13.05.1925
Efri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3269 í B-deild Alþingistíðinda. (2048)

104. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Jónas Jónsson):

Hv. 1. þm. Rang. (EP) greip inn í umr. og mótmælti því, sem hann kallaði hrakspár mínar. Jeg hafði aðeins sagt kost og löst á málinu og það, að jeg hefði ekki sjerlega trú á því, vegna þess hvernig hæstv. fjrh. (JÞ) og fylgismenn hans hefðu tekið á málinu. Það situr nú ekki á prestinum að fordæma mig, þótt mjer yrði það að reyna að skygnast dálítið fram á veginn, þar sem það er brauðatvinna hans að reyna að fræða sóknarbörn sín um ókomna tímann.

Hann vildi ennfremur afsaka það, að hann og flokksbræður hans hefðu snúist á móti landnámssjóðnum. Mjer var altaf ljóst, að svo stór hugsjón gat ekki átt von á góðu frá honum. Það mál, hversu fjölga eigi býlum og efla ræktun landsins er of umfangsmikið hugsjónamál til þess, að viljalitlum og skilningssljóum mönnum sje til trúandi að bera gæfu til að fylgja því. Hv. þm. (EP) hefir ekki náð út yfir þetta mál, ekki fundið mikilvægi þess. Það er auðvitað mál, að engum dettur í hug að byggja nýbýli í sveit fyrir lánað fje með 6% vöxtum og máske 10% afföllum af brjefunum. Þeir, sem ekki sjá, að hjer þarf eitthvað að gera, eru að minsta kosti kjánar, eins og hæstv. forsrh. (JM) leyfði sjer að segja hjer í hv. deild. Þá verður að átelja hv. nefnd fyrir að hafa sest á þetta mál. Hinsvegar er ekki viðkunnanlegt, að flm. máls þurfi að biðja nefnd að gera skyldu sína, því hún á að gera það án þess. En sannast mun það, að hvernig sem um frv. þetta fer nú, þá mun hugmynd sú, sem liggur að baki því, reynast langlífari en sagan um þingsafrek hv. 1. þm. Rang. (EP).

Þá vík jeg að ræðu hæstv. fjrh. (JÞ), og get jeg ekki að því gert, þó hann hafi kosið að vera fjarverandi. Hann líkti mjer við frægan mann, sem einu sinni var uppi á Grikklandi. Hafði jeg ekki hugsað mjer svo hátt að bera mig saman við þann mann. En nú vil jeg benda hæstv. ráðherra á, að ef Demosþenes væri uppi hjer nú, myndi hann áreiðanlega bæði í blöðum og á annan hátt berjast af alefli móti útlenda valdinu og útlendu peningaáhrifunum. Og það vill svo vel til, að saga er til um það, hvernig ástandið var í Grikklandi á dögum Demosþenesar. Útlendu óvinirnir, sem ætluðu að brjótast inn í landið, lýstu Grikkjum svo, að vinna mætti hverja borg, þar sem asni, klyfjaður af gulli, kæmist inn um borgarhliðin. Þeir þektu fjegræðgi Grikkja og vissu, hve auðvelt var að vinna þá með því að gefa fje út. Varð það og bani hinnar frjálsu og glæsilegu grísku menningar. En það er eftirtektarvert, að þetta kemur fyrir á öllum hnignunartímum, að útlenda peningavaldið opnar borgarhliðin; afleiðingin verður ófrelsi og kúgun, sem síðan eyðileggur þjóðina. Hvort hægt sje að tala um hliðstæður hjer á Íslandi, skal ósagt látið, en helst mætti þá benda á þau dæmi þegar blöð eru gefin út fyrir útlent fje og þeim dreift út um landið ókeypis í trássi við viðtakendur. Hæstv. fjrh. hjelt því fram, að jeg hefði stofnað til ófriðar hjer á landi. En jeg get bent honum á, að mitt starf hefir verið með öðrum hætti. Jeg hefi stuðlað að því með samherjum mínum, að sameiningarbrú gæti myndast milli hjeraðanna á Íslandi, og það hefir tekist svo vel, að slíks eru ekki dæmi áður. 40 hjeruð og bygðir kaupa nú og selja vörur sínar með frjálsum samtökum. Kaupmenn aftur á móti keppa hver við annan og reyna að rífa skóinn hver niður af öðrum, sjer og viðskiftamönnunum til óhags. Ásökun hæstv. fjrh. í minn garð er því alls ekki rjett. Jeg hefi reynt að byggja brú milli hjeraðanna og sameina þjóðina, en það verður varla sagt um þá menn, sem ganga í samband við Berléme hinn danska, sem gladdist yfir því, þegar Goðafoss strandaði og gerði gys að sjálfstæðisbaráttu okkar.

(Forseti: Það er óviðeigandi að skamma fjarstadda menn). Jeg er aðeins að sýna fram á, hvaða menn það sjeu, sem eru að ala á sundurlyndi með þjóðinni og gefa út blöð, sem telja bændur landsins á að svíkja sjálfa sig.

Þá kem jeg að sjálfri vörn hæstv. fjrh. Hann sagði fyrst frá því, að hann væri fæddur og alinn upp í sveit og hefði þar drukkið í sig löngunina til að hjálpa bændum. Raunar játaði hann, að þessa hefði lítið gætt, nema hvað hann hefði talað um það austur í Árnessýslu, er hann var að sækjast eftir þingmensku þar, að hann vildi fá járnbraut þangað að ofanverðu og höfn neðan til. Og þarna er áhuga hans fyrir framförum sveitanna rjett lýst. Áhuginn blossar upp, þegar hann er að biðja um þingmensku í sveitakjördæmi. En líklega hefir þessi eldur áhugans ekki ljómað nógu skært, því að bændur vildu ekkert hafa með hann að gera. En nú kveðst hann ekki nógsamlega geta þakkað forsjóninni fyrir að hafa losað sig frá því að sitja á þingi 1917—1921. En þetta er árás á hans flokk, og hafi það verið gæfa að bera ekki ábyrgð á þáverandi stjórnarforseta, þá mun svipað mega segja um þann núverandi. Og það er alls ekki satt, sem hann sagði, að málið um fasteignabankann 1921 hafi verið illa undirbúið. Það var ítarlega rannsakað, bæði utanlands og innan, af manni, sem var mjög vel hæfur til þess, og sem hafði kynt sjer rækilega erlendar fyrirmyndir. Sýnir það, hvað hæstv. ráðherra (JÞ) er óáreiðanlegur, þegar hann kallar, að þetta mál hafi verið illa undirbúið. — Málið komst líka í gegn, en það var aðeins vegna þeirrar kreppu, sem var í landinu, sökum óstjórnar og ytri orsaka, að bankinn var ekki stofnaður.

Næsta sporið var svo löggjöfin um búnaðarlánadeildina. Mikill hluti stjórnarflokksins studdi hv. þm. Str. (TrÞ) í því að koma henni í gegn, en það var skilningsleysi hæstv. ráðherra (JÞ) að kenna, að málið komst ekki í framkvæmd. Hæstv. ráðh. (JÞ) hefir viljað kenna Landsbankanum um þetta, en fyrst hægt var að stofna búnaðarlánadeildina hálfu ári eftir, að til var ætlast, þá hefir áreiðanlega verið hægt að stofna hana eins strax. Að hæstv. stjórn ljet loks verða af því að stofna deildina, var einungis af ótta við það, sem líka hlaut að verða, að stuðningsmenn hennar neyddust til að samþykkja vantraust á hana, ef hún hjeldi áfram að tregðast.

Þá vildi hæstv. fjrh. (JÞ) verja sig með því, að hann hefði gert uppkast að lögum um ræktunarsjóðinn. Svo stóð á, að hann vissi, að öll þjóðin hafði kveðið upp áfellisdóm yfir honum vegna búnaðarlánadeildarinnar. Þess vegna gerði hann ómerkilegt uppkast að nefndu frv. og sendi það Búnaðarfjelaginu til yfirlestrar. Þar er sett nefnd í málið. Hún fann raunar lítið vit í hinu upprunalega frv., en semur nýtt og lætur hæstv. ráðh. (JÞ) jafnan vita, hvar málum sje komið. En hvað gerir hæstv. ráðh. (JÞ)? Hann tekur ekki upp breytingar þær til bóta, sem þessi nefnd gerði. Hann tekur ekki upp ákvæðið um, að Landsbankinn hjálpi og sleppir sömuleiðis útflutningstollinum. M. ö. o.: Hann leitar aðstoðar Búnaðarfjelags Íslands, tekur frv. þess, en fellir úr því alt það raunverulega og kallar svo hismið, sem þá er eftir, stjórnarfrv.! Hann kveðst ekki hafa látið búnaðarþingið sjá þetta frv. En það hefði þó óneitanlega verið eðlilegt, að svo hefði verið gert, því jeg man ekki betur en komið hafi verið svo nærri Alþingi, þegar búnaðarþingið starfaði, að vel hefði mátt leggja frv. fram fyrir það. Sannleikurinn mun vera sá, að hæstv. stjórn hefir ekki óskað að láta búnaðarþingið sjá frv. Hinsvegar mun því hafa verið fullkunnugt um, að hæstv. stjórn vildi ekki taka till. þess til greina, og því skoraði það á hv. þm. Str. (TrÞ) að bera þetta frv. fram. Sjást á þessu heilindi hæstv. fjrh. (JÞ), sem talar vel til bændanna, þegar hann býður sig fram í sveitakjördæmum, en berst svo á móti búnaðarlánadeildinni og daufheyrist við till. Búnaðarfjelags Íslands, en leggur fyrir þingið frv., sem búnaðarþingið vissi, að ekkert var á að græða, enda hefir nú Alþingi samþykt kjarnann úr viðbótartill. búnaðarþingsins. Ef hæstv. ráðh. (JÞ) hefði borið gæfu og vit til að vera með nefndinni, sem tók frv. hans til athugunar, þá hefði öðruvísi farið fyrir honum, en ólán hans var að geta ekki notfært sjer betri hugmyndir annara manna, fyrst hann sá ekki það rjetta sjálfur.

Þá vildi hæstv. fjrh. ennfremur verja sig með því, að hann hefði þó að minsta kosti ekki stofnað til óþarfra embætta, en hvað segir hæstv. ráðh. (JÞ) um till. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ), að stofna ekki sjerstakt embætti við þessa deild, heldur hafa hana sem deild úr Landsbankanum? Það virðist yfirleitt hafa komið illa við hæstv. ráðherra (JÞ), sem jeg mintist á viðvíkjandi embættastofnunum. Hann gat þannig ekki borið á móti því, að blöð stjórnarflokksins hafa hamast út af veitingu bankaeftirlitsmannsembættisins, sem einmitt Íhaldsflokkurinn bjó til. En svo illa hafði tekist til, að það var ekki maður úr þeim flokki, sem embættið hlaut, eins og ráð hafði verið fyrir gert.

Búnaðarþingið hafði ekki hugsað sjer, að búið yrði til sjerstakt embætti við þennan sjóð, heldur yrði hann falinn Landsbanka Íslands eða honum stjórnað á líkan hátt og söfnunarsjóði Íslands. En þó hæstv. fjrh. hefði felt tekjuaukann, þá hafði hann samt rænu á að stofna nýtt embætti við sjóðinn, og leikur ekki á tveim tungum, að það sje ætlað einum stuðningsmanni hæstv. stjórnar, sem stundum hefir átt nokkuð erfitt með að fylgja henni að málum. Og hvað sem um þetta er, þá verður því ekki neitað, að búnaðarþingið óskaði ekki eftir, að embættið yrði stofnað, og nær helmingur var á móti því í hv. Nd., en stjórnarflokkurinn var ákafur í að fá embættinu komið á. Ef þetta er ávöxtur af umhyggju fyrir bændum, þá er sýnilegt, að eðlilegra hefði verið að láta tekjuafgang sjóðsins renna í varasjóð, fremur en að búa til fyrir hann embætti, sem bændur sjálfir vilja ekki hafa með að gera. En það var nú svo, að þegar hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) kom með sína tillögu, þá voru allar hendur á lofti í Íhaldinu til að bjarga embættinu. En þá er gæfa hæstv. ráðh. (JÞ) meiri en jeg hefi haldið, ef sú embættisskipun verður honum ekki síðar meir til áfellis.

Þá á sá hæstv. ráðherra (JÞ), sem altaf hefir staðið á móti öllum framförum landbúnaðarins, að velja gæslustjóra við þessa stofnun. í hv. Nd. mátti raunar varla á milli sjá, hvort þetta yrði ofan á, því margir töldu betur til fundið, að búnaðarþingið hefði hjer hönd í bagga. Og nú get jeg tekið undir það, sem hv. 1. landsk. (SE) sagði, að ekki mun látið ótalað um þetta mál. Því verður áreiðanlega haldið vakandi á næstu árum, og þá verður tekið fastari tökum á ræktun, landnámi og byggingu landsins en raunin er ennþá orðin. Og að lokum vil jeg segja það, að þó nú takist að búa til þrjá persónulega bitlinga, og ekki annað, þá mun síðar koma hjer upp stór fasteignabanki, sem er ekki til að búa til bitlinga, heldur til að hjálpa þjóðinni.