13.03.1925
Efri deild: 29. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í C-deild Alþingistíðinda. (2229)
22. mál, sóknargjöld
Forsætisráðherra (JM):
Jeg get ekki fundið ástæðu fyrir því, sem hv. frsm. meirihl. (SE) var að tala um, að þetta mál þyrfti strangra ræðuhalda; það hefir ekki verið svo flutt, hvorki af hálfu minnihl. nje sparnaðarnefndar, að þess hafi þurft með. Þetta er eigi þannig vaxið mál, smámál, að það þarf hvorki langar nje strangar ræður um það, einkum eftir breytingartillögu hv. minnihl. nefndarinnar, er aðeins er í rauninni um það að ræða, hvort heimila skuli að innheimta þetta gjald með gengisviðauka eða eigi.
Hvort háttv. minnihl. fjhn. hefir komið fram með brtt. sínar til þess að þóknast stjórninni, veit jeg ekki. Jeg hefi ekki talað neitt um mál þetta við háttv. nefnd, hvorki við meiri- eða minnihl. En jeg skil þetta vel hjá háttv. meirihl. Það er svo oft talað um nefskatta, þegar á að hræða menn frá að breyta þeim eða auka við þá. Jeg bjóst alls eigi við svona löngum umr. um þetta mál, sem er og verður smámál. Að vísu tel jeg rjett og sanngjarnt að hækka gjaldið, og mundi það þó auka ofurlítið tekjur ríkissjóðs.
Út af því, sem hv. frsm. meirihl. (SE) tók fram, að eigi sje hægt að jafna þessu gjaldi við tolla á nauðsynlegustu lífsnauðsynjum, þá er þetta rjett og ekki rjett, því að nokkurn minsta mæli af hinum nauðsynlegustu vörum verða yfirleitt allir að nota, ríkir og fátækir. Því vil jeg afdráttarlaust mótmæla, að þessi skattur eða hækkun hans geti orðið til þess að gera prestana óvinsælli. Jeg get alls ekki hugsað mjer það, vegna þess, að það hefir enga þýðingu fyrir þá, hvort þetta gjald er hátt eða lágt. Það hefir enga þýðingu fyrir presta þjóðkirkjunnar. Gjaldið rennur í prestlaunasjóðinn, en fer alls eigi beint til prestanna, og hefir því engin áhrif á tekjur þeirra. Það verður því rangt, sem háttv. 1. landsk. (SE) og þm. A.-Húnv. (GÓ) hafa sagt um þetta. Hitt er það, ef skatturinn yrði hækkaður, kæmi það ríkissjóði til góða.
Jeg vil eigi draga það inn í þessar umr., hvaða gagn er að því, að hafa milliþinganefndir, eins og t. d. sparnaðarnefndina. Það verður tækifæri til að ræða það mál síðar. Satt að segja held jeg, að mönnum sje eigi ljóst, hvernig koma eigi sparnaði í ríkisrekstrinum í framkvæmd. Það er ógnarauðvelt að tala um sparnað og hversu nauðsynlegt sje að spara þetta og þetta, en þegar að því kemur, að hengja skuli bjölluna á köttinn, þá má ekkert gera, þá má við engu hrófla, alt er talið ófært, sem farið er fram á, að sparað verði. Þetta er alþekt reynsla, t. d. fjekk fyrverandi stjórn að reyna þetta í fullum mæli, er hún bar fram sínar sparnaðartillögur. Þá kvað ávalt eins og ætíð þetta við: Ekki þetta, heldur eitthvað annað o. s. frv. Það get jeg og sagt hv. deild, að þeir menn, er tóku sæti í sparnaðarnefndinni, voru til þess mjög ófúsir, því að þeir gerðu sjer ekki mikla von um árangur, sjerstaklega gat formaður nefndarinnar þess við mig. En því hefir, að mínu viti, ekki verið haldið fram af neinum, að nefndarmennirnir væri ekki mjög vel fallnir til þess að sitja í slíkri nefnd.