06.04.1925
Efri deild: 48. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í C-deild Alþingistíðinda. (2282)
17. mál, kvennaskólinn í Reykjavík
Einar Árnason:
Það var hv. 6. landsk. (IHB), sem veitti mjer ofanígjöf fyrir það, að halda klukkutímaræðu um mál, sem jeg hefði ekki vit á. Að vísu talaði jeg nú ekki nema í 25 mínútur, en hv. 6. landsk. (IHB) hefir fundist svona langt að hlusta, vegna þess, að honum hefir verið sjálfum svo brátt að taka til máls. Sami hv. þm. (IHB) sagði ennfremur, að jeg hefði verið með upplestur frá 2. umr. málsins, lítt hugsaðar tillögur og hreppapólitík, og að við hv. 3. landsk. (HSn) værum að flytja hjer mál, er við bærum ekki skyn á. Jeg skal alveg ganga fram hjá þessum ásökunum. Þykist jeg hafa leitast við áður, er jeg talaði, að styggja ekki neinn með orðum mínum. Álít jeg, að hv. 6. landsk. (IHB) hafi ekki þurft að fara eins geist og raun var á, því að jeg hefi ekki móðgað hann að neinu leyti.
Það, sem mjer skildist, að háttv. 6. landsk. (IHB) hefði á móti brtt. minni á þskj. 244, er formið, og að hún væri óframbærileg þessvegna. Það getur vel verið, að brtt. falli ekki í kram hv. 6. landsk. (IHB). En brtt. er bæði að efni og formi rjett hugsuð, enda ekki samin í neinu ógáti, heldur að yfirlögðu ráði. Hv. 6. landsk. (IHB) má fella hana. Jeg skal ekki taka það illa upp.
Þá sagði hv. 6. landsk. (IHB), að það væri ekki ljóst á brtt., hvort jeg vildi taka ofan eða neðan af skólanum. Það er ekki von, að slíkt komi fram í brtt., það verður að koma fram í reglugerð, en brtt. er ekki nein reglugerð fyrir skólann. Þetta ætti hv. 6. landsk. (IHB) að vita. En eigi jeg að skera úr um það, af hverjum endanum eigi að taka, þá mun jeg, eftir að hafa heyrt ræðu hv. 6. landsk. (IHB), vilja taka af neðri endanum. Annars bjóst jeg við því, að ríkið mundi setja nánari reglugerð, ef það tæki að sjer skólann, svo að ekki þyrfti hjer að tala um neina endastýfingu.
Þá talaði hv. 6. landsk. (IHB) um það, að 4 ára nám væri nauðsynlegt og ekki of langur tími. Þetta getur verið alveg rjett, og mætti þá alveg eins segja 6 ár. Fólk er aldrei oflært. En hjer ber á fleira að líta, t. d., hve miklum tíma og peningum eytt er til námsins, og hvað svo fæst í aðra hönd. Mjer hefir skilist svo sem hjer sje um gagnfræðamentun að ræða, er konum geti orðið stuðningur að í lífinu, og það er ástæðulaust að eyða meiri tíma til þess náms í kvennaskólanum en í venjulegum gagnfræðaskólum.
Hv. 6. landsk. (IHB) sagði, að auðvelt væri að setja sveitastúlkur í efri bekki skólans. Það má vel vera rjett, ef þær eru vel undirbúnar. En þá skilst mjer, að neðri bekkirnir verði nokkurskonar framhald barnaskólans í Reykjavík. En jeg er algerlega á móti því, að ríkið taki að sjer framhaldsbarnaskóla fyrir Reykjavík.
Hv. 6. landsk. (IHB) talaði um það, hve skaðlegt væri fyrir þroska nemenda að hætta námi á tímabili (IHB: Og líka dýrt!) Um það eru skiftar skoðanir, og skal jeg ekki deila um það við þennan hv. þm., sem þykist sitja uppi með alla visku í þessu máli. En jeg skal láta hann vita það, að jeg kem fram með mína skoðun í þessu máli og öðrum hjer í deildinni, hvort sem þessum hv. þm. líkar betur eða ver. Jeg hjelt því fram, að börn væru of mikið kúlduð inni við langt skólanám, og að unglingar mistu oft heilsu sína við það að sitja við nám frá 7–20 ára aldurs, og jeg sný ekki aftur með það.
Þá mintist hv. 6. landsk. (IHB) á brtt. á þskj. 250, um hjúkrun o. fl. Jeg lagði nú ekki mikla áherslu á þá brtt. Og þó að skrift sje lögboðin í fræðslulögunum, eins og hv. þm. var að tala um, þá kemur það ekkert þessu máli við, og er ekkert annað en fjarstæða, að hafa slíkt ákvæði í þessu frv. Það er líka lögboðið í fræðslulögunum, að börn sjeu læs. Eftir sama hugsanagangi ætti þá að kenna lestur í kvennaskólanum. Þá talaði sami hv. þm. (IHB) um teikningu og sagði, að teikninám gerði menn rjettsýnni. En skyldi það nú vera svo, að menn í seinni tíð hafi orðið rjettsýnni af því að læra teikningu? Jeg get ekki sagt um það af eigin reynslu, því að jeg hefi ekki lært teikningu, en þó veit jeg, að til eru bæði beinar línur og bognar, og mjer finst, að rjettsýnin sje stundum nokkuð bogin nú í seinni tíð, ekkert síður en áður það varð tíska, að læra teikningu.
Hv. 6. landsk. (IHB) sagði, að ef aldurstakmark væri miðað við 16 ár, þá gæti fyrsti bekkur ekki orðið milliliður milli kvennaskóla og barnaskóla. En jeg tel slíkan millilið óþarfan, og að ríkissjóður eigi að minsta kosti ekki að viðhalda honum. Ef foreldrar ungra stúlkna hjer í Reykjavík telja nauðsynlegt að hafa slíkan millilið, þá er það þeirra, eða viðkomandi bæjarfjelags, að greiða kostnaðinn.
Hv. 6. landsk. (IHB) sagði, að það hefði verið tekið fram, að skólinn mundi ekki batna neitt við þessa fyrirhuguðu breytingu, vegna þess, hvað hann væri góður nú. Jeg segi fyrir mig, að jeg hefi ekkert um það sagt, hvað góður skólinn er. Á það legg jeg engan dóm. En satt er það, að jeg hefi enga trú á því, að hann muni batna víð það eitt, að verða ríkisskóli.
Þá var það seinast hjá hv. 6. landsk. (IHB), að við næstu kosningar myndu þeir fá að kenna á því, sem nú væru á móti þessu, og benti á það, að konur hefðu nú kosningarrjett. Jeg býst nú varla við því, að þessu hafi verið slegið fram til þess að hræða menn (IHB: Enganveginn!), en mjer datt í hug út af því, hvort hv. 6. landsk. (IHB) mundi kunnugt um það, hvað margir dansa nauðugir með frv. hjer í þessari hv. deild. (IHB: Ó-nei!).
Hæstv. forsrh. (JM) furðaði sig á því, hvert kapp væri lagt á það, að fella frv. þetta. Hann má nú vitanlega fyrir mjer skoða það sem kapp, að menn greinir á um þetta mál. Um mig er það að segja, að mjer var það áhugamál, að koma fram með þær breytingar, sem gætu orðið frv. til bóta, ef það á annað borð á fyrir því að liggja að ganga fram.