20.04.1925
Neðri deild: 60. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3251 í B-deild Alþingistíðinda. (2034)

104. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Jeg hefi litlu við að bæta nál. á þskj. 331. Eins og það ber með sjer, þá leggur fjhn. til, að frv. verði samþykt.

Ef frv. um ræktunarsjóð Íslands nær fram að ganga, þá er sýnilegt, að eitthvað verður að gera til að sjá ríkissjóði fyrir tekjum, til að jafna á móti framlagi hans til ræktunarsjóðsins. Og er þá um það eitt að velja, á hvern hátt það verði gert, og úr því leysir þetta frv.

Þær till. aðrar, sem helst þykja geta komið til greina, og sem vísað er til í nál., eru kunnar hjer í hv. deild. Hefir nokkuð verið um þœr rætt og þær ástæður metnar, sem mæla með og móti hverri fyrir sig. Munu þær á engan hátt vera líklegri leiðir til að leysa úr um framlag ríkissjóðs til ræktunarsjóðsins, hvorki í sjálfu sjer nje til að ná meirihlutafylgi í þinginu. Þykir mjer ekki ástæða til að hefja verulegar umræður um þær á ný, enda liggur ekki fyrir til atkvæða nú annað en þetta frv.

Það, sem einna ákveðnast hefir verið haft á móti þessu frv., er það, að með því yrði útflutningsgjaldið gert að föstum skatti. Út af því skal jeg aðeins taka það fram, sem áður hefir verið bent á, að svo er í raun og veru ekki vegna framlagsins til ræktunarsjóðsins. Vegna þess þarf frv. ekki að vera í gildi nema nokkur ár. Hinsvegar má það ef til vill fremur til sanns vegar færa að því er kemur til framlagsins til landhelgisgæslunnar. Þó er auðvitað altaf opin leið til að fella þessi lög úr gildi eins og hver önnur lög, ef þá er jafnframt sjeð fyrir tekjum í þessu hvorutveggja skyni á annan hátt. En þar sem telja má fullráðið, að aukin verði landhelgisgæslan, og að af því leiðir stórum aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, þá leiðir af því einnig, að auka verður tekjur hans með auknum, föstum tollum eða sköttum í einni eða annari mynd. Og þá er álitamál, hvort það verður gert á annan hátt eðlilegri en þennan. Og það má einmitt telja höfuðmeðmæli með þessu frv., að það sjer fyrir þörfum ríkissjóðs í hvorutveggja þessu skyni, bæði framlaginu til ræktunarsjóðsins og tekjuauka til aukinnar landhelgisgæslu.

Frekar sje jeg ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. þetta meðan engin mótmæli koma fram.