13.03.1925
Efri deild: 29. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (2225)

22. mál, sóknargjöld

Eggert Pálsson:

Jeg verð að segja fyrir mitt leyti, að jeg tel það engan veginn óbilgjarnt, þótt hækkað væri prestlaunasjóðsgjaldið úr kr. 1.50 jafnvel upp í kr. 3.00. Það veit hver maður, að kr. 3.00 eru nú ekki þyngri á metunum en kr. 1.50 var 1909, þá er þetta gjald var fyrst lögleitt. Jeg álit, að hver gjaldandi verði nú betur úti með því að greiða kr. 3.00 heldur en kr. 1.50 þá. Því að það dylst engum, að notagildi hverrar krónu er svo margfalt minna nú heldur en það var árið 1909.

Jeg býst nú ekki við, að það hafi nokkra þýðingu, að tala um frv. sjálft eða gjaldið, eins og það er í því ákveðið. Því nefndin virðist sammála um breytingu á 1. gr., þótt þeir hinsvegar sjeu hvergi nærri sammála um það, hverja breytingu skuli á henni gera, þar sem meirihlutinn vill alveg fella hana, en minnihlutinn breyta 3 kr. í 2 kr. Það er því ekki í annað hús að venda fyrir þá, er frv. vilja samþ., en að samþ. brtt. minnihl. Annars get jeg sagt það fyrir mitt leyti, að jeg hefði talið langeðlilegast, að gjaldið hefði verið hækkað um kr. 1.00, og orðið kr. 2.50. Þá hefði þingið verið í samræmi við sjálft sig. Árið 1921 hækkaði það kirkjugjaldið úr 75 au. upp í kr. 1.25, eða um 50 au. Þess vegna hefði þetta kr. 1.50 gjald átt að hækka um kr. 1.00. Finst mjer, að best hefði farið á því, að skoðun þingsins þá hefði haldist óbreytt í þessu efni. Og það því fremur sem jeg veit ekki til þess, að hækkunin, sem þá var gerð á kirkjugjaldinu, hafi valdið nokkurri óánægju. Vitanlega stendur nokkuð öðruvísi á með kirkjugjaldið en prestslaunasjóðsgjaldið að því leyti, að flestir söfnuðir verða, hvort sem er, að sjá fyrir þörfum kirkju sinnar. Þó eru til þær kirkjur, sem ekki eru safnaðarkirkjur, heldur bændakirkjur og ljenskirkjur. Og þar þarf vitanlega aldrei að borga meira en lögákveðið er. En í slíkum tilfellum hefir heldur ekkert bólað á óánægju með hækkun kirkjugjaldsins, af því að menn hafa talið það eðlilegt og jafnvel sjálfsagt.

En úr því að farið var að hreyfa þessu máli á annað borð, þá hefði jeg viljað gera aðra breytingu, er telja verður, að sje sanngjörn — þá sem sje, að undanþegnir þessu gjaldi væru fábjánar og hálfvitar, sem engin not hafa prests nje kirkju, sem og þeir, sem komnir eru á fullorðinsár. Nú er svo ákveðið, að þeir, sem eru yngri en 15 ára, skuli undanþegnir gjaldinu. Það er þó vitanlegt, að unglingar þurfa ekki síður á presti að halda en gamalmenni, svo ástæðan til undanþágu þeirrar getur ekki legið í því, heldur í hinu, að á þeim árum vinna menn ekki fyrir kaupi. En einmitt hið sama má segja um gamalmennin. Þau ætti því einnig að undanþiggja þessu gjaldi. Og það því fremur sem þeirri reglu er fylgt í öðrum efnum, t. d. eru aldraðir menn undanþegnir ellistyrktarsjóðsgjaldi, hreppsvegagjaldi og ef til vill fleiri gjöldum. Það virðist því harla óeðlilegt, að gamalt fólk, jafnvel menn, sem hafa legið rúmfastir árum saman, skuli eiga að greiða þetta gjald.

En eins og jeg tók fram áðan liggur ekki annað fyrir en að samþ. brtt. minnihl., fyrir þá, er einhverja hækkun vilja. Og komist frv. í gegnum þessa umr., er hægt að koma fram með brtt. við 3. umr., í þá átt, sem jeg hefi hjer bent á. Og yrði hún jafnframt samþykt, tel jeg, að breytingin yrði mjög til bóta.