07.05.1925
Efri deild: 70. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3103 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)
50. mál, tollalög
Sigurður Eggerz:
Það eru aðeins örfáar athugasemdir, sem jeg vil leyfa mjer að bæta nú við þau fáu orð, sem jeg sagði um þetta mál við 1. umr. Mjer er það alveg óskiljanlegt, að ekki megi ná inn fyrir ríkissjóð eins miklum tekjum af þessari vörutegund með tollum einum eins og nú með tollum og verslun. Mjer sýnist, að hjer sje aðeins um reikningsdæmi að ræða, þar sem nokkurn veginn er hægt að vita, hve mikill innflutningur á tóbaki er. Mjer virðist því, að í rauninni snúist málið aðeins um það aðal-„princip“, hvort heppilegra er að hafa frjálsa verslun eða einokun. Það eitt er aðalatriðið.
Að því er það þá fyrst snertir, hvernig landsverslunin hjer með tóbak hafi verið rekin, þá er það svo erfitt mál, ef rannsakað skal til hlítar, að það verður að minnsta kosti ókleift fyrir þingnefnd. Það er ekki nóg að sýna góða niðurstöðu, því að mikil mistök geta hafa átt sjer stað þrátt fyrir það. Til þess að kveða upp rjettan dóm um reksturinn, þarf að rannsaka nákvæmlega öll innkaup, sem gerð hafa verið á hverjum tíma, og hvort ekki hefði verið hægt að gera betri innkaup. Er það mikið verk og mjög erfitt fyrir menn að rannsaka það nákvæmlega. Jeg segi þetta ekki í því skyni, að jeg vilji draga i efa, að landsversluninni hafi verið vel stjórnað. Jeg fyrir mitt leyti hefi altaf borið traust til þess manns, sem henni veitir forstöðu, en jeg vildi aðeins benda á að það er ekki hægt án mikillar og ítarlegrar rannsóknar að kveða upp fullan dóm um hvernig verslunin hefir verið rekin.
Það sem mjer skilst að hljóti að ráða úrslitum í þessu máli, þegar tekið er tillit til þess hreint fjárhagslega. er það, hvort menn ætla, að einkasalan komist að betri innkaupum en frjáls verslun. Það eru innkaupin, sem ráða eiginlega niðurstöðunni og skera úr um það, hvort er betra. Frá þessu atriði kem jeg inn á hina almennu spurningu, hvort yfirleitt sje heppilegra fyrir verslun þjóðarinnar, að hún sje rekin sem einkaverslun eða að hún sje frjáls. Því jeg býst sem sje ekki við, að neinn dragi það í vafa, að það megi ná sömu tekjum í ríkissjóð með tollum einum. — Þá kem jeg að því sama atriði þessa máls, sem jeg hefi altaf verið hræddur við og hefir gert það að verkum, að jeg hefi frá byrjun staðið ákveðinn gegn einokuninni. Jeg er sem sje svo hræddur við að leggja slíkt vald í eins manns hönd og gert er með þessu móti, að láta einn mann gera innkaup fyrir alt landið. Því þótt fá megi góðan og samviskusaman mann, þá er þess að gæta. að ef honum mistekst, þá verður það til stórkostlegs tjóns. Þetta er hinn mikli ókostur við einkasölufyrirkomulagið. Ef aftur verslunin er á fleiri en einni hönd, þá verða að vísu mistökin fleiri, en þau skaða minna, því að svo fer, að verslunin færist meir og meir yfir á þá, sem sýnt er að gera best innkaupin, og þeir, sem lakastir eru, geta ekki til lengdar staðið á móti. Jeg vil hjer benda á það, sem hv. frsm. minni hl. (JJ) sagði. Hefir ekki reynslan sýnt, sagði hann, að kapítölin reyna að sameinast og að það eru búnir til hringar til þess að gera sem best innkaup? Ef við nú förum til reynslunnar, þá er það rjett, að hún „trusts“ eða hringar. En með hvaða markmiði? Því markmiði einmitt að útiloka frjálsu samkepnina, til þess að þeir einir geti tekið allan gróðann; það er einmitt þegar kapítölin fara þessa leið, að þau eru að reyna að útiloka hina frjálsu samkepni. Það er af þessu að einokunarhringarnir eru skaðvænlegir.
Það var annað merkilegt atriði, sem hv. frsm. minni hl. (JJ) tók fram. Hann sagði, að á afskektum stöðum og þar, sem samgöngur væru erfiðar, þar yrðu menn illa úti að því er snertir vöruverðið. Þetta er alveg rjett. Jeg hefi sjeð þess dæmi hjer á landi. En af hverju kemur það? Það kemur af því, að á þessum stöðum kemst hin frjálsa samkepni ekki að, og að sá maður, sem er á staðnum, getur leyft sjer að gera alt, sem hann vill í því að setja okurverð á vörurnar. Jeg held því, að alt bendi í þá átt, að verslunin hjer á landi eigi að vera á grundvelli frjálsrar verslunar.
Mjer skildist, að hv. frsm. minni hl. (JJ) teldi, að það væri aðallega fyrir þrýsting frá kaupmönnunum, að nú ætti að fara að gegnumfæra frjálsa verslun í landinu. Jeg skal ekki dæma um það, hvaða áhrif kaupmenn kunni að hafa haft á hina og þessa í þessa átt, en hitt hygg jeg, að hv. þm. (JJ) dragi ekki í efa, að ástæða mín til þess að vera með frjálsri verslun fyr og síðar muni ekki stafa frá kaupmönnum. Jeg býst við að honum sje það fullkunnugt að jeg er ekkert eftirlæti kaupmannanna. Mjer þykir gaman að taka þetta fram, af því að jeg hefi altaf verið með frjálsri verslun, en það hefir sýnt sig hvað eftir annað, að kaupmenn hafa horn í síðu minni, og bendir líka til hins, að afstaða mín er þannig af því að jeg tel þetta vera hið rjetta. Jeg get líka nefnt, að jeg hefi staðið fast með bannlögunum, en bannmenn hafa altaf úthúðað mjer. Einn bannmaðurinn sagði meira að segja, að jeg myndi altaf standa skömminni íklæddur fyrir afskifti mín af því máli. Þetta sýnir, hve þakklætið er mikið venjulega í þessum heimi.
Mjer skildist á ræðu hv. frsm. minni hl. (JJ), að hann hefði enga tröllatrú á kaupmönnunum hjer eða annarsstaðar. Það þýðir ekki að tala um það. En það vill svo til, að það eru til aðrir keppinautar til að taka þátt í hinni frjálsu samkepni. Þess vegna ætti hv. þm. (JJ) ekki að vera hræddur við hina frjálsu verslun. Því þó hann treysti ekki kaupmönnunum og teldi að þeir mundu setja á okurverð, þá væri það einmitt til hagsmuna fyrir samvinnufjelögin; þá gætu þau blómgast hvað mest í skjóli þessa mikla gróða. M. ö. o. frjáls samkepni heldur sjer sjálf í hinum rjettu skorðum. Ef góðir og rjettsýnir menn reka verslunina, þá útiloka þeir smámsaman hina verri frá allri samkepni.
Hv. frsm. minni hl. (JJ) mintist í þessu sambandi á þau einokunarfrv., sem einn látinn, mikill og merkilegur stjórnmálamaður kom fram með hjer á landi. Það er rjett, sá maður kom fram með frv. um einkasölu á kolum og salti o. fl. En þau mættu ekki góðu hljóði hjer og gengu ekki í gegn. Enda er það engin sönnun fyrir neinu máli, að ákveðinn maður hafi flutt það. Ef jeg ætlaði mjer að „kritisera“ þennan látna mikilhæfa stjórnmálamann, sem á var minst, þá mundi jeg einmitt draga fram þessar hliðar sem hinar veiku hliðar á hans pólitísku starfsemi.
Og það er vitanlegt, að maður, sem hefir jafnmikil afskifti af öllum stjórnmálum og hann hafði hjer, á sínar veiku hliðar eins og allir menn aðrir, hversu miklir og ágætir sem þeir eru.
Háttv. þm. (JJ) virtist gera allmikið úr því, að skoðanabreytingar væru að verða hjer á Alþingi. Mig rekur minni til, að jeg hefi við annað tækifæri sagt honum það, að það rekur vanalega að því, að þær skoðanir, sem rjettar eru, sigra, þó þær komist í minni hluta um hríð. Þeir menn, sem eru sanngjarnir, beygja sig að lokum fyrir hinum rjetta málstað, þegar honum er rjettilega og nógu oft haldið fram. Í þeirri þingsögu, sem jeg á að baki, hefi jeg sjeð það oftlega, að mál, sem mættu mikilli mótspyrnu í fyrstu, urðu seinna hin sterku málin, sem sigruðu. Jeg trúi því, að þetta sje eitt þeirra.
Eins og jeg tók fram áðan, er jeg hræddur við að búa til alt of mikið af einokunum hjer. Jeg er, auk þess sem jeg tók fram áðan, hræddur við þær klíkur, sem myndast í kringum slíka einokunarverslun, sem, þó ekki beri á því hjer enn, geta síðar meir orðið áhrifamiklar og haft óholl og einhliða peningaáhrif á stjórnmálalíf landsins. Mig langar ekki til að búa til fleiri klíkur en fyrir eru. Jeg skal svo ekki fara um þetta fleiri orðum. Eins og jeg tók fram fyr, deili jeg ekki um það; það er svo sjálfsagt, að hægt er að ná eins miklu fje í ríkissjóðinn með tollum eins og með einokun. Það er blátt áfram reikningsdæmi, og annað ekki. Það eina, sem um er að ræða, er það, hvort menn trúa meira á einokun eða frjálsa verslun. Ef líkindi eru til þess, að hin frjálsa verslun geri betri innkaup, þá er það ágóði fyrir landið í heild. Mín trú er það, að landinu sje betur borgið í höndum frjálsrar verslunar, og jeg vona, að þeir verði æ fleiri dag frá degi og ár frá ári, sem taka þá sönnu trú.