06.04.1925
Efri deild: 48. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2285)
17. mál, kvennaskólinn í Reykjavík
Forsætisráðherra (JM):
Jeg ætla að svara hv. 5. landsk. (JJ) fáum orðum. Það er næstum of langt sótt fyrir hv. 5. landsk. að álykta svo, að ef konur þurfi á sjermentun að halda, t. d. á venjulegum kvennaskólum, þurfi þær líka sjerstaka háskóla. Þetta nær engri átt, og er engin ástæða til að álykta þannig. Það er t. d. ekki hægt að segja, að af því að bændur sæki bændaskóla, þurfi ríkið að stofna bændaháskóla. Hitt væri gott og æskilegt, ef þetta væri hægt, en fjárhagur vor leyfir þetta því miður ekki. Jeg hafði aðeins sagt, að konur þyrftu að fá sjermentun í sínum sjerstöku fræðum, sem væri talin hæfileg undirbúningsmentun fyrir hina venjulegu stöðu þeirra í þjóðfjelaginu, en hitt hefir mjer aldrei dottið í hug, að þær konur, sem vildu, ættu ekki að eiga kost á að fara á samskóla til frekari mentunar, þar á meðal í háskóla. En þær gera ekki mikið að því hjer. Flestar láta þær sjer nægja fræðslu, er samsvarar gagnfræðaeða alþýðuskólamentun, auk þeirrar fræðslu, sem er og verður að vera sjerstakleg fyrir konur, eins og enn til hagar í þjóðfjelagi veru.
Um kostnaðinn við kvennaskólann, er hann væri orðinn ríkisskóli, mætti hafa samanburð við kennaraskólann. Hann er lítið dýrari en kvennaskólinn. (JJ: Nemendafjöldinn, hvernig er hann?) Það gerir ekki svo mikið til. Kennaraskólinn mundi ekki verða miklum mun dýrari, þótt nokkuð fjölgaði nemendum. En launin eru eitthvað ríflegri. Kennaraskólinn kostar eitthvað um 33–34 þús. í fjárl., og er þá ekki ýkjamikill munur skólanna, sem liggur aðallega í hærri launum við kennaraskólann.
Út af ummælunum um leigu á kvennaskólahúsinu skal jeg taka það fram, að jeg er fús að styðja það, að frv. verði tekið af dagskrá í svip, ef hv. 5. landsk. þá vill fremur samþ. það síðar, er nánari skýrsla um það er komin. En þess ber að gæta, að meðan óvíst er um framgang þessa frumvarps, er erfitt að ná föstum, haganlegum samningi.
Gagnvart þeirri grýlu hv. meirihl. nefndarinnar, að kostnaðurinn við kvennaskólann yrði miklu meiri, er hann væri orðinn ríkisskóli, hefi jeg áður sýnt og sannað, að munurinn í þessari grein getur ekki verið mikill. Nú fær skólinn á hinum árlegu fjárlögum það fje, sem hann nauðsynlega þarf með, alveg eins og hann væri ríkisskóli. En það er bert, hve mikla þýðingu það hefði fyrir skólann, ef þetta væri ákveðið með almennum lögum, eins og hv. 6. landsk. (IHB) þegar hefir tekið fram. Það er framtíð skólans, sem þetta frv. snýst um. Það er ekki undarlegt, þó að hv. 5. landsk. (JJ) sje á móti þessu máli, því að hann vill enga kvennaskóla hafa nema húsmæðraskóla.
Hv. 1. landsk. (SE) sagði, að sjálfsagt væri að veita skólanum það, sem hann þyrfti til þess að geta haldið áfram. Jeg sje engan mun á því, hvort skólinn er ríkisskóli eða ekki, annað en það, að þá er skólinn tryggari.