07.03.1925
Neðri deild: 28. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í C-deild Alþingistíðinda. (2296)
77. mál, bann á næturvinnu við fermingu skipa og báta í Reykjavík og Hafnarfirði
Flm. (Jón Baldvinsson):
Hjer ber nú ekki eins mikið á milli og háttv. síðasti ræðumaður gaf í skyn. Við erum sammála um, að æskilegt væri að breyta til í þá átt, sem frv. bendir, en munurinn er sá, að hann færði þær ástæður aðallega fram, sem mæla á móti því, að það sje hægt. Hann leit svo á sem hætta sú, er heilsu manna væri búin af þessari vinnu, væri orðum aukin og tók sjómanninn sem dæmi. En það er úrvalið af mönnum, sem er á sjónum, og er menn taka að gerast slitnir og þreyttir, fara þeir á land, til þess að hafa ofan af fyrir sjer með þessari vinnu. En þá eru margir orðnir illa undir næturvinnu búnir.
Hann sagði einnig, að tíðast væri unnið í flokkum og skifst á. En þetta er ekki rjett. Algengast er, að sömu mennirnir vinni alla nóttina, og dregur það margan til, að kaupið er hærra, þótt sá hinn sami í raun og veru vilji, að þessu sje breytt og dagvinna komi í stað næturvinnu.
Þá kvað háttv. síðasti ræðumaður lendingarstaði ekki næga til þess að haga mætti vinnu á þennan hátt, án þess, að tafir hlytust af.
Þar til er því að svara, að hjer er höfnin stærri en áður hefir verið, og í Hafnarfirði er verið að búa til lendingarstað, eða bryggju. Þessi lög myndu ekki öðlast gildi fyr en á næsta hausti, og er þess þá að vænta, að skortur lendingarstaða yrði ekki til baga.
Önnur mótmæli komu ekki fram gegn frv. Hitt voru aðeins hugleiðingar um, að næturvinna væri neyðarúrræði. Jeg held, að af frv. þessu leiddi engan skaða beint, og óbeinn skaði, sem verða kynni, ynnist upp af því gagni, sem þetta yrði verkamönnum. (BJ: Það eru verkamenn, sem skaðast sjálfir!).