28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3052 í B-deild Alþingistíðinda. (1899)

50. mál, tollalög

Sigurður Jónsson:

Það er svo með mig, að jeg er ekki fær um að halda langar ræður, en það, sem kom mjer til að biðja um orðið, var það, sem haft var eftir hæstv. forseta (HSteins) um að þau mál, sem nú eru á dagskrá, skyldu afgreidd í dag. En það get jeg ekki unað við, að mjög mikið sjeu takmarkaðar umr. í þessari hv. deild, því að það má ekki minna vera en að þessi deild fái svo sem þá af þeim ræðum, sem falla um málin, því hún er þó 1/3 þingsins. Það er að vísu ýmislegt, sem jeg vil benda á í þessu máli, en jeg get slept því, en vil aðeins halda því fram, að það sje sagt út í bláinn, að meiri hluti kjósenda sje á móti tóbakseinkasölu. Hinsvegar skil jeg það vel, að mótstöðumenn hennar hafa ekki fært nein rök fyrir máli sínu, nema það eitt, að það sje ekki nein nauðsyn á henni fyrir ríkissjóð, en nokkuð mun tollurinn þurfa að vera hár, til þess að jafna upp. Jeg vil ekki leiða neinum getum að því, hvað stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar muni vilja færa fram til að rökstyðja mál sitt, en nokkuð mikið kapp þykir mjer þeir sýna í sumum málum hjer á þinginu, og dettur mjer í hug það, sem Magnús berbeinn sagði, þegar vinir hans töluðu um það, að hann auðkendi sig mjög og sækti óvarlega fram í orustum: ,,Til frægðar skal konung hafa, en ei til langlífis.“