09.05.1925
Efri deild: 73. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3146 í B-deild Alþingistíðinda. (1919)
50. mál, tollalög
Einar Árnason:
Jeg skal ekki tala langt mál, en það voru örfá atriði í ræðu hv. 1. landsk. (SE), sem jeg þarf að svara, þótt mikill hluti ræðu hans væri endurtekning á því, sem hann sagði áður og jeg hafði svarað.
Hann mintist aftur á þessa hættu, sem lægi í því, að stór verslunarfjelög gerðu stór innkaup. (SE: Einokun). Í því sambandi talaði hann um þá menn, er hafðir væru upp á kaup til þess að standa fyrir slíkum fyrirtækjum, að þeir gætu þegið fje til þess að kaupa lakari eða dýrari vörur en þeir, sem versla fyrir eiginn reikning, og sagði, að það væri besta tryggingin fyrir hagkvæmri verslun, að menn versluðu fyrir eiginn reikning. Ef þetta er rjett hjá honum, þá hefir hann jafnhliða einkasölunni fordæmt samvinnufjelögin. Þar eru líka ráðnir menn fyrir kaup til þess að hafa forstöðuna á hendi, bæði hjer og erlendis, og hafa þeir á hendi stór innkaup fyrir fjelögin. Þeir ættu þá að liggja undir sömu freistingunni, sem hv. 1. landsk. (SE) talar um.
Þetta er mjög stór misskilningur). Hv. þm. (SE) kom aftur að sínu uppáhaldsorði: „frjáls verslun“, — og mintist í því sambandi á olíuhringinn. Jeg mintist á þetta áður, til þess að sýna honum í spegil sinnar frjálsu samkepni. Og hvað sá hann? Olíuhring. Mjer skildist hv. þm. (SE) telja alt frjálsa verslun, sem ekki væri ríkisverslum. En hvað er frjáls verslun? Er það t. d. steinolíuhringur? Eða er það frjáls verslun, þegar einn einstakur einokari getur selt hlut fyrir 120 kr., sem fá má fyrir 50 kr., ef maður kemst framhjá honum? Eða er það frjáls verslun, ef jeg kaupi hlut frá útlendri verksmiðju og verð að borga skatt af honum til einhvers óviðkomandi manns hjer á landi? Þetta finst mjer vera sú frjálsa verslun. sem hv. þm. (SE) vegsamar svo mikið!
Það má segja, að engin frjáls verslun sje til. Tollar eru kvöð á versluninni, og einkasala er ekki annað en samskonar kvöð í þá átt, að verslun með einhverja vörutegund eða einhver atvinnugrein eigi að greiða skatt í ríkissjóð.
Þá kom hv. þm. (SE) með þessa miklu spurningu: hvaða stefnu Framsóknarflokkurinn fylgdi í verslunarmálum. Hann vildi fá svar við þeirri spurningu og kvaðst hlakka til þess. Hv. 5. landsk. (JJ) hefir svarað spurningunni frá sínu sjónarmiði, og jeg get ekki svarað henni nema frá mínu sjónarmiði. En mjer er óhætt að segja hv. 1. landsk. (SE), að margir, eða allir í mínum flokki munu líta svipað á þetta mál og við háttv. 5. landsk. (JJ). Mjer skildist hv. 1. landsk. (SE) telja alt frjálsa verslun, er ekki væri ríkiseinokun. Jeg tel þetta ekki nein landamerki milli frjálsrar og ófrjálsrar verslunar. Jeg vil vera laus við þann skatt, er jeg mintist á áðan, að greiða þyrfti óviðkomandi mönnum hjer af útlendri vöru; jeg vil hafa verslunina svo frjálsa, að jeg þurfi ekki að greiða skatt af einhverju, sem jeg panta. Jeg er svo mikið fylgjandi frjálsri verslun, að jeg vil ganga miklu lengra heldur en hv. þm. (SE), því að jeg vil losa um þau höft, sem nú eru á verslunarfyrirkomulaginu. Það var minst á steinolíuhringinn, en það mætti líka minnast á hveitihringinn í Ameríku, því að þótt okkur hafi fundist hans gæta lítið, þá hefir hann þó áreiðanlega sín áhrif. Þetta telur hv. þm. (SE) frjálsa verslun og er ánægður með það. (SE: Jeg taldi hringana höft á frjálsri verslun). Þá ætti hv. þm. (SE) að vilja brjóta þá.
Það munar miklu, hvort ríkið hefir tekjur af einokun eða einhver útlendingur. Já, jeg verð aðeins að víkja örfáum orðum að þessari yfirlýstu trú háttv. 1. landsk. þm., því að jeg hefi líka þá trú eða sannfæringu, að gott málefni vinni sigur að lokum. Jeg veit líka, að afnám tóbakseinkasölunnar sigrar í þetta sinn, en það kemur dagur eftir þennan dag, og þá getur vel farið svo, að gott mál sigri, enda þótt það verði ekki samkv. dómi hv. 1. landsk. (SE). Það er ekki ólíklegt, að ríkiseinkasalan verði bráðlega sett á stofn aftur; jeg veit að vísu ekki, hvort jeg verð þá með til að stuðla að því; það fer eftir atvikum og hversu langt verður þangað til. En hitt er alveg víst, að góð málefni sigra ætíð að lokum, hvernig sem þau hafa áður verið leikin.