09.05.1925
Efri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3134 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)
50. mál, tollalög
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Jeg skal fyrst víkja nokkrum orðum að ræðu hæstv. forsrh. (JM). Hann var ekki vel skýr, þegar hann talaði um afstöðu sína til þessa máls áður fyr. Hann vildi ekki skýra, hvers vegna hann var fylgjandi einkasölu fyrir stríð, og ekki heldur hvernig á því stóð, að 1917 lagði stjórn hans til, að ríkið tæki að sjer einkasölu á steinolíu. Enn síður vildi hann tala mikið um það, hvernig á því stóð, að öll stríðsárin var hann sá langmesti einokunarkóngur, sem sögur fara af hjer á landi. Engir þrír hjerlendir menn hafa verið dýpra sokknir í allskonar einokunar- og haftafargani sem svo er kallað af Mbl.mönnum, en einmitt hæstv. forsrh. (JM), hv. 1. landsk. (SE) og hv. 2.þm. G.-K. (BK). Sem ráðherrar hafa þeir allir staðið fyrir einkasölufyrirtækjum í stórum stíl, og má nærri því segja, að þeir hafi flutt inn einokunarbakteríuna, sem þeir nú kalla svo, í þetta þjóðfjelag. (SE: Háttv. þm. sagði í gær, að jeg hefði hreinar línur í þessu máli). Já, í tóbakseinkasölumálinu hefir hv. 1. landsk. (SE) verið sjálfum sjer samkvæmur, en ekki þegar um einkasölustefnuna yfirleitt er að ræða.
Hv. þm. Vestm. (JJós) skýrði svo vel, hvernig íhaldið hafi glæpst á tóbakseinkasölunni árið 1921, vegna þess að einkasöluandinn hafi verið kominn svo djúpt inn í meðvitund þjóðarinnar undir stjórn „mónópól“-kónganna, hæstv. forsrh.(JM), hv. 1. landsk. (SE) og hv. 2. þm. G.-K. (BK). Jeg held, að þessir háttv. herrar hefðu gott á því að átta sig dálítið á einkasölufyrirkomulaginu í ljósi þeirrar heimsspeki, sem þeir stjórnuðu landinu eftir á stríðsárunum. Sá andi, sem greip stjórnarflokkinn árið 1921 og stýrði honum í höfn tóbakseinkasölunnar, er til orðinn í nánum fjelagsskap við einokunarráðherra stríðsáranna, sem jeg áður nefndi.
Nú segja þessir einokunarfrömuðir: „Það er alt öðru máli að gegna um stríðsár; þá er sjálfsagt, að ríkið taki verslun í sínar hendur.“ Þetta sýnist mjer harla undarleg kenning. Jeg á erfitt með að skilja, að það sje vondur vinur, sem menn leita til þegar neyðin er mest. A. m. k. er ekki gott að samrýma slíka kenningu því, sem gerist í daglegu lífi manna. Eða halda hv. þdm., að maður, sem þarf nauðsynlega að fá skrifað upp á víxil, leiti til höfuðóvinar síns í því skyni? Nei, menn leita einmitt til góðra vina, þegar mest á ríður. Þegar mest á reið komu áðurnefndir 3 ráðherrar til einkasöluhugmyndarinnar og báðu hana ásjár.
Vegna peningavandræða ríkissjóðs leitaði Hannes Hafstein á náðir einkasöluhugmyndarinnar árið 1911 og Jón Ólafsson, Bjarni frá Vogi, hv. 1. þm. Rang. (EP) o. fl. komu árið eftir og vildu láta ríkið taka einkasölu á olíu.
Af hverju stafar nú þetta? Af því að þegar landið er nauðulega statt, þá álíta menn, að einkasala geti hjálpað.
Sömu söguna hafa stríðsárin að segja. Þá vildu allir hafa einkasölu, og það á mörgum vörutegundum.
Nú á hv. 1. landsk. (SE) eftir að skýra fyrir mönnum, hvernig á því stendur, að einkasala er álitin sjálfsögð, hvenær sem landið er í neyð statt. (SE: Einkasalan er einmitt neyðarúrræði!). Hvers vegna dugir hin marglofaða frjálsa samkepni þá ekki? Hv. 1. landsk. (SE) á einnig eftir að skýra fyrir mönnum, hvers vegna kaupmennirnir, sem óáreittir fá að fleyta rjómann í góðærum, bregðast í neyðinni. Um leið og hv. þm. (SE) útskýrir þetta, þarf hann að koma dálítið inn á „praktíska“ sálarfræði og siðfræði kaupmanna yfirleitt, sem æskilegt væri að heyra hann prjedika nokkuð um hjer í dag.
Hæstv. forsrh. (JM) sagðist altaf hafa verið á móti einkasölufyrirkomulaginu. Er hann nú búinn að gleyma stjfrv. sínu um einkasölu ríkisins á lyfjum, sem hann flutti árið 1921? Var hann ekki einmitt höfuð stjórnarinnar, þegar stjfrv. um tóbakseinkasöluna var borið fram og samþykt, þó að annar ráðherra hefði þar framsögu? Ef sá ráðherra hefir verið í andstöðu við höfuð stjórnarinnar, þegar hann flutti frv., þá átti höfuðið auðvitað að ráða, þó að það hafi að vísu aldrei verið kallað „heili heilanna.“
Í þessu sambandi er rjett að víkja að nýafstöðnu tilfelli í Frakkland, þar sem fjármálaráðherrann sagði af sjer vegna ósamræmis við forsætisráðherrann.
Skemtilegast í ræðu hæstv. forsrh. (JM) var, að hann vildi ekki segja frá því, í hvaða sambandi hann hafi lýst afstöðu sinni til einkasölustefnunnar á þinginu 1921. Það er alveg áreiðanlegt, að ekki kom þessi andstaða hans gegn einkasölu í ljós í umr. um tóbakseinkasöluna. Síður en svo. Þessi varfærni hæstv. ráðh. (JM) er talandi vottur um hræðslu hans við fortíðina, sem eltir hann eins og draugur. Þess vegna forðast hann að gefa skýr svör um fyrri afstöðu sína til málsins. Hinsvegar segist hann hafa verið á móti öllum höftum og einkasölu árið 1922. Hvers vegna hefir hann þá aldrei beitt sjer neitt fyrir afnámi einkasölu eða hafta síðan? En fyrst hann hafði óbeit á öllum höftum árið 1922, þá er rjett að minna hann á, að árið 1921 kom hann heim úr siglingu með þá hugmynd að setja á stofn skömtun á ýmsum matvælum hjer í bænum og þeirri hugmynd kom hann í framkvæmd, þrátt fyrir andstöðu þáv. hæstv. atvrh. gegn þeirri ráðabreytni.
Hvernig stendur nú á þessu öllu saman? Árið 1921 hamrar hæstv. forsrh. (JM) í gegn svo stórfeldri „restriktion“ sem matvælaskömtun og sama ár þolir hann, að meðstjórnandi hans, þáv. hæstv. fjrh., ber fram frv. um tóbakseinkasölu og þáv. hæstv. atvrh. annað frv. um korneinkasölu, en ári síðar, 1922, hefir hæstv. forsrh. (JM) megna óbeit á öllum höftum og allri einkasölu. Hjer hljóta að hafa orðið óvenjulega stórfeld skoðanaskifti.
Jeg skal nú játa, að síðan árið 1922 er ekki beinlínis hægt að sjá, að hæstv. forsrh. hafi snúist mikið í þessum málum. Þó að svo kunni vel að vera. Opinberlega hefir hann haldið strikinu nokkurn veginn síðan. En mjer þykir hlýða að skjóta því til hæstv. forsrh., hvort aðalsnúningurinn árið 1922 standi í nokkru sambandi við það. að árin 1919—'20 stóð hann tiltölulega nærri bændum landsins, en árið 1922 varð hann að sækja kjörfylgi sitt í aðrar herbúðir. Mjer sýnist ekki með öllu útilokað, að háttv. kjósendur árið 1922 hafi að einhverju leyti markað stefnuskifti hæstv. ráðh. (JM) sem einmitt urðu á því ári.
Jeg vona, að hæstv. forseti taki ekki illa upp fyrir mjer, þó að jeg bendi enn á 3 háttv. þm., sem greiddu atkvæði með lögleiðingu tóbakseinkasölunnar og enn eiga sæti hjer í hv. deild og hafa nú greitt atkvæði með afnáminu. Jeg á við þá hv. þm. Snæf. (HSteins), hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) og hv. 3. landsk. (HSn). Vil jeg a. m. k. skjóta því til hv. þm. Snæf., að hann skýri hv. deild frá, hvað fyrir hefir komið síðan 1921, sem rjettlætir, að þann greiðir nú þveröfugt atkv. við það, sem hann gerði þá.
Annars er rjett að geta þess nú að tveir eru þeir hlutir, sem ekki lítur út fyrir, að nefna megi hjer í hv. deild, án þess álitið sje að góðir siðir sjeu brotnir Annað er Morgunblaðið, en hitt er að tala um bókfærð skoðanaskifti stjórnarflokksins í velferðarmálum þjóðarinnar. Þetta er hvorttveggja álitið meiðandi, líklega fyrir hæstv. stjórn og hv. stuðningsmenn hennar.
Hv. þm. Vestm. (JJós) þarf jeg fáu að svara. Hann heldur sig enn við meðaltalsreikning þriggja fyrstu ára einkasölunnar; en til að hjálpa minni hans, skaut jeg fram í ræðu hans: Hverjar voru tóbaksbirgðirnar, þegar einkasalan tók til starfa ?
Sjer háttv. þm. (JJós) virkilega ekki að þegar árin 1919—20 er flutt inn meira en 1/3 meira tóbak en í meðalári þar á undan, þá er engin ástæða til að halda að þörf sje eins mikils innflutnings næstu árin á eftir, og það því fremur, sem voru kreppuár og kaupgeta almennings sáralítil? Þetta sýnast mjer nokkuð þung rök, en hv. þm. (JJós) hefir ekki svareð þeim. Aftur á móti talar hann um árið 1924 eins og nokkurskonar veltiár, og því varla rjett að reikna með því í þessu sambandi. En þá er innflutningurinn einmitt 74 þús. kg., eða því sem næst hinn sami og árið 1917 og árin 1910—12. M. ö. o. innflutningur tóbaks er síðasta ár nákvæmlega sá sami og í normal ári fyrir stríð, og því hárrjett og í rauninni hið eina sjálfsagða að miða útreikninga sína við síðasta ár eingöngu. Meðaltalsútreikningurinn er vægast sagt vitleysa, en verður þó að virðast hv. þm. (JJós) til vorkunnar, því að öðrum kosti gæti hann ekki varið það fyrir samvisku sinni að greiða atkv. með afnámi einkasölunnar.
Hv. þm. (JJós) kvað afsakanlegt, þó að menn skiftu um skoðun á jafnlöngum tíma og síðan 1912. En þar sem hann heldur því fram, að hjer sje um stefnumál eingöngu að ræða, þá verður hann að játa, að eitthvað verulegt þurfi að koma fyrir, til þess að menn geti skift svo algerlega um lífsskoðun. Þegar hv. 1. þm. Rang. (EP) og hv. 2. þm. G.-K. (BK) hafa t. d. flutt jafnákveðna till. í einkasöluáttina sem þeir gerðu árið 1912, þá verða menn að játa, að eitthvað meira en lítið þurfi að hafa gengið á, til þess að þeir geti nú greitt atkv. með afnámi tóbakseinkasölu vegna stefnu sinnar í verslunarmálum.
Vel má vera að einhverjum kaupmönnum í Svíþjóð hafi verið bætt upp tap vegna stofnunar tóbakseinkasölunnar þar. Um það skal jeg ekkert segja. En hitt er víst, að slíkar bætur voru ekki greiddar hjer. þegar vínsölulevfi voru tekin af mönnum, og ekki heldur þegar núverandi hæstv. atvrh. (MG) stofnsetti tóbakseinkasöluna. Slíkar skaðabætur eru því ekki í samræmi við íslenskar rjettarreglur, hvernig sem meiri hl. sænska þingsins kann að hafa litið á málið á sínum tíma. Hinsvegar er þess að geta, að enda þótt sænska ríkið hafi greitt kaupmönnum skaðabætur. Þá mun það hafa borgað sig fyrir ríkissjóðinn, því að síðastliðið ár græddi hann 38 milj. á tóbakseinkasölunni, og munar um minna jafnvel þar.
Annars hefi jeg ekki heyrt getið um skaðabætur til kaupmanna í þeim 9 ríkjum, sem hæstv. atvrh. (MG) nefndi í greinargerð frv. 1921. Það sýnist svo, sem þau ríki hafi tekið þessa verslun með köldu blóði og ekki bætt það í einu eða neinu. Og hafi satt að segja nokkur með þessari einkasölu brotið á móti verslunarstjett þessa lands, þá er það, þótt mjer þyki leiðinlegt að verða að nefna það, hæstv. atvrh. (MG), sá maður, sem hv. frsm. meiri hl. (JJós) og margir aðrir treysta svo vel, sem raun ber vitni, bar eð þeir hafa hann í svo ábyrgðarmikilli stöðu. Hlýtur þeim að finnast það leiðinlegt, að hann skuli vera svona mikill mótgangsmaður kaupmannastjettarinnar.
Jeg get svo svarað niðurlagsorðum hv. þm. Vestm. (JJós) um leið og jeg svara hv. 1. landsk. (SE). Hv. 1. landsk. lítur svo á, að hjer sje aðeins um stefnumál að ræða, en ekki fjárhagsmál. Styður það mína skoðun, að það sjeu í rauninni kaupmennirnir, sem berjast fyrir afnámi einkasölunnar, því vitanlega er sumum þeirra óhagur að því að hún sje. Aftur á móti hjelt faðir einkasölunnar, hæstv. atvrh. (MG), og flestir aðrir, sem um málið hafa talað fyr og síðar, að einum manni undanskildum hjer á þingi, hv. 2. þm. Reykv. (JBald), að hjer sje ekki um skoðanamál að ræða, heldur eingöngu fjárhagsatriði. Jeg hefi enga, nema jafnaðarmanninn, heyrt halda því fram, að þeir væru með einkasölunni af því þeir teldu hana fullkomnara skipulag en að hafa kaupmenn og kaupfjelög. En hæstv. atvrh. (MG) markaði brautina ljóslega 1921, er hann sagði á þá leið, að það eina, sem fyrir vekti með einkasölunni, væri að ná fje inn í ríkissjóð, er hann ætlaði að taka af kaupmönnunum og kaupfjelögunum. Hann viðurkendi, að hann vildi fara þessa leið af því að landið þyrfti á fjenu að halda. Jeg hefi nú í rauninni svarað báðum þessum hv. þm. (JJós og SE), að fyrir þeim, sem báru þetta mál og steinolíueinkasöluna fram til sigurs, og í báðum var hæstv. atvrh. (MG) potturinn og pannan, fyrir þeim var í hvorugu tilfellinu um neitt stefnumál að ræða, eða það, að þeir teldu allsherjar landsverslun æskilega. En af því að jeg kæri mig ekki um að vera loðinn í svörum við hv. 1. landsk. (SE), þá ætla jeg að tala meira um þetta. (SE: Jeg hefi ekki enn skilið, hvort flokkurinn stendur á grundvelli frjálsrar verslunar). Hv. þm. (SE) er hjer ekki á flokksfundi Framsóknarmanna. Hann getur spurt mig og hv. 1. þm. Eyf. (EÁ), sem á hann höfum deilt, um okkar skoðanir, en fyrir flokksins hönd get jeg engu svarað; jeg er því miður ekki í stjórn hans, og hv. form. hans á sæti í Nd.
Jeg ætla hjer að gera betur en jeg þarf samt sem áður, og að gefnu tilefni vil jeg minnast á eina meinloku, sem gengið hefir í gegnum allar þessar umr. og hv. 1. landsk. (SE) hefir ekki síst gert sig sekan í. Það er sú meinloka, að svo lítur út, sem þeir, sem mest tala hjer um frjálsa verslun, viti ekki, hvað það orð þýðir. Allir hv. þm. ættu þó að vita, að í þeim löndum, sem marka hina stóru strauma, er þetta orð, frjáls verslun, notað í alt annari merkingu en hjer. Tökum t. d. England. Þar merkir „free trade“ ekki annað en það, að þeir, sem því eru fylgjandi, vilja alls enga verndartolla hafa. Það er það, sem þar hefir skift flokkum í langan tíma, og það ekki aðeins stjórnmálaflokkum, heldur standa og hagfræðingaskólarnir hver gegn öðrum í þessu efni. Þetta er vitaskuld stórmál, og jeg get sagt það strax, að viðvíkjandi hinu rjetta hugtaki frjáls verslun, þá er jeg því ákaflega fylgjandi. Álít jeg verndartollana mikið böl og að einhver sá hroðalegasti tollur, sem við eigum við að búa, sje verðtollurinn, sem hæstv. fjrh. (JÞ) hefir að vísu ekki fundið upp, en stutt öfluglega. Jeg segi honum það til hróss, að hann hefir ekki einu sinni getað fundið þetta upp; það var nefnd í hv. Nd., sem gerði það. Jeg hefi nú svarað háttv. 1. landsk. (SE) skýrt og skorinort. Hinu rjetta hugtaki frjáls verslun er jeg af alhuga fylgjandi. Og jeg óska þess heitt, að með auknum beinum sköttum á hin breiðu bök verði skattapólitík landsins komið í það horf, að við losnum við verndartollana, hverju nafni sem nefnast, sem auka dýrtíðina í landinu. En jeg verð að segja, þó leiðinlegt sje, að mjer virðist ekki benda í þessa rjettu átt eitt frv. hæstv. fjrh. (JÞ), sem nú er ekki til umr., en þar sem farið er fram á, að við gefum ekki aðeins 613 þús. kr. eftir einum 30 fjelögum í Reykjavík, heldur og enn meira, sem ekki felst í skýrslunni, sem sje því, sem nemur varasjóðsbreytingunni.
Það, sem jeg vildi segja háttv. 1. landsk. (SE), var þetta: Þarna í persónu mannsins, sem ber fram þessa breyting á tekjuskattslögunum, getur hann fundið höfuðóvin hinnar frjálsu verslunar. Jeg hefi skýrt fyrir honum, hvað er hin sanna frjálsa verslun, og nú bendi jeg honum á, hvert hann á að stefna spjótum sínum, ef hann vill hitta fyrir þá menn, sem eyðileggja hina frjálsu verslun. Það eru mennirnir, sem ár frá ári brjóta í bág við hana með því að koma á hinum hræðilegustu innflutningstollum.
Nú hefi jeg svarað hv. 1. landsk. (SE) og leitt hann í allan sannleika að því er snertir hvað í veraldarreynslunni, sem hann svo oft talar um, er kallað frjáls verslun. Jeg hefði gaman af að sjá framan í þann Englending, ekki síst ef hann væri hagfræðingur, sem háttv. 1. landsk. (SE) segði við, að „free trade“ merkti hið gagnstæða við „monopol.“
Nú, frá almennu sjónarmiði skiftast menn viðvíkjandi einkasölu og ekki einkasölu í þrjá flokka. Þá eru fyrst tveir andstöðuflokkar. Aðrir vilja hafa einkasölu á öllu. Svo er um flesta jafnaðarmenn í hinum ýmsu löndum. Svo eru aðrir, sem með engu móti vilja hafa nokkra einkasölu. Slíkir menn finnast einstöku hjer á landi, að vísu ekki á þingi að líkindum, en utan þings hafa fáeinir menn varið þá skoðun með nokkrum þrótti. Hinir þriðju fara milliveg milli þessara tveggja. Þeir segja: undir vissum kringumstæðum viljum við hafa landsverslun, því að við teljum. að betra sje að nota hana en ekki. Þótt jeg geti ekki talað hjer fyrir munn samherja minna í Framsóknarflokknum þá hygg jeg, að þetta sje sú skoðun, sem flestir flokksbræður mínir fylgja. Þeim dettur ekki í hug að vera með allsherjar landsverslun, en neita á hinn bóginn ekki, að það geti undir vissum kringumstæðum komið til mála, að þeir verði með landsverslun á einstaka vörum. Og í rauninni erum við hv. 1. landsk. (SE), hæstv. atvrh. (MG), hv. 2. þm. G.-K. (BK) og, svo jeg taki einhverja fleiri, hv. 1. þm. Rang. (EP) allir á sama máli um þetta, því þeir hafa allir einhverntíma á æfinni verið með landsverslun. Jeg hefi áður sýnt, að hv. 1. landsk. hefir verið með landsverslun á steinolíu, því honum þótti sú verslun ill í höndum kaupmanna. og meðan hann var ráðherra, var hann með ríkisverslun í mjög stórkostlegum stíl. Þá hefir hann því þverbrotið það, sem mjer skildist. að væri stefna hans, að þola enga ríkisverslun. Og hann hefir brotið þá stefnuskrá sína átakanlega á stríðsárunum, og gaf því landsversluninni þau bestu meðmæli, sem bægt var að hugsa sjer.
Jeg hefi nú skýrt sagt mína skoðun; jeg er í milliflokknum. Jeg tel það enga goðgá, að hv. 2. þm. G.-K. (BK) var með steinolíueinkasölu 1912, og jeg held, að það hafi verið rjett af hv. 1. landsk. (SE) að vera með landsverslun á stríðsárunum. En úr því að hann var það, situr illa á honum nú að breiða sitt breiða brjóst framan í hv. þd. og segja: Jeg hefi aldrei verið með landsverslun. Og jeg held, að með því, er jeg hefi nú sagt, hafi jeg skilmerkilega leyst mig af þeim hólmi, er hv. 1. landsk. (SE) skoraði mig á. Jeg hefi ekki aðeins svarað því, er hann spurði um, heldur sýnt honum fram á, hve það er villandi og rangt að nota hugtakið frjáls verslun sem andstæðu hugtaksins „monopol“. Og jeg hefi líka sýnt honum fram á, að höfuðpaurar Mbl.manna hafa sömu skoðun og hann og jeg, hæstv. atvrh. (MG), hv. 2. þm. G.-K. (BK) og hv. 1. þm. Rang. (EP) á landsverslun. Við viljum enga allsherjar landsverslun hafa, en við viljum grípa til landsverslunar, ef kringumstæðurnar benda til, að það sje heppilegasta leiðin.