25.03.1925
Efri deild: 38. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í C-deild Alþingistíðinda. (2256)
17. mál, kvennaskólinn í Reykjavík
Guðmundur Ólafsson:
Jeg hafði, satt að segja, ætlast til, að frsm. beggja nefndarhlutanna tækju til máls á undan mjer, en þó skal jeg snúa mjer að því, að ræða brtt. mínar, á þskj. 88, þótt háttv. frsm. minnihl. nefndarinnar sje ekki búinn að halda sína ræðu. Það, sem jeg fer fram á, er, að ríkið taki einnig að sjer kvennaskólann á Blönduósi og geri hann að öllu hliðstæðan við kvennaskólann í Rvík. Jeg hefi þó sett, í þessum brtt. mínum, laun kennaranna við Blönduósskólann talsvert lægri en við kvennaskólann í Rvík, og miðaði jeg það við, hversu ódýrara er að lifa á Blönduósi en í Rvík. Jeg skal taka það fram nú þegar, svo að ekki gleymist, að mjer skjátlaðist í því, að koma ekki með brtt. við 3. gr. frv., þar ætti orðalagið að breytast þannig, að þar stæði: skólarnir o. s. frv., en ekki skólinn, eins og frv. er orðað. Það, að mjer sást yfir þetta, stafar að sumu leyti frá því, að jeg sá ekki beina ástæðu til að hafa breytingartillögur mínar svo ítarlegar, að þar væru reglugerðarákvæði um alla hluti. En jeg álit, að ef skólinn yrði ríkisskóli, mætti að sjálfsögðu breyta þessu síðar, í meðferð málsins hjer á þinginu. En mjer fanst það órjettlátt, að ríkið tæki að sjer kvennaskólann í Rvík, nema það taki þá. einnig að sjer kvennaskólann á Blönduósi. Þeir eiga að hafa jafnrjetti. Þó að Blönduósskólinn sje 2–3 árum yngri en skólinn í Rvík, skiftir það ekki miklu máli. (IHB: Blönduósskólinn er 8 árum yngri). Jeg mun síðar tala betur um aldur þessara skóla við háttv. 6. landsk. Jeg veit ekki betur en að báðir skólarnir sjeu í góðu áliti, og nægilega eru þeir gamlir, til þess að vera vel þektir meðal almennings og af hinu háa Alþingi.
Meirihl. háttv. mentmn. vill fella bæði brtt. mínar við frv. og frv. sjálft, og er því andvígur báðum þessum skólum í því, að þeir verði ríkisskólar. Þó er háttv. meirihl. ósamþykkur sín á milli um það, hversvegna beri að fella frv., ásamt brtt. mínum. Hv. 1. landsk. (SE) ber fyrir sig fjárhagsástæður; telur þessa skóla mundu verða ríkissjóði dýra úr hófi fram; en hv. 5. landsk. (JJ) lítur einnig á fjárhagshlið málsins, en telur hjer þó vera um meira stefnumál að ræða í skólamálum. Hann er andvígur ríkisskólum, nema þá hreinum sjerskólum, t. d. húsmæðraskólum. Jeg vil á engan hátt gera lítið úr röksemdum þessara háttv. þm., en jeg álít þó, að ef meira sje til skólanna kostað, verði þeir þeim mun betri. Jeg get vel hugsað mjer, að það kunni ef til vill að hafa haft áhrif á afstöðu háttv. 1. landsk. (SE) til þessa frv., hversu sumir ríkisskólar hafa á seinni árum vaxið þingi og stjórn yfir höfuð, eins og t. d. mentaskólinn, sem er orðinn nær óviðráðanlegt bákn. En þessu þarf ekki að kvíða um skóla þá, sem eru í sveitunum, og Blönduósskólinn verður að teljast til þeirra skóla.
En viðvíkjandi afstöðu háttv. 5. landsk. (JJ), að vilja ekki vera með því, að þessir skólar verði ríkisskólar, vegna þess, að þeir eigi að vera einkastofnanir, nema ef til vill húsmæðraskólar, þá vil jeg benda honum á það, að Blönduósskólinn er nú að hálfu leyti húsmæðraskóli, og jeg tel eigi ólíklegt, að sýslunefndirnar þar norður frá mundu vera fúsar á að gera einhverjar frekari breytingar á skólanum í þá átt, ef málinu væri þá betur borgið. í Blönduósskólanum hafa flestar námsmeyjar á 2 síðustu árum notið þessháttar kenslu, að minsta kosti hálft skólaárið, og því sje jeg ekki ástæðu til þess, að gera Blönduósskólanum lægra undir höfði en kvennaskólanum í Rvík.
Af nál. háttv. minnihl. fæ jeg ekki sjeð, að hann vilji fella brtt. mínar um Blönduósskólann, og mjer virðist sem háttv. minnihl. eigi allerfitt með að beita sjer mjög gegn Blönduósskólanum; þótt hann vilji draga fram hlut skóla síns í Rvík, mun hann þó vilja unna Blönduósskólanum jafnrjettis, þar sem kvennaskólana má vel skoða sem enn frekari staðfesting eða innsigli þess, að konur hafi hlotið jafnrjetti við karla að lögum. Hitt þykir mjer eigi undarlegt, þótt háttv. minnihl. hjeldi fram kvennaskólanum í Rvík. En jeg sje ekki, að hann hafi í nál. sínu lagt neitt á móti Blönduósskólanum; enda ætti það eigi við, því flest það, sem hann hefir tekið fram um sinn skóla í Rvík, á eins vel við skólann á Blönduósi. Háttv. 6. landsk. (IHB) segir í nál. sínu, að kvennaskólinn í Rvík sje landsskóli, þar sem hann sje sóttur af öllu landinu; sama má alveg eins segja um Blönduósskólann. Hann er jafnvel nokkuð sóttur hjeðan úr Rvík.
Jeg vænti svo, að hv. deild sýni þessum brtt. mínum fulla sanngirni og lofi þeim að ganga fram. Vona jeg, að háttv. þm. fari ekki að gera upp á milli skólanna fyrir það, þó annar þeirra sje þegar orðinn fimtugur, en hinn vanti eitt ár til þess að hafa líka náð fimtugsaldri.