29.04.1925
Efri deild: 63. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

1. mál, fjárlög 1926

Atvinnumálaráðherra (MG):

Aðeins örfá orð út af því, sem hv. 5. landsk. (JJ) sagði um símasamningana. Jeg skal endurtaka það, sem jeg sagði í dag, að það er síður en svo, að jeg sje á móti því að halda fund með þinginu um þetta mál. Mun því gera það, þegar tími verður til. En nú sem stendur sje jeg það ekki fært vegna anna, þar sem fundir standa nær því frá morgni til kvölds.

Vegna orða hv. 1. landsk. (SE), um að rjett sje að bera samningana undir þingið til endanlegrar samþyktar, vil jeg benda á, að það getur verið miklum erfiðleikum bundið, og get jeg því ekki ráðið til þess.