04.04.1925
Neðri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3251 í B-deild Alþingistíðinda. (2032)

104. mál, útflutningsgjald

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg styð þá till. háttv. 3. þm. Reykv. (JakM), að málinu verði vísað til fjhn., og vona jeg, að hún aðhyllist þá skoðun mína, að ekki eigi að stofna til stöðugs skatts, heldur eigi gjald þetta aðeins að vera í gildi meðan ríkissjóður er að inna af hendi skyldur sínar við ræktunarsjóð Íslands.