14.05.1925
Efri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3282 í B-deild Alþingistíðinda. (2054)

104. mál, útflutningsgjald

Jóhann Jósefsson:

Jeg hefi ósköp lítið að segja um þessa ræðu hv. 5. landsk. (JJ). En það er dálítið skringilegt, þegar hv. þm. (JJ) er að tala um það, að jeg hafi talað mest utan við málið, en ekki um það. Hv. þm. (JJ) vissi það, eins og jeg tók fram í gær, að það mál, sem fyrir lá, var ósköp einfalt, og auk þess mál, sem allir voru orðnir sammála um. En hvað þetta snertir, að hækka útflutningsgjaldið til þess að leggja ræktunarsjóðnum til fje, þá vil jeg biðja háttv. 5. landsk. að skygnast svolítið í sinn eiginn barm, og ef hann man nokkuð af öllum þeim langlokum, sem hann flutti hjer, ekki um þetta mál, heldur um alt milli himins og jarðar, þá hlýtur hann að koma auga á það, að hann var ekki við málið, heldur svo langt fyrir utan það, sem framast mátti verða. Jeg benti hv. þm. (JJ) á það í gær, að það væri raun að sitja undir ræðum, sem ekki einusinni koma ekki málinu við, heldur eru svo langt fyrir utan það, að hv. þm. (JJ) jafnvel notaði þetta mál til árása. Það mun sjást í þingtíðindunum, að ræður hv. þm. (JJ) voru meira og minna þrungnar af árásum, sem var beint til þeirra manna, sem eru riðnir við sjávarútveginn. Jeg býst reyndar ekki við, að hv. þm. (JJ) hafi nefnt sjávarútvegsmenn, en hann beindi aðallega skeytum sínum að Íhaldsmönnum og Íhaldsstjórn, og kaupmenn nefndi hv. þm. (JJ) líka, svo þó að hann nefndi ekki sjávarútvegsmenn, þá mátti skilja það, að þeir fóru ekki varhluta af þeim lestri, sem hv. þm. (JJ) hjelt í gær. Þetta leyfði jeg mjer að átelja, og myndi hafa gert það, hver sem í hlut ætti, því að mjer fanst þetta mál þannig vaxið, að það væri síst ástæða til að gera það að ádeiluefni á vissa stjórnmálaflokka eða vissar stjettir í landinu. Það má vera ákaflega rík hvöt til staðar til að ófrægja pólitíska andstæðinga sína hjá þeim, sem nota þetta mál á sama hátt og háttv. 5. landsk. gerði í gær; sú hvöt er svo rík, að haldist hún jafnmögnuð framvegis, þá verður það ekki einungis óheppilegt fyrir hv. deild, heldur og fyrir hv. þm. (JJ) sjálfan. Jeg álít, að þó að hv. þm. (JJ) skoði það svo, sem það sjeu miklir gallar á frv. um ræktunarsjóðinn og þessu frv., sem flutt er sem máttarstoð fyrir hann og strandvarnarskipið, þá er það þó mjög hart að þurfa að hlusta á tóman útúrsnúning og ófrægingar um þá aðallega, sem eiga að láta af hendi fje til styrktar ræktunarsjóðnum. Þá mintist hv. þm. (JJ) lauslega á einn galla á frv. um ræktunarsjóðinn, þann, að till. Búnaðarfjelagsnefndarinnar um innflutningsgjaldið hefðu ekki verið teknar til greina; og vil jeg þá minna hv. þm. (JJ) á það, að hann hefir oft látið í ljós óánægju sína yfir þessum háu tollum á aðfluttum vörum, sem hann stundum kallar nefskatta. Hann þykist hafa sjerstaka aðstöðu í því, og hefir t. d. mjög skýrt tekið það fram, að hann væri á móti verðtolli í hvaða mynd sem væri. Hvernig á nú að samræma þetta tvent? Hv. þm. (JJ) er á móti því, að neysluvörur sjeu tollaðar, og þó finst honum það galli á frv. um ræktunarsjóðinn, að till. Búnaðarfjelagsnefndarinnar um að leggja gjald á aðfluttar vörur, með öðrum orðum að tolla enn á ný allar vörur, þar á meðal neysluvörur, til þess að efla ræktunarsjóðinn, hefir ekki náð samþykki þingsins. Hv. þm. (JJ) mun sjá það, að samkvæmt aðstöðu sinni um tolla á aðfluttum vörum ætti hann að vera ánægður yfir því, að þetta gjald var felt burtu. Það væri ofdirfska að væna hv. þm. (JJ) um það, að hann hefði ekki þekkingu á verslunarmálum, þegar maður veit, að hann stendur fyrir verslunarskóla, enda skal jeg ekkert fara út í það, en hitt er vitanlegt, að þekking hv. þm. (JJ) er talsvert annars eðlis en alment gerist, eða að minsta kosti eftir annari meginreglu en í almennum verslunarskólum.

Hv. þm. (JJ) gaf kaupmönnum þann vitnisburð í sinni ræðu, að þeir drægju skóinn hver niður af öðrum. Þegar hv. þm. (JJ) fanst það viðeigandi við umræðu um aukið útflutningsgjald að kasta hnútum til þeirrar stjettar landsins, sem, þegar hún er skoðuð sem stjett, kemur til með að láta af mörkum, einmitt sjálf, ekki svo lítið í ræktunarsjóðinn, eða hluta af útflutningsgjaldinu, þegar hv. þm. (JJ) fanst það viðeigandi að kasta hnútum til þeirrar stjettar, þá get jeg ekki stilt mig um að benda hv. þm. (JJ) á það, að hann geti ekki mjög frómt úr flokki talað, ef um verslunarfyrirtæki er að ræða; til þess hafa afdrif þeirrar verslunar, er hann komst næst, verið of bágborin. Jeg heyri nú, að hv. þm. (JJ) vill telja sig yfirkaupfjelagsstjóra allra kaupfjelaga. (JJ: Berléme segir það). Nei, vitanlega er ekki talið, að hv. þm. (JJ) sje eða hafi verið í stjórn annara verslunarfjelaga en þess, sem jeg mintist á, og þarf jeg ekki að endurtaka það, enda hefir hv. þm. (JJ) sjálfur kannast við það.