28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3014 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)
50. mál, tollalög
Guðmundur Ólafsson:
Jeg ætla ekki að segja mikið um þetta mál, en af því að jeg sá, að enginn bað um orðið, þá hjelt jeg, að það væri rjett að hafa svo mikið við málið að segja fáein orð við 1. umr. þess hjer, af því að það hefir verið rætt svo mikið í hv. Nd. Lög þessi voru samþykt árið 1921. Þá bar stjórnin fram frv. um það, að ríkið tæki að sjer einkasölu á tóbaki. Það var af því að ríkissjóð vantaði tekjur og hún áleit að tiltækilegra væri, að ríkissjóður tæki að sjer einkasölu á tóbaki, heldur en á þann hátt að ná tekjunum með tolli, sem þyrfti að hækka til mikilla muna, ef jafnmikið ætti að nást. Það, sem þá gerði, að jeg var með einkasölunni, var það, að mjer þótti hún betri en að hækka tollinn stórkostlega. Helstu andmælin voru þau, að einkasalan kæmi svo illa við hugi manna og að margir hjeldu, að það mundi vaka fyrir mönnum að fleira skyldi á eftir fara, og það var ekki hægt að neita því, að um það leyti voru fyrir þinginu frv. um einkasölu á fleiru, t. d. um einkasölu á korni, en sú hefir reyndin á orðið, að jeg hefi aldrei verið hræddur um það, að þingið myndi svo skipað á nálægum tímum. að það myndi hafa mikinn byr, einkasala á mörgum vörutegundum. en annars álít jeg ekkert svo óheyrilegt við það, þótt ríkið hafi einkasölu á vöru eins og tóbaki, sem ætlast er til, að gefi ríkinu tekjur. Þetta var samþykt á þinginu, eins og allir vita og með því var ætlast til, að ríkissjóður hefði 200 þús. kr. tekjur á ári, og það mun hafa staðið sig, að tekjurnar hafi orðið síst minni tvö fyrri árin en búist var við; mjög mikið hærri síðasta árið af þeim 3 árum, er einkasalan hefir staðið. Svo man jeg ekki til, að raddir hafi komið fram um það að afnema þessi lög fyr en í fyrra í hv. Nd., en þá var frv. felt þegar í þeirri deild og kom aldrei hingað. En það, sem mjer þykir einkennilegast við þetta, er það, að þeir sem þá voru mestir mótstöðumenn þess, að tóbakseinkasalan væri lögð niður, eru nú ýmist flm. eða fylgismenn frv., þegar tekið er tillit til þess, að árið í fyrra gaf hvað mestar tekjur og að einn hv. þm. sagði í fyrra, að hann væri með tóbakseinkasölunni til þess að fá að sjá að ríkinu yrði tjón að því; honum gekk nú það til. En þegar hann og fleiri hv. þm. sjá að einkasalan hefir veitt miklu meiri tekjur nú, þá koma þeir með frv. um að afnema einkasöluna. Þetta er að minsta kosti mjög einkennilegt og sýnir, að engu skiftir inn fyrri skoðanir manna í þessu máli. Nú eru það 6 menn úr stjórnarflokknum, sem flytja þetta frv., en í fyrra einn einstakur þm., sem heyrir til mjög fámennum flokki í þinginu, svo að jeg vil halda, að aðrar málalyktir nú komi af því, hverjir það fluttu nú og hver það flutti í fyrra. Vegna þess, hvað þessi einkasala hefir gefið miklu meiri tekjur á síðastl. ári heldur en áður, og þegar svo er farið að fara um mál, að það skiftir aðallega máli, hver flýtur þau hvort þau ganga fram eða ekki, líst mjer ekki á og þó að jeg búist ekki við, að þetta þing hafi heiður af mörgum málum. Þá verður það hvað síst þetta mál.
Það mætti miklu meira segja um þetta en af því að jeg er ekki einn af þeim þingmönnum, sem leggja það í vana sinn að lengja umr., þá vil jeg ekki segja meira. (SE: Hæstv. stjórn hefir nógan tíma). Jeg hefði kannske sagt meira, ef bæði hæstv. atvrh. (MG) og hæstv. fjrh. (JÞ) hefðu verið viðstaddir; en þeir eru hvorugur við. Framkoma þeirra er nokkuð óviðkunnanleg í þessu máli og sýnir nokkuð eindrægni hæstv. stjórnar innbyrðis.