11.05.1925
Efri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3171 í B-deild Alþingistíðinda. (1927)

50. mál, tollalög

Forsætisráðherra (JM):

Hv. 5. landsk. (JJ) vildi rengja það, sem jeg sagði um stjórnarskiftin 1922, og taldi það nokkuð óljóst hjá mjer. Hv. þm. er nú svo vanur að lesa upp úr þingtíðindunum, og þótt sumt verði nú oft og tíðum nokkuð víxlað hjá honum, þá hefði hann ósköp vel getað kynt sjer þetta. Jeg sagði á laugardaginn alveg það sama og er jeg bað um lausn þá. Jeg bað um lausn vegna þess, að nokkrir menn úr Framsóknarflokknum komu til mín og sögðu, að stjórnin mundi vera orðin í minni hluta í þinginu, sögðust vilja taka upp nýja stefnu í verslunarmálum og byggjust ekki við, að jeg væri henni fylgjandi, og spurðu þeir mig, hvort jeg teldi nauðsynlegt, að vantraustsyfirlýsing kæmi fram. Jeg svaraði, að jeg teldi það að vísu heppilegra, að vantraust kæmi fram opinberlega, því að stjórnin ynni altaf á við hverja vantraustsyfirlýsingu, en af því að jeg vildi losna, þá kvaðst jeg gera mig ánægðan með yfirlýsingu meiri hluta þingmanna. Skal jeg nú leyfa mjer að lesa upp kafla úr ræðu minni:

„Út af fyrra atriði erindis þessa spurði jeg um það, hvernig á því stæði, að nokkrir, ekki allfáir þeirra þingmanna, sem óskað hefðu á síðasta þingi, að ráðuneytið hjeldi áfram, væru nú snúnir á móti því. Svar við þessari spurningu fjekk jeg ekki beint, en það var gefið í skyn, að orsökin væri sú, að Framsóknarflokkurinn vildi líka upp ákveðna stefnu í viðskiftamálum og verslunar, sem þeir byggjust við, að jeg myndi ekki aðhyllast. Jeg sagði, að að vísu hefði jeg lítt verið spurður um afstöðu mína að þessu leyti, en það myndi rjett til getið, að jeg væri þar á öndverðum meiði við Framsóknarflokkinn, því að jeg væri þeirrar skoðunar, að nú ætti að fella burtu þau höft á verslun og viðskiftum og aðrar ráðstafanir, er komið hefðu vegna ófriðarins, nema aðflutningshöft um stund, sjerstaklega til þess að halda uppi gengi (kurs) íslenskrar krónu, sem sjálfsagt væri að viðurkenna opinberlega.“

Jeg læt háttv. þm. um það, hvort þessi afstaða mín 1922 sýni, að jeg sje farinn að ganga í barndómi.

Þá færir háttv. þm. það sem sönnun þess, að jeg sje á móti frjálsri verslun, að jeg hafi borið fram frv. um einkasölu á lyfjum. Jeg geri ráð fyrir, að hv. þm. viti það ekki, að það var og er einkasala á lyfjum, svo þetta er ekki nein breyting á því, sem áður var. Ekki vil jeg deila við hv. þm. um þá óskaplegru fjarstæðu, að maður þurfi endilega að taka afstöðu til frjálsrar verslunar, þó maður taki upp „monopol“ sem nauðsynlegar dýrtíðarráðstafanir. Þetta er svo mikill einsdæma bjánaskapur — jeg verð að viðhafa þetta orð, þótt hv. þm. kunni ekki vel við það — að það er fjarri öllum hugsanareglum að rökræða málið frá þessu sjónarmiði.

Hv. þm. fór mörgum orðum um það, að menn hefðu skift um skoðun í þessu máli. Jeg hefi nú sannað, að jeg hefi ekki gert það, en þó svo væri, þá skifti það engu máli.

Það var hálfspaugilegt í ræðu hv. þm. og nokkurskonar Nemesis, er hann var að tala um, hvað hann hefði verið góður við prestana. Jeg vil nú leyfa mjer að minna hv. þm. á eitt frv., sem kom fram á þinginu 1923. Það fór fram á að láta haldast eitt af elstu prestaköllum landsins. En þá reis þessi háttv. þm. óður og uppvægur á móti því. En núna nýlega var frv. hjer í deildinni um að fjölga prestaköllum, stofna alveg nýtt prestakall, og var þessi hv. þm. því meðmæltur. Þetta sýnir, að honum getur snúist hugur, þegar því er að skifta.

Hv. þm. talaði um einkasölu á vínum. Jeg get nú sagt honum það, að jeg vildi helst, að ríkisstjórnin gæti verið laus við hana. En það er eingöngu vegna bannsins, að hún er til. Jeg álít, að það væri miklu heppilegra að hafa það eins og í Noregi, að láta góð fjelög annast söluna, sem vissa er fyrir, að misnota hana ekki.

Annars var öll ræða þessa hv. þm. alls ekki svaraverð. Öll rök hans sýndu, að hann skilur alls ekki það, sem hjer er á ferðum, og ruglar á hinn meinlegasta hátt saman einföldustu hugtökum. En þetta er að vísu ekki nýtt hjá honum, en það er alt annað en gaman að elta ólar við slíkt.

Jeg vona svo, að jeg þurfi ekki að eyða fleiri orðum um þetta mál, sem eiginlega ekki kemur við mig nema sem þingmann.