28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3047 í B-deild Alþingistíðinda. (1896)

50. mál, tollalög

Einar Árnason:

Jeg hafði ekki hugsað mjer að tala neitt um málið við þessa umr., en hv. þm. Vestm. (JJós) hefir komið mjer til þess að standa upp. Jeg gat ekki betur skilið en svo, að hann slægi því föstu, að hjer væri einungis um að ræða. Að þeir, sem vildu halda áfram einkasölufyrirkomulaginu á tóbaki, vildu stefna að því, að ríkið tæki verslun með sem flestar vörutegundir í sínar hendur. Þessu vil jeg mótmæla. Fyrir mjer hefir þetta aldrei verið annað en fjárhagsatriði, og er ekki enn. Ef hv. þm. Vestm. (JJós) vill halda hinu fram, má benda honum á, að í ýmsum löndum er höfð einkasala á vissum vörutegundum, t. d. tóbaki, án þess nokkrum detti í hug að segja, að þeir, sem því ráða, vilji hafa einkasölu á öllum vörutegundum. Háttv. þm. (JJós) talaði um, að með einkasölufyrirkomulaginu á tóbaki væri verið að ganga á rjett borgaranna í landinu. Það er mesti barnaskapur að halda slíku fram. Ef hagsmunir einstaklinga og ríkisins rekast á, þá er sjálfsagður hlutur, að hagsmunir einstaklinganna víki. En að því er snertir tóbaksverslunina, þá viðurkenni jeg ekki, að neinir vissir menn eigi rjett á henni öðrum fremur. Það má benda á eitt og annað, sem einstakir menn gætu vel haldið uppi, en ríkið rekur þó, án þess nokkur mæli á móti. Hv. þm. (JJós) sló því föstu, án þess að færa fram nokkur rök, að mikill hluti þjóðarinnar væri móti einkasölu á tóbaki. Jeg held, að það sje alveg ófær leið fyrir okkur hv. þm. Vestm. (JJós) að þræta um þetta. Ef ganga ætti úr skugga um það, yrði að bera málið undir þjóðina. og þá leið hefði jeg gjarnan viljað fara. Þá hjelt hv. þm. (JJós) því fram, að þetta frv. væri ekki fram komið fyrir undirróður neinna einstakra kaupmanna eða tóbakssala. Jeg skal ekki fullyrða neitt um þetta. En jeg er hræddur um, að það yrði „mikill hluti þjóðarinnar“, sem ekki tryði þessum orðum hv. þm. Vestm. (JJós).

Það hefir verið vikið að því, að hjer væru á dagskrá mörg mál og stór, og óviðeigandi væri því að halda langar ræður og ekki til annars en að tefja málin. Þetta er líklega rjett, ef endilega þarf að ljúka dagskránni í dag. En jeg verð að segja, að jeg tel tæplega forsvaranlegt, að öll stærstu deilumál þingsins, sem flækst hafa í Nd. mestan hluta þingtímans, sjeu afgreidd í þessari deild á einum degi. Jeg kysi heldur, að hæstv. stjórn hefði haft þau tök á vinnubrögðunum í hv. Nd., að þessi deild hefði verið búin að fá frv. fyrir löngu. Jeg get ekki felt mig við, þó að hæstv. stjórn hafi hjer undirtökin, að hún kúgi deildina til þess að afgreiða málin á óforsvaranlega stuttum tíma. Jeg harma ekki, þó að dagurinn líði án þess öll þessi mál sjeu afgreidd. Jeg tel þau ekki öll slík þjóðþrifamál, að ástæða sje til þess að greiða fyrir þeim, og ekki er jeg ánægður yfir því, að hjer sje fundur haldinn fram á nótt, einungis til þess að koma vondum málum áleiðis.