22.04.1925
Neðri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2994 í B-deild Alþingistíðinda. (1873)

50. mál, tollalög

Magnús Torfason:

Það er þessi brtt., sem er tilefnið til þess, að jeg stend upp. Jeg þarf ekki að mæla margt. Tillagan er komin fram af tilefni, sem hæstv. fjrh. gaf, en ekki vegna þess, að jeg hefði á móti hinni framlengingunni. Vonast jeg til að geta stutt hana á sínum tíma. En þessi frestur hefir það meðal annars til ágætis, að það er hægara að gera landsverslunina upp á hagkvæman hátt fyrir ríkissjóð. Jeg veit, að hæstv. fjrh. lítur á það. Jeg legg því fremur áherslu á þetta, sem jeg vona, að krónan hækki og árgæska haldist. Jeg skal geta þess, að sumir, sem jeg hefi talað við, vildu miða við 1. apríl 1927. Jeg hjelt við þetta vegna þess, að þá er óhægara að líta svo á, sem brtt. sje pólitísk. Hún er það ekki.

Út af andmælum gegn ræðu minni þarf jeg ekki margt að segja. Hv. 3. þm. Reykv. (JakM) vildi gera mig að jafnaðarmanni.

Jeg tek mjer það ekki til. Orð mín gáfu enga ástæðu til þess. Annars verð jeg að segja, að jeg væri í góðum fjelagsskap, þó jeg stæði nærri jafnaðarmönnum um ríkisverslun. Annars er málið ríkissala eða ekki ríkissala ekki á dagskrá, og því óþarft að ræða um það að sinni. Mitt álit er það, að vonlaust sje að taka upp ríkisverslunarfyrirkomulagið nema siðferðisþroski þjóðar og þings vaxi mikið. Býst jeg heldur ekki við, að við getum komið slíku á, fyr en það er komið í nágrannalöndunum. Jeg hefi ætíð litið á stefnu jafnaðarmanna með meiri skilningi en jeg hefi orðið var við hjá ýmsum öðrum, og teldi það ekki saka, þó meir væri að því gert.

Hv. frsm. meiri hl. (JakM) mótmælti því hjá mjer, að gróði kaupmanna kæmi ríkissjóði ekki til góða. Hv. frsm. veit, að jeg er form. yfirskattanefndar og að jeg því veit, að ríkissjóður græðir, ef borgararnir græða. En framtal til skatts verður að vera nákvæmara en nú er, ef ríkissjóður á að græða á gengisgróðanum.

Þá vildi hann segja, að hjer væri annaðhvort að gera, að vera með eða móti frjálsri verslun. En um tóbaksverslunina álít jeg alt það standa, sem jeg hefi haldið fram, þótt ekki sje fylgt ríkisverslun út í æsar. Svo má geta þess, að landsverslunin getur leitt gott af sjer á ýmsan hátt, t. d. með því að koma upp tóbaksiðnaði í Reykjavík, sem ætlunin mun hafa verið.

Um smyglunina skal jeg ekki fjölyrða að þessu sinni. Það hefir verið mikið um hana talað, og það, sem fram hefir komið viðvíkjandi henni, hefir ekki hrakið mínar ástæður. Þær ástæður, sem hv. frsm. meiri hl. (JakM) taldi, hnigu allar í sömu átt og sýndu, að hann hafði ekki mikið traust á tolleftirliti hæstv. stjórnar.

Hæstv. fjrh. (JÞ) þarf jeg ekki að svara miklu. Hann skaut sjer að baki Kára, bar hv. frsm. meiri hl. (JakM) alveg fyrir sig. Hann vildi aðeins leiðrjetta eitt atriði í minni fyrri ræðu, sagði, að það væri ekki sjer að kenna, að enginn tollauki af áfengi hefði komið fram. Jeg get ekki fallist á, að þetta sje rjett. Jeg held, að hæstv. fjrh. hafi skilið það vel, að skilyrði þess að fá tollauka af áfengi var það, að sú verslun væri sameinuð landsversluninni. En mjer er ekki kunnugt um, að hæstv. fjrh. hafi stutt neitt að því. Þvert á móti. Það voru hv. flokksbræður hans, sem drápu frv. í hv. Ed. Og hæstv. fjrh. gerir of lítið úr sjer, er hann segir, að hann hafi ekki getað ráðið örlögum málsins í hv. Ed.; svo mikils má hann sín innan síns eigin flokks. (Fjrh. JÞ: Það er hv. þm., sem gerir of mikið úr mjer). Jeg held, að það sje satt að segja ómögulegt að gera of mikið úr hæstv. fjrh.; til þess skortir mig ímyndunarafl. Hæstv fjrh. endaði með skopyrði, svo sem siður er góðra ræðumanna. Svaraði hann þar fyrir aðra en sjálfan sig, því hann veit vel, að orð mín voru ekki honum ætluð. En honum fórst ekki hönduglegar en svo, að svar hans var þetta gamla: Þú getur verið það sjálfur. Þegar jeg var drengur, voru slík ummæli talin lítt gáfuleg. Hæstv. fjrh. er mjög næmur fyrir því, að höfð sjeu þingleg orð. Það orð, sem jeg hafði og hann fann að, var haft eftir mesta ræðuskörungi þingsins. Sagði hann það fyrir fám dögum, og virtist mjer hæstv. fjrh. taka því þá með brosi. (Fjrh. JÞ: Það er ekki satt. Jeg hefi ekki heyrt það). Ekki skal jeg um það deila, en jeg man ekki betur en hæstv. fjrh. gerði það. Jeg skal nú ekki mæða hæstv. fjrh. með því að taka orðið upp, en jeg veit, að honum fellur betur, ef eitthvað þessháttar er sagt á dönsku. Jeg vil þá minna hæstv. fjrh. (JÞ) á, að það þykir enn verra að bjóða „stinkador“ en reykja hann. Þetta frv. er sannkallaður „stinkador“. Og jeg er viss um það, að þjóðin hefir ekki fyr látið þennan „stinkador“ upp í sig en hún hrækir honum út úr sjer og fleygir niður í rennusteininn.