11.03.1925
Neðri deild: 30. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í C-deild Alþingistíðinda. (2299)
87. mál, einkasala á saltfiski
Flm. (Jón Baldvinsson):
Jeg hefi flutt þetta frv. áður hjer í þessari hv. deild, svo að það er ekki með öllu ókunnugt hv. þdm. En þó skal jeg fylgja því úr garði með nokkrum orðum.
Það hittist varla sá maður, sem nokkuð þekkir til á annað borð, að hann játi ekki, að það sjeu meiri og minni mistök með saltfiskverslunina, til stórtjóns fyrir landið. Það hefir kveðið svo ramt að þessu, að útvegsmenn og fisksalar sjálfir hafa talað um, að úr þessu þyrfti að bæta, og það á þann eina hátt, að ríkið tæki að sjer að sjá um söluna erlendis. Sendimaður ríkisins á Spáni, hr. Gunnar Egilson, hefir líka lýst göllunum á núverandi sölufyrirkomulagi, og af skýrslu hans til þingsins í fyrra má sjá, að hann telur rjett, að þingið og ríkið hafi hönd í bagga með sölunni, eða hún verði a. m. k. sett á eina hönd, svo að komið verði í veg fyrir það ólag, sem áður hefir brunnið við, að kaupmenn byðu verðið niður hver fyrir öðrum, til stórtjóns fyrir alla.
Hvernig sem menn velta fyrir sjer þessu máli, þá er ómögulegt að sjá annað, ef ríkið tekur að sjer saltfiskssöluna, en að við losnum við þann ókost, að einstakir menn spilli sölunni, þegar salan er komin á eina hönd, en höldum öllum kostum hinnar frjálsu sölu. Ríkið getur valið úr þá menn, sem hafa besta þekkingu og reynslu til þess að hafa söluna með höndum. Jeg sje heldur ekki, að nokkur maður þurfi að sjá í þessu neina áhættu fyrir ríkið. Það mætti koma þessu svo fyrir, að ríkið hætti engu, hefði aðeins umboðssölu, og afhenti eigendum verðið jafnóðum og það kæmi inn, eftir meðalverði, því að ósanngjarnt virðist, þegar fiskverð hækkar skyndilega, að það verði gróði eins til tveggja manna, en tap allra hinna. En svo er það nú og verður, þangað til ríkið hefir náð versluninni í sínar hendur.
Vera má, að sumum finnist, að útgerðarmenn gætu sjálfir myndað einskonar lögverndaðan söluhring. Það yrði á engan hátt betra, en sýnilegt er, að þá yrði ekki eins vel sjeð fyrir hagsmunum hinna smáu fiskframleiðenda. Ef slíkur hringur kæmi upp, þá yrði hann einkum fyrir hina fáu, stóru. Eina traust smáútgerðarmanna er ríkið. Það sýndi sig á. stríðsárunum. Þá nutu þeir ágóðans hlutfallslega til jafns við hina stóru; þannig á það altaf að vera, en svo er þó ekki nú.
Að svo mæltu vil jeg óska þess, að hv. deild láti athuga frv. í nefnd, sem þá yrði að sjálfsögðu sjútvn. Jeg vil ekki fullyrða, að orðalag frv. megi ekki bæta, og er jeg fús að ganga inn á slíkar breytingar, aðeins að þær eyðileggi ekki það, sem er tilætlun með frv.: að saltfisksalan verði í höndum ríkisins og einstakir menn nái ekki að spilla henni með óheppilegum framboðum, eins og þráfaldlega hefir átt sjer stað áður, öllum til stórtjóns.