29.04.1925
Efri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (196)

1. mál, fjárlög 1926

Eggert Pálsson:

Það hefir nú andað heldur köldu frá hv. fjvn. í garð þeirra brtt., sem jeg hefi borið hjer fram.

Hæstv. fjrh. bað menn að fara varlega í því að skapa ríkissjóði útgjöld, og ferst honum einnig vel að tala svo, því að hann hefir gætt hins ítrasta sparnaðar sjálfur í fjárlagafrv. eins og það kom frá hans hendi.

Þess ber að gæta, að aðstaða þeirra hv. þm., sem sæti eiga í fjvn., er alt önnur og betri en okkar hinna, sem erum utan hennar. Þeir geta komið þar að mörgu af því, sem þeir vilja láta ganga fram af fjárbændum. Þannig get jeg bent á, að einn hv. þm., sem þar á sæti, hefir komið þar að tveim brtt., er hans kjördæmi varða. Það er því síst að furða, þótt till. okkar utannefndarmanna eigi erfiðara uppdráttar en till. þeirra þm., sem koma þeim undir stimpil fjvn.

Jeg mun þá víkja að þessum brtt. mínum. Þar sem jeg sagði um fyrri till. mína, að hún færi fram á 2000 kr. hækkun á bifreiðastyrk frá því í fyrra, þá var það misminni mitt, sem bygðist á því, að mig minti, að þær 2000 kr., sem samþykt var að veita í þessu skyni hjer í deildinni, hefðu fengið að standa. En svo var ekki. Hv. Nd. færði þá upphæð niður í 1000 kr. aftur. Þetta sýnir aðeins, að jeg er ekki langrækinn maður, og þess vegna hefi jeg gleymt þessari ráðstöfun Nd. En því fremur er það þá þakkarvert, að hæstv. stjórn lagði nú til í fjárlagafrv. sínu að veita 2000 kr., í stað 1000 kr. í fyrra, í þessu skyni. Sýnir það, að hæstv. stjórn hefir sjeð, hvílík þörf er á bak við þetta.

Hv. frsm. (JóhJóh) færði einkum fram sem ástæðu gegn þessari till. minni, að styrkur væri veittur til sjóferða í Rangárvallasýslu. Jeg get ekki sjeð, að þetta sje fullgild ástæða, því að þessir sjóflutningar ljetta ekki undir með þeim, sem flytja vöru sína í bíl. Jeg kannast við, að það er fallega gert af því opinbera að styrkja þessar sjóferðir. En einmitt af því, að það er gert, er hætt við, að þeim, sem eingöngu eiga við landflutninga, finnist, að þeir sjeu hafðir útundan, ef lítið sem ekkert er litið á þeirra þörf. Jeg sýndi í gær, við hve mikla örðugleika þessir menn ættu að stríða. Þeir verða að borga alt að 10 aur. undir hvert pund, sem bílarnir flytja, ef þeir hafa ekki flutning háðar leiðir, eða 5 aura, ef flutningur er báðar leiðir. Styrkurinn kæmi heldur ekki eingöngu Rangæingum að gagni, — það geta allir sjeð, — heldur og engu síður Árnesingum.

Jeg þykist því vita það, fyrst háttv. fjvn. legst á móti till. minni, að hún muni lítils gengis eiga von í þessari fámennu deild. Tek jeg því till. mína aftur við þessa umr. og vona, að hv. deild meti þá tilhliðrunarsemi við mig með því að samþykkja við 3. umr. brtt., er jeg býst þá við að koma með, er hljóði upp á lægri fjárveitingu en hjer er farið fram á. Þá vík jeg að hinni till. minni, sem fer fram á sjerstaka fjárveitingu vegna sandgræðslu. Hún mætti og andmælum frá hv. frsm. (JóhJóh) og hæstv. atvrh. (MG), sem þó virtist málinu velviljaður, en vildi láta verk þetta bíða. Heyrðist mjer á honum, að hann áliti fjárveitingu þessa of litla til þess að hún kæmi að gagni. Þótt áætlaðar hafi verið 25 þús. kr. til húsbyggingar þessarar, þá hygg jeg, að hægt væri að hafast við í húsi, sem kostaði aðeins 10 þús. kr., og auk þess veit jeg, að íbúar Landmannahrepps myndu vera þessu máli liðsinnandi að ýmsu leyti, jafnmikið áhugamál sem sandgræðslan er þeim.

Þá sagði og hæstv. ráðherra (MG), að sandgræðslumaðurinn mundi ekki vilja flytja sig austur, vegna þess, að hann væri bundinn við barnafræðslu í Hafnarfirði. Jeg held, að það geti varla verið svo glæsileg staða, að maður þessi vildi ekki eins flytja austur og fá þar bújörð, ásamt einhverjum styrk. Auk þess er alls ekki útilokað, að hann gæti og fengist við barnafræðslu þar eystra, því að ekki þarf síður að kenna börnum í Landmannahreppi en í Hafnarfirði.

Brtt. í sömu átt og um sömu upphæð kom og fram í hv. Nd. frá háttv. 2. þm. Rang. (KIJ). Hafði hann borið sig saman við forstjóra Búnaðarfjelagsins um hana, og hefir hann því álitið þessa upphæð nægilega. Og með því að ekki hefir verið gefið fyrirheit um að fá lægri fjárveitingu samþykta, get jeg ekki tekið þessa brtt. aftur.

Þá vildi jeg víkja nokkuð að fleiri brtt. Vil jeg fyrst minnast á till. um að kaupa „Móðurást“, listaverk Nínu Sæmundsson. Þessi listakona er alin upp í mínu prestakalli og jeg hafði þann heiður að búa hana undir fermingu. Jeg er því allvel kunnugur högum hennar í æsku og veit, við hvílíka örðugleika hún hefir átt að stríða. Hún komst af hendingu til Kaupmannahafnar af því, að hún átti þar föðursystur, sem studdi hana, og þar ruddi hún sjer listabraut sína. Jeg vil því þessari listakonu alt hið besta og hefi stundum verið hreykinn af því, að hún skuli vera úr mínu prestakalli. Myndi jeg því ekki sitja hjá, ef farið væri fram á verulegan styrk til hennar. En jeg get ekki sjeð, að henni geti orðið neinn styrkur að því, þótt listaverk þetta verði keypt fyrir það verð, sem brtt. ákveður. Myndi hún hvar sem væri geta fengið það verð, og jafnvel hærra, fyrir myndina. Og þótt æskilegt kunni að vera að fá listaverk þetta heim til Íslands, þá get jeg ekki sjeð, að landi voru sje minni sómi að því erlendis. Fleiri þjóðir hafa orðið að láta sjer lynda að eiga listaverk úti um, heim, svo sem Ítalir og Hollendingar, og hefir frægð listamanna þeirra ekki orðið minni fyrir það. Jeg á bágt með að fylgja þessari till., enda sje jeg ekki, að hlynt sje verulega að þessari listakonu á þennan hátt.

Þá vildi jeg, úr því jeg er staðinn upp, minnast nokkrum orðum á tillögu mentmn., á þskj. 408,1, að því er snertir Staðarfell. Jeg hygg, að það mál verði ekki á annan hátt betur leyst en þar er gert ráð fyrir. Þessar tvær gjafir, gjöf Staðarfellshjóna og gjöf frú Herdísar Benediktsen, verða sennilega aldrei sameinaðar í eitt. Og þá verður sennilega aldrei neitt lætur gert við Staðarfell en að leyfa þeirri konu, sem hjer ræðir um, að koma þar upp húsmæðrakenslu, fyrir ekki meira fje eða tilkostnað en hjer er farið fram á.

Jeg þekki forstöðukonu þá, sem boðist hefir til að reka skólann á Staðarfelli og veita honum forstöðu, og að öllu góðu. Hún er áreiðanlega mjög vel gefin kona, og eftir því sem mjer finst með mjög heilbrigðar skoðanir. Jeg veit því, að óhætt er að treysta henni til að gera vel það, sem hún tekur að sjer. Hún hjelt námsskeið í hjeraði mínu síðasta ár, og held jeg, að allar stúlkur, sem hjá henni voru hafi talið sig hafa haft mjög gott af kenslu hennar.

Þrátt fyrir þetta get jeg þó ekki vel felt mig við þá aðferð, sem hjer er beitt, að koma svo stóru máli sem þessu í gegn við alls eina umræðu. Mjer finst, að hv. mentmn. hefði átt að gefa álit sitt út um málið áður en hún fór fram á fjárveitingu í þessu skyni. Minna mátti ekki vera. En úr því má nokkuð bæta með því nú að taka þessar till. aftur til 3. umr. Um 3. till. mentmn. á sama þskj. get jeg hinsvegar ekki verið sammála hv. nefnd. Brtt. fer fram á að veita 15 þús. kr. ríkisábyrgð til að kaupa áhöfn á Staðarfellsjörðina. Jeg tel ekki miklu máli skifta, að þegar sje komið upp fullri áhöfn á jörðina, enda held jeg, að oftast nær sje hollast í íslenskum búskap að byrja ekki mjög stórt, heldur feta sig frekar áfram smátt og smátt. Lántaka til bústofnskaupa í stórum stíl er og verður jafnan hættuleg.