02.03.1925
Efri deild: 20. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í C-deild Alþingistíðinda. (2204)

19. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Jónas Jónsson:

Af því að stundum hefir verið sagt, að jeg sýndi kaupmannastjettinni ekki þá sanngirni, sem hún ætti skilið, skal jeg geta þess, að síðasta sumar var jeg samferða kaupmanni frá Hornafirði á skipi milli landa, Þórh. Daníelssyni. Talið barst að Reykjavík. Hann sagði, að hjer þætti sjer fyrst og fremst vanta tvent: landsspítala og þjóðleikhús.

Mjer þótti dálítið óvanalegt að heyra mann úr hans sjett líta svo mannlega á þetta mál, og því get jeg þessa hjer. Hann leit svo á, að þó að menn úti um land nytu ekki þjóðleikhússins beinlínis, þá gæti það þó haft afarmikla þýðingu fyrir þjóðina alla. Jeg lít eins á þetta mál, og vil, að hvorttveggja geti komist á sem fyrst. Jeg vona, að jeg geti átt einhvern þátt í að koma hreyfingu á landsspítalamálið síðar á þessu þingi. Jeg býst við, að aðstaða hv. 6. landsk. (IHB) gagnvart þessu frv. sje nægileg trygging fyrir því, að menn geti verið með landsspítala, án þess að vera með þessu frv. Jeg tel það sóma fyrir hv. 6. landsk., að sú gildra, sem landsstjórnin hefir sett með þessu frv. fyrir vini landsspítalans, hefir ekki haft tilætluð áhrif.

Jeg drap á það við 1. umr., hve mikil fjarstæða það væri, að þetta frv. flýtti fyrir góðum úrslitum í landsspítalamálinu. Ef miðað væri við áætlunina um 3 milj. kr. stofnkostnað og 1/2 milj. kr. rekstrarkostnað, væri ekkert eiginlegt gagn að þessu. Það yrði að biða á aðra öld. Ef gert væri ráð fyrir 800 þús. til 1 milj. kr. stofnkostnaði, yrði samt að biða fullan mannsaldur. En það eru tveir möguleikar til þess, að hægt verði að byrja á landsspítalabyggingunni strax í sumar. Annar er von um erlenda gjöf, sem þó má ekki tala um frekar, að svo stöddu. Hitt er úrræði, sem jeg, í fjelagi við einn eða fleiri þingmenn, mun væntanlega koma fram með eftir nokkra daga.

Viðvíkjandi Þjóðleikhússþörfinni vildi jeg leyfa mjer að leiða fram eitt vitni, sem jeg býst við, að hæstv. forsrh. taki gilt, þar sem um er að ræða ritstjórann að hans eigin málgagni, eina málgagninu, sem stjórnin ekki afneitar. Aðalritstjóri íhaldsins segir:

„Öllum þeim, sem finst menning vera höfuðkeppikefli hverrar þjóðar, mun þykja lögin um stofnun þjóðleikhúss, sem samþykt voru á síðasta þingi, ein hin merkustu lög, sem hið endurreista Alþingi Íslendinga hefir borið gæfu til þess að setja. Ber því að vona það, að þingið í ár gæti svo sóma síns, að spilla ekki þessum lögum.“

Jeg vænti þess, að hæstv. stjórn taki tillit til þess manns, sem talar við þjóðina fyrir hennar munn, og sæki ekki fast að eyðileggja lög, er þessi maður segir einhver hin merkustu, sem sett hafi verið síðan 1845. Það hefir líka verið tekið svo djúpt í árinni, af þeim, sem að leiklistinni standa, að kalla þetta eitthvert mesta menningarmálið, sem fyrir þingið hafi komið.

Þá vil jeg víkja að öðru í áminstri grein, þar sem ritstjórinn skýrir frá, hvernig stjórnin muni líta á þetta mál. Hann segir fyrst frá afstöðu minni og hv. 1. landsk. (SE). Síðan skýrir hann frá áliti forsrh.:

„Ræða forsætisráðherra bar þess ljósan vott, að stjórninni myndi lítið áhugamál, að frv. næði fram að ganga, þó að hún hefði lagt það fyrir þingið, eftir ósk sparnaðarnefndarinnar, og vildi, að það yrði íhugað í sambandi við landsspítalamálið.“

Jeg skoða þetta — eins og menn segja erlendis — opinbera tilkynningu, og hún er hæstv. forsrh. til sóma. Skoðun ritstjórans, sem virðist „inspireruð“, er sú, að forsrh. geri þetta fyrir siðasakir, vegna sparnaðarnefndarinnar.

Það er ein fyrirspurn, sem jeg vildi gera til hæstv. forsrh. í þessu sambandi, hvort það er rjett, að hjá stjórninni liggi stórir haugar af sparnaðarfrv. frá þessari nefnd, sem þingið ekki fær að sjá. Jeg skora á hann að koma fram með allar sparnaðartillögur, sem fram hafa komið, en ekki að salta meirihlutann, en koma svo fram með nokkrar fyrir siðasakir.

Jeg hefi nú sannað með ummælum íhaldsins sjálfs, að hæstv. forsrh. hafi gert það aftan við bakið á sjer, að bera fram þetta frv. Það má ekki ætla, að ritstjórinn vilji gera stjórninni rangt til, og hafa því þessi ummæli mikið sönnunargildi.

Þá mintist hæstv. forsrh. á atkvgr. 1923, og reiknaði þannig, að það, sem þessi deild hefði samþykt þá, mundi hún samþ. nú, þ. e. a. s., ekki snúast. En henni er þó ætlað að snúast í dósentsmálinu, og er þó minni ástæða til, þar sem sama þing fer með það mál eins og í fyrra. Jeg tek þetta sem fulla sönnun þess, að skoðun ritstjórans sje á rökum bygð; hæstv. forsrh. ætti ekki að leggja eins mikið kapp á að snúa ofan af flokksbræðrum sínum í þessu máli og dósentsmálinu.

Þá var langur kafli í ræðu hæstv. forsrh. um, hvað okkur vantaði. Það er alveg rjett. Okkur vantar spítala, vegi, vita, brýr o. m. fl. En er það þá fyrst nú, að stjórnin hefir fengið fullan skilning á þessu? Jeg get bent á, að síðasta dag þingsins í fyrra kastaði stjórnin frá sjer álitlegum tekjum af álagningu vína, og með því að sameina forstöðu áfengisverslunar og landsverslunar hefði sparast nærri því eins mikið og stjórnin gerir nú ráð fyrir að fá, með því að rýja þjóðleikhúsið. Og nú í ár hefir stjórnin lagt fram tekjuskattsfrumvarp, sem mun skaða landið stórkostlega. Það miðar að því, að ljetta á stóreignamönnum, svo að landið hafi ekki sanngjarnar tekjur af gróða þeirra. Hvar er þá endurminningin um spítalana, vegina, brýrnar og alt annað, sem vantar? Og nú síðast er íhaldið að kasta frá landsjóði alt að 1/2 miljón króna á ári af verslunargróða tóbaks.

Það er ekki hægt að hafa verulega samúð með sparnaðarkvaki þeirra manna, sem fleygja frá sjer svona tekjum, sem landið gæti haft. Og svo segja þeir, að ekki sje hægt að byggja o. s. frv. Nei, það er ekki til neins að hefja sparnaðarsöngva, en kasta um leið frá sjer fje til þess að halda við alóþörfum embættum, eða til þess að gera einhverri stjett ofurlítinn greiða, eins og kaupmönnum, með því að kasta í þá tóbaksgróðanum.

Þá sagði hæstv. forsrh., að í sparnaðarnefndinni væru þjóðkunnir menn. Má ekki eins „kritisera“ gerðir þeirra fyrir því ? Einmitt þessvegna verða þeir miklu fremur að bera ábyrgð á orðum sínum og gerðum. Mjer er líka persónulega kunnugt um, að þessir menn vilja spara á ýmsan hátt, t. d. með samfærslu embætta. En þetta frv. er alls ekki sparnaðarfrumvarp. það miðar að því, að spilla fyrir þjóðleikhúsinu, án þess að bæta aðstöðu landsspítalans.

Síðast en ekki síst má telja það ilt fyrir stjórnina, að hafa sitt eigið málgagn á móti sjer og geta átt von á magnaðri „kritik“, fyrir að eyðileggja þetta merkilega mál.