef um sama innflutningsmagn væri að ræða. En þess ber að gæta, að einkasalan hjelt verðlagi sínu óbreyttu alt árið, eins og það varð hæst vegna gengislækkunar ísl. krónu í ársbyrjun, þó að gengið færi síðan síhækkandi til ársloka: Hefir álagning einkasölunnar því verið orðin talsvert hærri síðari hluta ársins heldur en hægt er að gera ráð fyrir til jafnaðar, enda hefir verðlagið nú verið lækkað nokkuð aftur. En af þeirri verðlækkun, sem nú er orðin, leiðir og væntanlega það, að ágóðinn af versluninni getur ekki orðið eins mikill þetta árið, nema að enn verði svipuð breyting á genginu og síðastliðið ár, og væri þá þó enn um tækifærisgróða að ræða, sem ekki mætti gera ráð fyrir framvegis, heldur mætti þá miklu fremur búast við afturkipp, sem mundi koma hag einkasölunnar í gagnólíkt horf. Tolltekjurnar verða hinsvegar stöðugri, þó að þær á stöku ári kunni að verða minni, og algerlega áhættulaus tekjustofn fyrir ríkissjóðinn. Enn verður að telja tekjurnar af einkasölunni ótryggari fyrir ríkissjóðinn heldur en tolltekjur samfara frjálsri verslun, vegna þess, að einkasölufyrirkomulagið felur í sjer aukna smyglunarhættu. Það er nú vafasamt, hve langt er hægt að fara í því að skattleggja einstakar vörutegundir, hvort sem um munaðarvörur er að ræða eða aðrar, og hvort sem það er gert með tollálögum eða verslunarálagningu, einmitt vegna smyglunarhættunnar. En smyglunarhættan hlýtur að aukast við þær aukahömlur, sem lagðar eru á viðskiftin með einkasölufyrirkomulaginu, ekki síst eins og það er hjer. Ef verslunin væri frjáls, myndu flestar verslanir geta fengið gjaldfrest hjá viðskiftavinum sínum erlendis, í stað þess að nú verða þær að greiða einkasölunni andvirði við móttöku. Auk þess gætu þær þá, án þess að útsöluverð þyrfti að verða hærra, lagt þeim mun meira á vöruna, sem rekstrarkostnaði einkasölunnar nemur. En hann er, samkv. reikn. 1924, um 8% af innkaupsverðinu. Mundi þetta hvorttveggja auka tekjurnar af versluninni með þessar vörur að töluverðum mun frá því, sem nú er í smásölunni, með takmarkaðri álagningu, og draga mjög úr tilhneigingu til smyglunar, jafnvel þó að um svo háan toll væri að ræða, sem frv. fer fram á. En með þeim kjörum, er smásölum er gerður kostur á í viðskiftum þessum, er þorra þeirra gert svo að segja ókleift að fást við tóbaksverslun á heiðarlegan hátt. Hinsvegar eru óhlutvöndum mönnum opnaðar leiðir til gróðavænlegs verslunarrekstrar með smyglaðar vörur eða jafnvel okursölu á einkasöluvörunum.

Að þessu athuguðu, leggur meiri hl. nefndarinnar eindregið til, að horfið verði frá einkasölufyrirkomulaginu, og ræður háttv. deild til að samþykkja frv. það, sem hjer liggur fyrir. Aðeins leggur nefndin til, að gerð verði sú breyting á frv., að hækkun tollsins komi í gildi samtímis því, sem einkasalan fellur úr gildi og að hvorttveggja verði 1. jan. 1926. Virðist nefndinni það hentugra í framkvæmd, einkanlega í sambandi við það, þegar á að fara að koma vöruleifum einkasölunnar í verð.