14.05.1925
Efri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3280 í B-deild Alþingistíðinda. (2053)

104. mál, útflutningsgjald

Frsm. (Jónas Jónsson):

Við 2. umr. í gær sagði hv. þm. Vestm. (JJós) nokkur orð, ekki um málið sjálft, heldur utan við málið. Vona jeg, að hann taki ekki til þess, af því að þar voru vissir hlutir sagðir af ókunnugleika, þó að jeg leiðrjetti þá hjer. Hv. þm. (JJós) gat þess meðal annars, að það hefðu komið fram í minni ræðu einhverskonar hnútur til sjávarútvegsmanna í sambandi við þetta frv. Nú vil jeg benda á, að þetta frv. er ekki eins og nefnd Búnaðarfjelagsins lagði til um innflutnings- og útflutningsgjaldið. Þessu er breytt í hv. Nd. á tvennan hátt. Fyrst er felt niður innflutningsgjaldið, og að hinu leytinu er þetta útflutningsgjald gert varanlegt vegna sjávarútvegsins, því þá er búið að ákveða að láta byggja strandvarnarskip í viðbót, og þetta tækifæri er notað til þess að tryggja því tekjur, sem falla jafnt á alla. Það er því bygt á misskilningi, að þessi fórn, sem sjávarútvegurinn færir landbúnaðinum, sje meira en vanalegur skattur, sem lagður er á alla vegna strandvarnarskipsins. Jeg get látið ánægju mína í ljós yfir því, að strandvarnarskipið er trygt með þessum skatti, og jeg mintist ekkert á, að það væri óverjandi, að hann legðist á alla útflytjendur. Auðvitað getur það verið, ef úlfúð verður út af þessum málum á milli útflytjenda, að það verði gerðar breytingar á þessu síðar, en það liggur ekki fyrir nú. Hv. þm. (JJós) taldi mig ekki dómhæfan um þetta mál, af því að jeg hefði verið í stjórn kaupfjelags hjer í Reykjavík, sem hefði gengið illa. En jeg vil þá minnast á tvent í þessu sambandi. Fyrst er nú það, að eftir því sem ýmsir andstæðingar mínir segja, á jeg að vera svo áhrifamikill, og í blaði einu hjer, sem Berléme stórkaupmaður gefur út, eru mjer eignuð mörg fyrirtæki úti um land, sem ganga býsna vel. Þetta er nú að vísu oflof, en ef það að einhverju leyti á að vera mjer að þakka, þá geri jeg ráð fyrir, að þó að eitt af fjelögunum hjer hafi verið í vandræðum, þá muni það ekki geta talist nein algild sönnun fyrir því, að jeg geti ekki haft vit á slíkum málum. Jeg get sagt hv. þm. (JJós) það, að jeg bar minn kross og borgaði mínar skaðabætur ekki síður en aðrir fjelagsmenn, og sjerstaklega get jeg bent hv. þm. (JJós) á það, að höfuðóhapp fjelagsins, sem jeg hefði ekki minst á, ef ekki hefði verið gefið sjerstakt tilefni til þess, var það, að maður, sem heitir Sigurður Sigurðsson og hefir skrifað mikið í þetta blað hr. Berléme’s — (Forseti: Má jeg biðja hv. þm. að blanda ekki utanþingsmönnum inn í ræðu sína). Nafnið kemur þessu máli við. Þessi maður stýrði fjelaginu um stund, þegar það tapaði 20 þús. kr. á tveimur mánuðum.