07.02.1925
Sameinað þing: 1. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (2142)
Konungsboðskapur
Stóð þá upp Jóhannes Jóhannesson, þm. Seyðf., og mælti:
Lengi lifi konungur vor, Kristján hinn tíundi!
og tóku þingmenn undir þau orð með níföldu húrrahrópi.
Forsætisráðherra kvaddi síðan elsta þingmanninn, Sigurð Jónsson, 2. landsk. þm., til þess að gegna forsetastörfum og stjórna kosningu forseta sameinaðs þings.
Gekk aldursforseti (SJ) þá til forsetastóls og tók við fundarstjórn. Kvaddi hann sjer til aðstoðar sem skrifara Jóhannes Jóhannesson, þm. Seyðf., og Þorleif Jónsson, þm. A.-Sk.