22.04.1925
Neðri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2983 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)

50. mál, tollalög

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg hafði ekki frekar búist við að taka til máls að þessu sinni. Jeg bjóst jafnvel við, að skeikað yrði að sköpuðu með atkvgr. einni saman í þetta sinn, en umr. yrðu ekki teljandi. Það er ekki þar fyrir, að hjer er um svo mikilvægt mál að ræða, að ekki er nema eðlilegt, að um það sje nokkuð talað enn við þessa umr., jafnvel þó búast megi við því, að fátt nýtt komi í ljós, sem ekki hefir áður verið tekið fram hjer í hv. deild.

Að jeg hefi kvatt mjer hljóðs, er einkum vegna nokkurra ummæla hæstv. fjrh. (JÞ) í dag um þær vonir, sem Alþingi hafi á sínum tíma gert sjer um tekjur af tóbaks- og víneinkasölu ríkisins. Hæstv. fjrh. virtist halda því fram, að þessar vonir um tekjuauka til handa ríkissjóði hafi brugðist. Jeg hefi bæði fyr og nú leitast við að finna í þingtíðindunum, hverjar vonir menn hafi alment gert sjer um þetta efni, og þykist ekki geta sjeð að reynslan hafi ekki orðið öllum vonum betri, þegar fyrsta árið er undanskilið. Í greinargerð stjfrv. 1921 gerir stjórnin ráð fyrir, að tekjur af tóbaks- og víneinkasölu, að viðbættum vínfangatolli, myndu nema mest um ½ milj. kr. Lengra var þá ekki farið. Þeir, sem einkasölunni voru hlyntir og mæltu með henni í þessari hv. deild, komust að svipaðri niðurstöðu. Og í umr. í þinginu hefi jeg hvergi sjeð því haldið fram, að tekjur þessar yrðu meiri en ½ milj. kr. Nú fór svo, að fyrsta árið náðu þessar tekjur ekki nema um 430 þús. kr., og náðu því ekki áætlaðri upphæð, en munurinn er þó ekki svo ýkjamikill, einkum þegar þess er gætt, að þetta ár var innflutningur tóbaks óvenjulega lítill. Næsta ár gaf tóbakseinkasalan 200 þús. kr. arð, en víneinkasalan 160 þús. kr., fyrir utan tollinn, sem þá nam einn um ½ milj. kr. Vínfangatollur og verslunarágóði einkasalanna nemur því þetta ár hátt á 900. þús. kr., og árið 1924 er verslunarágóði tóbaks- og víneinkasölunnar um 800 þús. kr., fyrir utan alla tolla og að frádregnum upphæðum, sem lagðar voru í varasjóði verslananna.

Jeg verð nú að segja, að eftir þessari reynslu að dæma getur varla talist rjett að bera það blákalt fram, að ekki hafi fengist þær tekjur af þessum verslunum, sem ráð var fyrir gert í upphafi. Menn geta verið á móti slíkum einkasölufyrirtækjum án þess að grípa til annara eins röksemda. Menn geta lagt svo mikla áherslu á að landið reki ekki einkasölu með þessar vörutegundir, að þeir af þeim ástæðum einum greiði frv. atkv. Það verða menn að gera upp við sjálfa sig, hversu mikið stefnumál þeim finst þetta vera. Við því er ekkert að segja. En menn ættu ekki að rökstyðja afstöðu sína með því að grípa til úrræða, sem eru svo fjarri öllum sanni sem ummæli hæstv. fjrh. (JÞ) um vonbrigði manna í sambandi við tóbakseinkasöluna.

Þá má drepa á álit þeirra manna, sem andmæltu einkasölunni í upphafi, því að þeir bjuggust við enn minni fjárhagslegum árangri en formælendur hennar, og voru því enn fjær því, sem reynslan hefir leitt í ljós. Jeg hefi við hendina ræðu, sem hæstv. fjrh. (JÞ) hjelt hjer í hv. Nd. 1921, þar sem hann býst jafnvel ekki við, að vín- og tóbakseinkasala muni gefa af sjer meira en 200 þús. kr. árlega, og ennfremur minnist jeg þess, að þeir, sem taldir eru hafa bestu þekkinguna í slíkum efnum, þ. e. a. s. ýmsir meiri háttar kaupmenn, töldu alveg víst, að tóbakseinkasala gæfi ríkissjóði aldrei meira en 100 þús. kr. tekjur. Nú voru tekjur tóbakseinkasölunnar 100 þús. kr. á fyrsta ári, þrátt fyrir óvenjulega lítinn innflutning. Næsta ár voru þær 200 þús. kr., og 350 þús. kr. þriðja árið. Því er nú haldið fram, að ekki megi miða við tekjur einkasölunnar síðastl. ár, vegna góðærisins, sem þá var. Jeg get auðvitað viðurkent, að síðastl. ár var mikið góðæri, og hefir það sjálfsagt örvað neyslu tóbaks sem annara vörutegunda. En sje hinsvegar litið á innflutning tóbaks síðastl. ár, þá er ekki svo mjög fráfælandi að byggja áætlanir um framtíðina á honum að nokkru leyti.

Á sumum tóbakstegundum er innflutningurinn um 20%, en á öðrum alt að 30% minni en meðalinnflutningur áranna 1914—21, og þegar á þessa staðreynd er litið, má rjettlæta það að byggja áætlun um verslunararð einkasölunnar í framtíðinni á versluninni síðastl. ár. Auk þess ber á það að líta, að einkasalan var varla komin á rjettan rekspöl fyr en á síðasttl. ári. Tvö fyrstu árin gengu að miklu leyti til þess að selja gamlar birgðir kaupmanna og ná í ný sambönd fyrir einkasöluna. Þá er það og hverjum manni fullvel kunnugt, að árin 1922—23 voru hin mestu kreppuár á öllum sviðum verslunar og viðskifta, og samkvæmt skýrslum um neyslu þeirra vörutegunda, sem menn geta yfirleitt sparað við sig, hefir það komið í ljós, að þessi tvö ár var mun minna flutt inn af slíkum varningi en venja er til. Þess vegna er ofureðlilegt, að fjárkreppan og getuleysi almennings hafi einnig komið niður á tóbakinu, eins og öðrum vörutegundum, sem menn geta neitað sjer um, þegar í nauðir rekur.

Það er því ekki ósanngjarnt, þó að við, sem viljum halda tóbakseinkasölunni áfram um óákveðinn tíma, leyfum okkur að byggja að nokkru á verslunarafkomu síðastl. árs og getum tekið undir það með hæstv. atvrh. (MG), að einkasalan hafi gefið enn betri árangur en djarfastar vonir voru gerðar um í upphafi.

Annars finst mjer, að jeg hafi ekki í umr. hjer á Alþingi, og tæplega nokkursstaðar, heyrt aðra eins misnotkun talna eins og í umr. um þetta mál. Hv. þm. N.- Ísf. (JAJ) tókst áðan að gera allmiklar tekjur að hreint engu; svo eftirlátanlegar voru tölurnar við hann. En þó að menn sjeu ráðnir í því að greiða atkvæði með þessu frv., þá finst mjer, að menn geti gengið dálítið skemra í að rökstyðja afstöðu sína með rangfærðum tölum.

Sami hv. þm. (JAJ) hjelt því fram, að tóbak hefði reynst dýrara í höndum einkasölunnar en einstakra kaupmanna. Þessi hv. þm. (JAJ) hefir vanrækt skyldu sína á þingi 1921, þegar borið var á kaupmenn, að þeir hefðu selt tóbakspundið á 25 og jafnvel alt að 50 kr. Ef hv. þm. (JAJ) hefir verið viss um, að kaupmenn hafi ekki selt tóbak dýrara en landsverslunin, þá sýnist hafa verið skylda hans að hreyfa andmælum, þegar kaupmönnum var borin á brýn svo rándýr tóbakssala, en það hefir honum láðst, enda býst jeg satt að segja við því, að þessi ummæli um söluverð kaupmanna hafi verið á fullum rökum reist.

Hinsvegar má og vel vera, að þetta verðlag hafi ekki tíðkast nema þegar lítið var um tóbak í landinu, en þá hafa kaupmenn líka notað sjer aðstöðu sína og neyð almennings til þess að færa verð þessarar vörutegundar svo mjög fram, sem þeir frekast sáu sjer fært, og virðist auðsætt, hversu heiðarleg slík kaupmenska er.

En þó að við vonum, að aðrir eins tímar og síðustu stríðsárin sjeu ekki framundan, þá er ekki örgrant um, að kaupsýslumenn geti komið ár sinni svo fyrir borð, að tóbaksverðið verði hærra en góðu hófi gegnir eftir að einkasalan verður afnumin. Nú harma jeg fyrir mitt leyti ekki svo mjög, að tóbaksverð sje allhátt, því að jeg álít tóbaksnautn miður heppilega heilsu manna. En þó eru allmargir, einkum aldraðir menn, sem geta ekki neitað sjer um tóbak að öllu leyti. Þeim er tóbakið lífsnauðsyn, en hinsvegar kann jeg afarilla þeirri röksemd formælenda frv., sem þeir byggja meðmælin með frv. mikið til á, að samþykt þess hefði í för með sjer aukinn innflutning og því aukna neyslu tóbaks í landinu. Í þessu sambandi dettur mjer í hug saga, sem einn læknir Reykjavíkur sagði fyrir nokkru. Hann skýrði svo frá, að á síðastl. sumri hefðu komið til sín 12 æskumenn, sem allir hefðu verið meira og minna spiltir vegna tóbaksnotkunar. Þeir hefðu verið taugaveiklaðir og með hjartabilun, og taldi hann aðalorsökina tóbaksreykingar. Jeg held því, að menn ættu ekki að gera gyllingar til þess, að tóbaksnautn aukist í landinu. Hún er nógu mikil eins og sakir standa. Og ef hægt er að sameina þetta tvent: að ríkissjóður fái sínar áætluðu tekjur af tóbakinu, en þrátt fyrir það aukist neysla þess ekki, þá held jeg, að það væri vel farið. Ef ríkissjóður þyldi, þá er jeg þeirrar skoðunar, að hækka bæri tóbakstollinn að mun, svo að notkun tóbaks yrði langtum minni en nú, en auðvitað er þetta ekki unt eins og sakir standa, þar sem byggja verður á innflutningi þessarar vörutegundar sem einum aðaltekjustofni ríkissjóðs.

Einu atriði enn get jeg ekki gengið framhjá. Það er smyglunarhættan, sem sífelt er stagast á í hv. deild. Því er haldið fram, að síðan landsversluninni var fengin í hendur einkasala á tóbaki, þá hafi óleyfilegur innflutningur þess aukist stórkostlega. Jeg er þessum málum persónulega ókunnugur. En mjer skilst þeir einkum halda þessu á lofti, sem ólmastir vilja afnema einkasöluna, m. ö. o., þessar raddir eru háværastar í hópi kaupmanna. Við 1. umr. var gerð hjer fyrirspurn, hverjir það væru einkum, sem smygluðu tóbaki, ef það væru ekki kaupmenn. Jeg heyrði þessari spurningu svarað þannig, að það væru einkum ýmiskonar ferðamenn, sem flyttu tóbak óleyfilega inn í landið. Jeg held nú, að þessi staðhæfing sje svo fjarri öllum sanni, að ekki taki því að andmæla henni mörgum orðum. Þó að ferðamenn hefðu nú eitthvað af tóbaki með sjer í land, þá gæti aldrei borið á því neitt að ráði, nema þeir seldu öðrum þetta smyglaða tóbak. En nú er alt tóbak, sem selt er frá landsversluninni, merkt, og væri því mjög áberandi, ef ómerkt tóbak væri haft á boðstólum, enda munu þess ekki dæmi, að um slíkt hafi vitnast

En þó að gengið sje inn á þessar röksemdir fylgjenda frv., þá er óskiljanlegt, hvernig þeir komast að niðurstöðunni: að smyglun minki, ef horfið verður frá einkasölufyrirkomulaginu. Þá verður alt tóbak ómerkt, tollar hækkaðir að stórum mun og innflutningur algerlega frjáls. Þetta sýnist mjer margföld hvöt fyrir menn til að reyna að smygla tóbaki, þar sem það verður svo miklu auðveldara eftir að einkasalan verður lögð niður en áður. Því enda þótt hv. flm. ætli sjer að auðkenna alt tóbak, sem tollur er greiddur af, þá fæ jeg ekki skilið, að það verði kostnaðarlítið umstang, ef nokkur trygging á að vera fyrir því, að menn geti ekki skotið meira og minna undan þeirri auðkenningu.

Loks er þess að geta, að þessi ummæli koma í bág við alt það, sem kaupmenn hafa áður sagt hjer á þingi um þessi mál. Þeir hafa jafnan haldið því fram, sem og er skiljanlega rjett, að því lægri sem tollar sjeu, því minni sje hvöt manna til smyglunar. Nú er þessu snúið öfugt og því haldið fram, að þeim mun hærri sem tollarnir sjeu, því minni sje hætta á óleyfilegum innflutningi. Það er nógu gaman að sjá, hvernig þessar röksemdir íhaldsins stangast á eins og illvígir hrútar.

Okkur andmælendum frv. hefir verið hallmælt fyrir litla vinsemd í garð kaupmanna. En aldrei hefði okkur komið til hugar að bera þeim eins illar hvatir á brýn og hv. formælendur frv. hafa gert, og eru þeir þó ýmist sjálfir úr flokki kaupmanna eða nátengdir þeim að öðru leyti. Væri jeg kaupmaður, myndi jeg kunna þeim litlar þakkir fyrir ummælin um smyglunarhættuna t. d., nema jeg ætti þau skilin. (SigurjJ: Kaupmenn seldu þó ódýrara tóbak en landsverslun). Ódýrara?! Jeg var einmitt að sýna fram á, hversu mjög tóbak hefði verið dýrara í höndum kaupmanna en landsverslunar. En þetta innskot hv. þm. (SigurjJ) sýnir mjög ljóslega, hversu röksemdirnar eru mönnum einkar eftirlátar, þegar eitthvað þarf að hamra fram, hvað sem tautar.

Jeg skal ekki fjölyrða frekar um mál þetta að sinni. Jeg býst við, að frv. nái samþykki háttv. deildar, hvað sem öllum röksemdum líður. Sjerstaklega vildi jeg vekja athygli hv. þdm. á því, hverjar vonir menn hefðu gert sjer um ágóða af einkasölunni, í sambandi við ummæli hæstv. fjrh. (JÞ).