09.05.1925
Efri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3114 í B-deild Alþingistíðinda. (1912)
50. mál, tollalög
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Við 2. umr. þessa máls talaði hv. 1. landsk. (SE) nokkur orð. Skildi jeg mál hans svo, að aðalatriðið í þessu máli væri það, hvernig innkaup á tóbaki væru. Ef landsverslunin kæmist að betri innkaupum, þá ætti hún að halda áfram. Jeg álít, að jeg hafi hjer áður sannað fullkomlega, að svo er. Og jeg hefi einnig bent á það áður, að um allan heim slá kaupsýslumenn sjer í hringa í því skyni að fá betri kaup, með því að gera þau í stórum stíl. Ef þessir menn eru ekki á villuspori, þá virðist augljóst, að hjer stendur landsverslunin betur að vígi en einstakir kaupmenn. Hv. 1. landsk. (SE) talaði um daginn um reynslu veraldarinnar í bankamálunum. Þetta, sem jeg nú hefi sagt, er reynsla veraldarinnar í viðskiftamálunum. Fyrir stríðið voru hringar þessir einkum þektir í Ameríku, en hafa eftir styrjöldina breiðst út um alla Evrópu og jafnvel teygt sig hingað til lands, enda þótt ekki hafi borið mikið á þeim enn.
Þá vil jeg víkja lítið eitt að hæstv. fjrh. (JÞ). Hann gerði sig sekan í þeirri vísvitandi villu að byggja framtíðaráætlun um tóbakseinkasöluna á meðaltalsfjárhag síðustu þriggja ára. Jeg vil ekki þreyta menn með neinum endurtekningum, enda er margsannað, að þetta er hin mesta fjarstæða. Tóbakseinkasalan tók til starfa á krepputíma, er miklar birgðir tóbaks voru og fyrirliggjandi í landinu hjá einstökum kaupmönnum, er versluðu með þær alt fyrsta starfsár einkasölunnar, og jafnvel lengur. Það kemur því ekki til mála að telja fyrsta starfsárið með í þessum útreikningi, enda hefir hvað eftir annað verið viðurkent af andstæðingum einkasölunnar, að ekki væri rjett að gera svo, enda þótt nú kveði við annan tón.
Hæstv. fjrh. hefir játað, eins og rjett er, að tekjur af tóbakstolli eins og hann er nú myndu í frjálsri verslun verða minni en gróði landsverslunar. Því á nú að demba yfir nýjum tolli og auka með því tollsvikahættuna í landinu gífurlega. Það merkjafyrirkomulag, sem lagt er til, að viðhaft verði, er fyrst og fremst tæplega framkvæmanlegt, og ef það yrði framkvæmt, myndi það verða svo dýrt, að það æti upp alla tollhækkunina. Yrði farið eftir till. hv. þm. Vestm. (JJós) um eftirlit, kæmi það að engu gagni. Hjer á að bæta þriðju hæðinni ofan á tveggja hæða hús. Ofan á núgildandi tóbakstoll og álagningu kaupmanna á nú að bæta þessari nýju tollhækkun. Og svo er verið að tala um að útvega landsmönnum ódýrara tóbak með því að afnema einkasöluna!
Allar voru röksemdir hæstv. fjrh., að svo, miklu leyti sem þær komu málinu við, árásir á stjettarbróður hans, hæstv. atvrh. (MG).
Hv. þm. Vestm. (JJós) talaði nokkur orð við 2. umr., sem jeg vildi þá ekki svara, til að lengja ekki umr. Hann talaði mikið um skaða þann, sem kaupmenn hefðu orðið fyrir af völdum einkasölunnar og taldi jafnvel, að þeir ættu rjett til skaðabóta. Íslenskir dómstólar þekkja ekki til skaðabóta, er svo stendur á sem hjer. Engum hefir verið bætt upp fyrir það, að tóbakseinkasalan komst á, enda enginn látið sjer til hugar koma að krefjast þess. Þegar vínbannið var lögleitt hjer á landi og nokkrir menn höfðuðu mál gegn því opinbera og kröfðust skaðabóta, leit hæstirjettur svo á, að skaðabætur kæmu ekki til greina. Ríkið hefði haft leyfi til að taka vínsölurjettinn af brennivínskaupmönnunum án þess að bæta fyrir. En hv. þm. Vestm. hefir ekki enn svarað þeirri spurningu minni, hvers vegna þau lönd, er hæstv. atvrh. (MG) nefndi við 2. umr., hafi tóbakseinkasölu. Í þessum löndum er þó fjölmenn kaupmannastjett, en þar er einkasalan látin átölulaus. Af þessu er ekki hægt að draga aðra ályktun en þá, að kaupmenn hjer sjeu frekari til fengsins en kaupmenn annara þjóða.
Þá gerði hv. þm. Vestm. (JJós) mikið veður út af því, að jeg hefði í ræðu minni sagt villandi til um verð einkasölurnar. Jeg vil minna hv. þm. (JJós) á það, að í hv. Nd. kom það fyrir, að hv. 1. þm. G.- K. (ÁF) hafði litið á rangt þingskjal og vitnað í það. Stóð hann þá upp og leiðrjetti mál sitt, og eins vildi jeg gera nú. Væri hv. þm. Vestm. sæmra að feta í fótspor okkar og leita sannleikans, heldur en að reyna að lifa á blekkingum til að flækja málið, eins og hann nú hefir orðið að gera, af því að hann fylgir illum málstað.
Jeg hefi áður bent á afstöðu stjórnarflokksins í þessu máli, og vil nú gefa þeim hv. þm., sem þar eiga hlut að máli, ástæðu til að skýra stefnubreyting sína. Vil jeg fyrst snúa mjer að hæstv. forsrh. (JM), sem jeg gleðst af að sjá kominn hingað í deildina. Hvernig getur hann nú beitt sjer gegn einkasölunni, þegar litið er á afstöðu hans til einkasölu, er Hannes Hafstein var ráðherra, til afstöðu hans gagnvart steinolíueinkasölunni 1917 og tóbakseinkasölunni 1921? Að vísu hafði hann ekki atkvæðisrjett hjer á þingi 1921, er hann var forsætisráðherra, og þótt hann kæmi því ekki sjálfur fram með tóbakseinkasöluna, eða með steinolíueinkasöluna 1917, þá voru það samherjar hans, er það gerðu. Ef hann hefði verið einkasölum þessum mótfallinn þá, átti hann að segja af sjer völdum eða taka sjer aðra ráðherra. Hæstv. atvrh. (MG) hefir í hv. Nd. játað það, að einkasalan hafi tekist vonum framar. Hvað kemur nú til, að hæstv. forsrh. vill drepa þetta afkvæmi stjórnar sinnar, eftir að hæstv. atvrh. hefir gefið því slíkan vitnisburð?
Þá vil jeg minnast á tvo hv. þm., sem báðir greiddu atkv. með einkasölunni 1912. Annar þeirra, hv. 1. þm. Rang. (EP), var þá svo ákveðinn einkasölumaður, að mjer kom sannarlega á óvart, hvernig hann snýst í þessu máli. Á þingi 1912 lýsir hv. 1. þm. Rang. fullu fylgi sínu við einkasölustefnuna og færir mörg rök fyrir því, að með einkasölu megi bæði fá ódýra vöru handa neytendum og þó láta landið græða.
Þetta eru rjett og gild rök, og því furðar mig á því, að maður sá, er svo vel skildi gagnsemi einkasölunnar þá, skuli snúast þannig í þessu máli, því að þessi rök eru algert rothögg á kenningar hæstv. fjrh. (JÞ) í þessu máli.
Af þessum tilfærðu rökum getur hv. þm. Vestm. (JJós) sjeð, hvernig reyndur íhaldsmaður, sem fylgir hvöt síns eigin hjarta, lítur á málið. Hann segir á þingi 1912, að steinolíuhringurinn hafi grætt hjer 145% á ári, og muni gróðinn með áætlaðri verðhækkun verða nær 200%. Nú liggur fyrir Sþ. till um, að ríkið sleppi steinolíueinkasölunni úr höndum sjer. Nú þætti mjer gaman að vita, hvort hv. 1. þm. Rang. (EP) væri eins gleyminn á orð sín og skoðanir í því máli 1912 eins og í tóbakseinkasölumálinu.
Hinn þm., sem jeg vildi minnast á, er hv. 2. þm. G.-K. (BK). Hv. þm. (BK) hefir a. m. k. tvisvar á æfinni játað einkasölustefnunni fylgi sitt. Hv. þm. munu t. d. minnast þess, að þessi ágæti frumherji frjálsrar verslunar hefir á þinginu 1917 lagt til og stutt það sem ráðherra, að landsstjórnin tæki að sjer einkasölu á steinolíu. Vil jeg leyfa mjer að lesa upp eina gr. úr frv. þessu, 1. gr.:
„Landsstjórninni veitist heimild til að kaupa svo mikla steinolíu, er henni þurfa þykir til þess að birgja landið, og selja hana kaupmönnum, kaupfjelögum, sveitarfjelögum og öðrum samkvæmt reglugerð fyrir steinolíuverslunina, er landsstjórnin setur.“
Sjálft nafnið bendir meira að segja á, að hjer er um einkasölu að ræða. Svo kemur 2. gr.:
„Meðan landsstjórnin notar þessa heimild, er engum öðrum leyfilegt að flytja hingað til lands steinolíu en landsstjórninni, nema með sjerstöku leyfi.“
Það er því hvorki meira nje minna en að maður, sem í frelsisins nafni heimtar núna afnám einkasölunnar, er staðinn að því að hafa barist með einkasölu. En því rek jeg þetta hjer, að jeg vil gefa þeim, sem snúist hafa í þessu máli, tækifæri til að gera grein fyrir skoðanaskiftum sínum.
En það, sem jeg hefi gert í ræðu minni, er þetta: Jeg hefi hrakið allar ástæðurnar, sem hv. 1. landsk. (SE) og hv. þm. Vestm. (JJós) báru fyrir sig, og sömuleiðis alt, sem hæstv. fjrh. (JÞ) sagði, því ræða hans var öll röng. Sömuleiðis hefi jeg gefið hæstv. forsrh. (JM) tilefni til að skýra frá, hvers vegna hann er kominn í mótsögn við sjálfan sig í þessu máli, og gefið hv. 1. þm. Rang. (EP) tækifæri til að skýra frá því, hvers vegna hann er fallinn frá skoðun sinni í einkasölumálinu, sem hann hafði 1912, og gefið hv. 2. þm. G.-K. (BK) átyllu til að skýra það, hvaða vit hafi verið í því að fela Landsbankanum 1912 eða landinu 1917 að reka einkasölu, úr því landið má ekki reka slíka verslun.