02.03.1925
Efri deild: 20. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í C-deild Alþingistíðinda. (2202)

19. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Forsætisráðherra (JM):

Mjer kom það nú ekki svo mjög á óvart, þó að hv. mentmn. legðist á móti frv. þessu og vilji halda skemtanaskattinum óbreyttum til þjóðleikhússins.

Framsöguræða hv. 1. landsk. þm. (SE) grundvallaðist mest á nál. Hann drap á þetta, sem allir vita, að síðasta árið hefir verið óvenjulega hagstætt þjóðarbúskapnum, og hann hjelt því fram, að kæmu fleiri slík góð ár á eftir, þá liði ekki á löngu, að landsspítalinn rísi af grunni. Um þetta atriði er jeg algerlega sammála honum og nefndinni. En því vildi jeg þó bæta við, að jafnan er erfitt að spá eða spyrja um árferði, eða hvað framundan er. Og þetta ár, sem nú er að byrja, hefir ekki byrjað vel. Við vitum, að fljótt skipast veður í lofti og að slæmt ár getur fylgt á eftir góðu ári. En satt er það, að eitt ár getur gert nokkuð til að bæta úr.

Annars verð jeg að láta þess getið, að mjer finst nefndin alt annað en vongóð um byggingu landsspítalans, úr því hún tekur ekki fastari tökum á því en svo, að binda byggingu hans við það eitt, að ári vel, — „ef árar vel“, stendur í nál.

Jeg hjelt, að nefndin, og raunar allir, mundu líta svo á, að óhjákvæmilegt væri að vinda mjög bráðan bug að því, að koma landsspítalanum upp, og byrja á því starfi sem allra fyrst, og án þess að binda það við árferði. Sem betur fer, er það ekki afskaplega mikið fje, sem vantar, til þess, að byrjað sje á þessari byggingu, það eru svona um 75 þúsund kr., fyrstu 2–3 árin, og þá verð jeg að segja, að 1/3 þessarar upphæðar sje þó nokkurs virði, en því er hægt að ná á þann hátt, sem frv. þetta nefnir. Jeg held, að engum, og ekki heldur sparnaðarnefnd, hafi komið til hugar, að bíða ætti þangað til að öll sú upphæð væri fengin, er þyrfti til þess að reisa landsspítalann En hinsvegar leit nefndin svo á, að þær 25 þús., er frv. gerir ráð fyrir að fengist af skemtanaskatti, mundu þó ljetta undir. Þessi „kyrstaða“ í málinu, eins og mentamálanefnd túlkar það í áliti sínu, er því misskilningur. Enda tók jeg þetta fram við 1. umr. málsins, en það er eins og nefndin hafi ekki heyrt það, eða þá gleymt því aftur; annars hefði hún ekki komið með þessa fjarstæðu í nál. sínu.

Hvað þjóðleikhúsið snertir, og rök þau, sem fram eru færð um nauðsyn þess, þá ætla jeg ekki áð mótmæla því. En það er ekki auðsætt, að þjóðleikhús eigi að byggja og reka á kostnað ríkissjóðs, enda mun það ekki vera svo í nágrannalöndunum, nema í Danmörku. Þar er þjóðleikhús, en í þessu þyrftum vjer ekki endilega að fara að þeirra dæmi.

Jeg get ekki annað sjeð, en að það sje allríkulega af sjer vikið, að leggja um 50 þús. kr. á ári til þjóðleikhúss, á sama tíma og viðurkent er, að ekki sje hægt að byrja á öðru eins þjóðnytja starfi og því, að byggja landsspítalann. Jeg veit að sönnu, að skoðanir manna skiftast, en fyrir mjer er það ekkert álitamál, hvað nauðsynlegast sje. Sparnaðarnefnd hefir talið nauðsynlegast að hjálpa spítölum í landinu, og sömu skoðunar er jeg. Því verður víst ekki neitað, að það er margt, sem á eftir rekur í þessu efni, og ekki hægt að sinna öllu. Jeg skal t. d. nefna berklahæli á Norðurlandi. Þaðan berast mjög alvarlegar kvartanir um það, hvað spítalinn á Akureyri sje orðinn lítill og ófullnægjandi. par er ætlað rúm 60 sjúklingum, og nú sem stendur er hann fullskipaður, og 50 af sjúklingunum eru berklaveikir. Með öðrum orðum: Akureyrarspítalinn tekur nær eingöngu orðið berklaveika sjúklinga, svo aðrir komast ekki að. Sjá því allir, að hjer er um mikil vandræði að ræða, og að ekki verður hjá því komist að bæta úr þeim sem fyrst.

Hvaðanæfa hafa borist kvartanir frá sjómönnum landsins yfir því, að vitar væru ekki nægilega margir. Það er enginn vafi á því, að mjög mætti bæta úr þessu ástandi með byggingu smávita fyrir 25 þús. krónur á ári, og hversu gott og gagnlegt sem þjóðleikhúsið kann að vera, þá finst mjer þó, að hitt ætti að ganga fyrir. Þessi skattur er óneitanlega sama sem framlag úr ríkissjóði, eða bæjarsjóði, sveitarsjóði, meðan þeir áttu að fá skattinn. Oss fer í þessu atriði líkt og manni, sem byggir sjer sumarbústað, en lætur börnin sín svelta. Jeg veit ekki, hvort mentmn. er fyllilega ljóst það neyðarástand, sem spítalaleysið hefir í för með sjer víðsvegar um land.

Jeg hefi ekki hreyft þessum andmælum gegn nál. hv. mentmn. vegna þess, að jeg búist við að hafa áhrif á gang málsins hjeðan af. En jeg vildi sýna, að frv. sparnaðarnefndarinnar væri engin fjarstæða, eins og gefið hefir verið í skyn af andstæðingum málsins. Eins og áður hefir verið tekið fram, er frv. þetta komið frá sparnaðarnefnd, sem mjer er óhætt að segja, að er skipuð bestu og gætnustu mönnum, sem kostur er á. Jeg hefi, satt að segja, ekki miklar vonir um, að frv. nái fram að ganga á þessu þingi, en jeg vil, bæði fyrir hönd stjórnarinnar og sparnaðarnefndar, leitast við að sýna fram á, að hjer sje um rjett mál að ræða, þótt hvorki hv. mentmn. nje máske hv. deild vilji ljá því fylgi sitt. Þetta er í raun og veru smámál frá stjórnarinnar hálfu. (SE: Mjer hefir heyrst á orðum hæstv. forsrh., að það sje stórmál.) Hv. 1. landsk. þarf ekki svo mjög að kippa sjer upp við það, þótt forlög stjórnarfrumvarpa sjeu upp og ofan. Hann hefir sjálfur á sínum tíma orðið að reyna sitt af hverju í því efni, og jeg held, að það sje ekki ofmælt, þótt sagt sje, að sum af frv. þessa hv. þm. (SE) hafi verið vonargemlingar.

Þá hefir nú verið talað um hringl í þessu máli. Saga málsins er sú, að með lögum frá 1918 var bæjar- og sveitarstjórnum heimilað að leggja á skemtanaskatt í sínar þarfir. Skatti þessum var afsalað í hendur ríkisins seinna, og árið 1921 er honum beitt í Rvík. 1923 er svo ákveðið, að allur skemtanaskattur skuli ganga til fyrirhugaðs þjóðleikhúss. Ef um hringl er að ræða í þessu frv., þá er það sama hringlið og 1923, og því engin sjerstök ástæða til að núa stjórninni eða öðrum fylgismönnum frv. hverflyndi um nasir í þessu efni.

Það, sem mjer þykir lakast við þessar umræður, er það, að ekki er laust við, að beint hafi verið hálfgerðum ónotaummælum til sparnaðarnefndarinnar. Allir þeir, sem í þeirri nefnd áttu sæti, eru svo þjóðkunnir menn, að þeir hefðu átt að sleppa við slíkt aðkast. Það var síður en svo, að þeir sæktust eftir að vera í nefndinni; þeir voru einmitt mjög tregir til þess. Formaður nefndarinnar ljet það og í ljós, að hann byggist ekki við neinum fagnaðarviðtökum, þótt nefndin kæmi fram með eitthvað til sparnaðar. Nefndin hefir aðeins viljað gera það eitt, sem henni fanst rjettast, hvernig sem þingið kynni að taka í till. hennar.

Þótt jeg hafi sagt eindregið skoðun mína um þetta mál, þá get jeg þó engan veginn talið það stórmál. En jeg vildi sýna, að frv. væri á rökum bygt.

Jeg þarf ekki að svara hv. 6. landsk. (IHB) mörgum orðum. Hún talaði um kyrstöðu í málinu, en þær ásakanir hefi jeg áður hrakið. Mjer er heldur ekki skiljanlegt, hvernig þetta frv. getur skapað andúð gegn landsspítalamálinu. Það er enginn vafi á því, að þjóðleikhúss er óskað af ýmsum, en þrátt fyrir það er alls ekki sjálfsagt, að leikhús sje kostað af ríkisfje. Að það sje ódrengilegt, að fylgja þessu frv., það nær ekki nokkurri átt. Þegar ákveðið var (1923), að verja skemtanaskattinum til þjóðleikhúss, þá gat jeg ekki, og 2 eða 3 þingmenn aðrir, fylgt því máli. Mjer hefir altaf þótt þetta framlag fullríflegt, á þeim sama tíma og vjer höfum orðið að neita oss um svo margt, sem mjer þótti nauðsynlegra.