24.03.1925
Neðri deild: 41. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (22)
1. mál, fjárlög 1926
Jakob Möller:
Það er annars merkilegt um jafnvitran mann og háttv. þm. Dala. (BJ), hversu gersneyddur hann er því að hafa sett sig inn í þetta mál. (BJ: Bíði háttv. þm.; jeg skal hitta hann aftur að máli). Síðasta setningin í ræðu háttv. þm. Dala. ber þess ljósastan vottinn, hversu lítið háttv. þm. skilur í þessu máli, er hann álítur þetta hjegómamál. Hjer eru margir þeir menn á þingi, sem álíta, að hjer sje um það að ræða, að framinn hafi verið hinn óskammfeilnasti fjárdráttur um langan tíma og í stórum stíl. Það má vel vera, að það sje í mörgum tilfellum ekki mikið, sem haft hafi verið af hverjum einstökum viðskiftamanni, og hjá ýmsum nemur það máske ekki meiru en svara mundi málskostnaði, ef farið væri í skaðabótamál. Hinsvegar spyr háttv. þm. Dala.: Hví kæra menn ekki ? Það er af því að menn hafa verið hræddir um, að kærur þeirra yrðu ekki teknar til greina og eins hitt, ef þær yrðu dæmdar ástæðu lausar, þá getur það að hafa kært varð að við lög. Hæstv. stjórn hefir farið þann veg með þetta mál, að það er vor kunn, þótt einstakir atvinnurekendur sjeu ragir við að höfða skaðabótamál, og ekki síst þegar ekki er um stórar upphæðir að rða hjá hverjum einum, en háttv. þm. Dala. skilur þetta ekki fremur en annað, sem snertir þetta mál; en það, sem hann gerði eða ætlaði að gera, var það, að hann reyndi að klóra yfir gerðir stjórnarinnar. Það var það eina, sem honum var umhugað í þessu máli, og þess vegna verður hann svo æfur, er vikið er að því, hvernig þetta yfirklór hans mistókst. Háttv. þm. Dala. kvaðst engin skjöl hafa sjeð. Háttv. þm. hefir þá lokað augunum; hann veit að skjallegar yfirlýsingar eru til um málið, en hann lokar augunum af því, að hann vill ekki sjá, því að hann hugsar um það eitt að bjarga við stjórninni. (BJ: Hefir háttv. þm. sýnt mjer nokkur skjöl?). Jeg vjek að því í ræðu minni áðan, að það væri skýrsla hæstv. atvrh. (MG), sem hefði haft mest áhrif á mig og ráðið stefnu minni í þessu máli; en í þeirri skýrslu hæstv. ráðh. er það tekið fram, að það geti verið álitamál, hvort ekki hefði átt að höfða sakamál. Jeg hefi bygt mína skoðun á þessari skýrslu ráðherrans, en háttv. þm. Dala. vill hvorki sjá þá skýrslu nje heyra. Hann vill sem sje ekkert vita eða skilja í þessu máli.
Hversu gersamlega hv. þm. Dala. (BJ) er gersneyddur öllum skilningi á þessu máli, sjest best, er hann talar um það, að þingið taki sjer dómsvald í því, þótt það láti fara fram rannsókn, til þess að komast að niðurstöðu um það, hvort hið opinbera eigi að höfða sakamálsrannsókn. Háttv. þm. Dala. hefir jafnan þóst góður af lagaviti sínu, en þarna brást honum lögkænskan. (BJ: Við skulum sjá). Það er að öðru leyti óþarft að fara lengra út í ræðu háttv. þm. Dala. Jeg hygg, að flestum háttv. þingdeildarmönnum sje það fullljóst orðið, að öll hans ræða var erkiendileysa ein, því að háttv. þm. Dala. hvorki sjer það, sem rjett er í málinu, nje vill sjá það. Hann vjek að því dæmi, sem jeg tilfærði úr sögunni; jeg gerði það ekki af því að jeg væri að hæla rjettarfari 16. aldar. Jeg tók þetta dæmi aðeins til að sýna það, að til væru þó ljósdeplar innan um og að núverandi ástand okkar rjettarfars væri jafnvel að sumu leyti komið enn lengra niður á við, enda hefir háttv. þm. Dala. ekki reynt að hrekja þetta, því að hann ljet sjer nægja að snúa út úr orðum mínum. Hann veit vel, að mjer mundi aldrei koma til hugar að rjettlæta rjettarfar Dana hjer á landi á miðöldunum.
Hæstv. atvrh. (MG) þarf jeg litlu að svara. Hann sagði, að virkjunarleyfið væri bundið þeim skilyrðum, að saman gengi um ýms skilyrði, sem stjórnin setti áður en leyfið yrði veitt. Jeg álít rangt, að þarna hafi stjórnin farið fulllangt. Jeg álít rangt af henni að gefa nokkurn ádrátt í þessu efni, nema samþykki þingsins komi til.
Hvað viðvíkur bifreiðarinnflutningsleyfinu, þá tek jeg það fullkomlega trúanlegt, sem hæstv atvrh. (MG) segir, að þar hafi verið um óaðgsluyfirsjón að ræða, en trúað gæti jeg því, að fleira væri það en þetta eitt, sem farið hafi í handaskolum hjá hæstv. stjórn við framkvæmd aðflutningshaftanna. Hæstv. atvrh. dásamaði mjög innflutningshöftin og taldi, að innflutningur á ónauðsynlegum varningi hefði minkað vegna haftanna. Það getur vel rjett verið, að innflutningur allur hafi minkað að nokkru, en það er ekki innflutningshöftunum að kenna eða þakka. Aðalástæðan til þess, að innflutningurinn hefir minkað á þessum krepputímum, sem verið hafa undanfarið, er sú, að hið erfiða árferði hefir kent mönnum að eyða minna í óþarfa en áður.
Þó að minna hafi t. d. verið eytt af súkkulaði en áður, hefi jeg þó aldrei orðið var við, að hörgull væri á þeirri vöru hjer í bænum, þrátt fyrir öll innflutningshöftin. Innflutningurinn minkaði vegna þess, að minna var notað af þessum vörum en áður. Jeg hefi t. d. heyrt, að mörg kaupfjelög hafi haft samtök um að flytja alls ekki inn súkkulaði, vegna þess að bændur notuðu það sama og ekki. Hæstv. ráðherra tók fram, að ekki væri auðvelt að hafa eftirlit með því, að einstakir menn eða fyrirtki gerðu ekki samninga við bæjar- eða sveitarfjelög um opinber gjöld sín til þeirra. Þetta veit jeg, að er satt; en jeg tók þetta fram til þess að benda á, að þetta hefði átt sjer stað, og það jafnvel hjer í nágrenninu. (Atvrh. MG: Það varð ekki úr því). Hvað sem því líður, er hitt víst, að „Krossanesbóndinn“ hefir skamtað sjálfur útsvar sitt til Glæsibæjarhrepps í Eyjafirði, og er því alveg sjerstök ástæða til þess að athuga tekjuskatt þessa manns í sambandi við það, er það er vitað, að hann hefir þetta vald yfir sveitarstjórninni norður þar. Því ekki er ólíklegt, að svipað gæti átt sjer stað um skattanefndina. (Atvrh. MG: Hann taldi ekki fram). Mjer þykir vænt um að heyra það, að þetta hefir verið brýnt fyrir skattanefnd Eyjafjarðarsýslu. Og besta ráðið gagnvart þeim mönnum, sem ekki hlýða lögunum í því að telja fram tekjur sínar og eignir, er að áætla skattinn nógu háan. Það var því enn meiri ástæða til þess, að yfirskattanefndin ljeti þetta mál til sín taka, er hún hefir vafalaust vitað, hvernig ástatt var um þennan mann, sem fer sínu fram án þess að hirða um landslög eða rjett.