22.04.1925
Neðri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3012 í B-deild Alþingistíðinda. (1879)
50. mál, tollalög
Atvinnumálaráðherra (MG):
Um fyrirspurn hv. þm. Str. (TrÞ) um steinolíueinkasöluna, þá vil jeg leiða athygli að því, að jeg hefi þegar áður lýst því yfir, að það er ekkert um það mál ákveðið, og það endurtek jeg hjer. Hann verður að láta sjer nægja það, því að hann getur ekki búist við, að jeg segi frá því, hvaða hugmyndir jeg kunni að hafa um þetta mál. Viðvíkjandi vonunum um tóbakseinkasöluna vil jeg benda á það, að þegar jeg talaði um, að vonirnar hefðu ræst, talaði jeg um ágóðann af einkasölunni sjálfri. Það fer ekki í bága við það, sem hæstv. fjrh. (JÞ) sagði, því að hann tók tóbakstollinn með, og því verður ekki neitað, að tollurinn hefir reynst minni en áætlað var. Þetta er munurinn á okkar útreikningi, og jeg hefi aldrei heyrt hæstv. fjrh. segja tekjurnar af einkasölunni minni en áætlað var 1921. Jeg skal ekkert um það segja, hvað þeir hv. þm., sem hv. þm. Str. nefndi, treysta mjer mikið. Þeir hafa aldrei gefið neina yfirlýsingu um það, að minsta kosti ekki í mín eyru; en það hafa þeir kannske gert í eyru hv. þm. Str. En út af brennusögunni vil jeg aðeins segja það, að hv. þm. Str. (TrÞ) finnur altaf í Sturlungu einhver dæmi, sem hann getur notað. Jeg hefi bent á það áður, að það er dálítið undarlegt, að hann skuli altaf finna nægilegt efni til að sanna með sitt mál úr sögu mestu ódrengskaparaldar sem yfir Ísland hefir komið. Jeg kippi mjer ekki upp við, þó að hv. þm. Str. líki mjer við föðurmorðingja eða aðra slíka glæpamenn, því að jeg er orðinn svo vanur slettum úr þeirri átt. Þá læt jeg útrætt um þetta mál, en fer að eins og við 2. umr., að jeg greiði ekki atkv. Það má hver leggja það út eins og hann vill.