15.05.1925
Neðri deild: 82. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3359 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)
Starfslok deilda
forseti (BSv):
Fyrir þessum fundi liggur engin dagskrá.
Þessi er síðastur fundur deildarinnar. Skýrslu um störf hennar mun forseti sameinaðs þings flytja að þinglausnum. Er því eigi annað fyrir hendi en að lúka störfum deildarinnar.
Vil jeg tjá starfsmönnum deildarinnar þakkir fyrir starf sitt, sem allþungt hefir orðið á hinum löngu fundum, sem hjer hafa háðir verið; og í annan stað vil jeg þakka hv. þm. fyrir einkar góða samvinnu á þessu þingi.
Árna jeg bestu fararheilla þeim, er hjeðan eiga heim að sækja, og góðrar heimkomu, og öllum þingheimi alls hins besta.
Vona jeg, að vjer megum allir heilir hittast.