28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3050 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)
50. mál, tollalög
Sigurður Eggerz:
Það kom fram hjá hæstv. stjórn, þegar bankamálið var hjer til umræðu, að tími mundi vinnast til þess að ræða það ítarlega hjer í þinginu. Það verður að skiljast svo, að hún ætli sjer að halda þinginu hjer lengur en búist var við. Jeg vil skjóta þeim ummælum til hæstv. forseta, að það getur ekki verið áform hans að ljúka í dag öllum þeim málum, sem nú eru á dagskrá. Það er óhugsandi, að þm. hafi þrek til þess að ræða öll þau mál í dag svo sem þarf. Þar sem hjer er um stórmál að ræða og „princip“-mál, er sjálfsagt, að Ed. eigi kost á ítarlegum umræðum ekki síður en hv. Nd. Úr því að álitinn var nægur tími til þess að ræða bankamálin, þarf víst ekki að hraða þessu svo mjög. Jeg játa, að jeg hefði ekki þurft að standa upp til þess að gera grein fyrir afstöðu minni. Jeg gæti víða í Alþingistíðindunum sýnt afstöðu mína til einokunar yfirleitt. Jeg barðist fast á móti korneinkasölunni, sem um eitt skeið átti að klófesta alt. (SJ: Hví talar hv. þm. um einokun?). Síðan hafa komið ýms einkasölufrumvörp. Það hefir ekki þótt vera hægt að bjarga landsbúum með öðru móti. Jeg hefi oft sýnt fram á, að frjáls verslun væri miklu betri. Jeg fletti upp í þingtíðindunum með ánægju og sje, að jeg hefi átt í harðri baráttu við þá stjórn, sem kom á tóbakseinkasölunni. Það er gleðilegt fyrir mig, sem hefi verið í minni hl., að sjá nú, að frjáls verslun hefir meiri hluta í þinginu og að útsjeð er um örlög tóbakseinkasölunnar. Jeg hefi altaf verið á móti einokun, í hvaða mynd, sem hún birtist, og álitið hana neyðarúrræði. Að jeg fylgdi steinolíueinkasölunni, var af þeirri ástæðu, að sú verslun var þegar komin í hendur einokunarhrings, og jeg orðaði þá afstöðu mína svo, að með illu skyldi ilt út reka. Um einkasöluna á Spánarvínum er það að segja, að þar varð ekki litið á málið frá verslunarlegu sjónarmiði, heldur hvernig best yrði dregið úr því, að of miklum vínstraumi yrði veitt yfir landið.
Jeg hefi altaf verið á móti einokun af því, að jeg tel of mikla áhættu að leggja slík verslunaryfirráð í eins manns hönd. Það er sama, hversu góður maðurinn er. Ef honum mishepnast, verður tapið of stórkostlegt. Ef verslunin er frjáls, þá er það eigingirninnar sterka hvöt, sem leitar eftir sem bestum innkaupum til þess að halda til jafns við keppinautana. Ef þessi eina hönd, sem falið er að gera innkaup fyrir heila þjóð, er ekki áreiðanleg, geta afleiðingarnar orðið mjög alvarlegar. Þessi ástæða er ein nægileg til þess að taka afstöðu á móti einkasölufyrirkomulagi. Enginn þarf að harma tekjumissi fyrir ríkissjóð, þó að einkasalan sje lögð niður, því auðvitað má með tollum ná öllu því sama og náð hefir verið hingað til með verslun og tollum.