22.04.1925
Neðri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3006 í B-deild Alþingistíðinda. (1877)
50. mál, tollalög
Frsm. meiri hl. (Jakob Möller):
Jeg finn enga ástæðu til að svara hv. 2. þm. Árn. (JörB). Hann hefir aðeins sannað, að jeg hefi haldið því sama fram í ræðu minni síðast sem á þinginu 1921. Og þar sem alt hefir reynst rjett, sem jeg hjelt fram þá, finst mjer ekki, að jeg hafi ástæðu til annars en að láta mjer vel líka.