05.05.1925
Efri deild: 68. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

1. mál, fjárlög 1926

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg býst ekki við því, að jeg þurfi mikið að tala um till. um lækkun á fjárveitingu til sendimanns á Spáni, efir það að háttv. 1. landsk. (SE) hefir tekið svo röggsamlega í strenginn. Jeg er honum alveg sammála um það, að það eigi ekki endilega að taka lægsta boði, en hitt er sjálfsagt, að gera það að öðru jöfnu. En jeg mun annars bera veitingu þessa starfs undir bankana. Jeg tel sjálfsagt, að þeir fái að segja álit sitt, þar sem þeir leggja fram fje til starfsins. Háttv. 1. landsk. (SE) getur því verið rólegur, því að hann fær áreiðanlega að segja álit sitt í þessu efni.

Svo var þetta undirboð eða uppboð, sem háttv. 5. landsk. (JJ) var að tala um, að halda ætti á þessari stöðu. Jeg verð að segja það, að til mín hafa þessi undirboð ekki komið. Það er þá líklega svo, að einhver hefir ætlað að spila með hv. þingmann (JJ) með því að láta hann hlaupa með þetta, eða þetta er bara ein af venjulegum Gróusögum háttv. þingmanns, sem hann hefir svo gaman af að fara með. Það er að sjálfsögðu ekki hægt að fá góðan mann til þessa starfs, neina með því að borga honum sæmilega, því uppihald er þarna dýrt, og auk þess verður að gera ráð fyrir talsvert miklum og dýrum ferðalögum, en kostnaðurinn við það á að felast í upphæðinni, að því leyti sem ríkissjóði ber að greiða hann.

Þá talaði háttv. 1. landsk. (SE) enn um símasamninginn og gerði mikið úr því, að þingið kastaði frá sjer miklu valdi með þeirri tillögu, sem samþykt var við 2. umr. með nær öllum atkvæðum, að jeg held. Hann virðist þá ekki hafa verið búinn að koma auga á þetta, enda gekk öll hv. fjvn. inn á það og taldi það sjálfsagt. (JJ: Þetta er viðbótartill.). Ekki minnir mig það. Þetta er alveg ný orðun á seinni liðnum. (SE: Það er vel hægt að samþykkja þessa tillögu samt). Hún fer þó í öfuga átt við hina tillöguna. enda væri hv. þm. (SE) annars að berjast til einskis, ef alveg stæði á sama, hvað samþykt væri. Ef till. er samþykt í þessu formi, þá er sagt, að stjórninni sje veitt heimild til þess að leita samninga. En þeirrar heimildar þarf stjórnin ekki. Jeg veit til þess, að stjórn Dana lítur svo á, að hún þurfi enga heimild til samninganna, en hún er, eins og kunnugt er, einn aðili í þessu máli. Og mjer finst málið horfa þannig við, að þingið hafi enga möguleika til þess að komast að betri kjörum en stjórnin. Þingið getur ekki farið til Danmerkur til að semja. Annars hefi jeg ekkert á móti þessari tillögu, ef ekki væri hætt við því, að við mistum, í bili að minsta kosti, samband við umheiminn. Ef upp úr samningum slitnar, þá verður að setja upp stóra loftskeytastöð og semja við annað land um að hafa samskonar stöð, er sje við því búin að taka skeyti hjeðan og senda skeyti hingað. Má vera, að til þess þurfi að reisa nýja loftskeytastöð, því að engin slík stöð mun vera til í Danmörku eða Noregi, og líklega ekki á Englandi. Mjer virðist því best að láta tillöguna standa eins og hún var samþykt við 2. umr. En hitt er sjálfsagt, ef tími er til og aðrir aðiljar hafa ekki á móti því, að bera samningana undir þingið. Það er vitanlega ekki til annars en að firra stjórnina ábyrgð. Hitt bið jeg menn að gera sjer ljóst, að af þessari tillögu getur það leitt, að landið verði sambandslaust við umheiminn vegna þess, að stjórnin geti ekki náð til þingsins í tíma, til þess að bera samningana undir, álit þess og. samþykki.