11.03.1925
Neðri deild: 30. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í C-deild Alþingistíðinda. (2303)

87. mál, einkasala á saltfiski

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg vil benda hv. flm. (JBald) á, að samkvæmt frv. á stjórnin ekki sjálf að annast fisksöluna, heldur velja til þess menn. Það kemur því ekki þessu máli við, þótt jeg sje ekki vanur fiskkaupum eða fisksölu.

Út af orðum hv. flm. er mjer ljúft að taka það fram, að jeg er alveg reiðubúinn til að taka mjer hvíld frá stjórnarstörfum, hvenær sem meirihluti hv. þm. óskar þess. En meðan hv. þm. (JBald) er einn í flokki, þá vildi jeg ráða honum til að tala ekki svona digurbarkalega.

Hann kveður, að flokksbræður sínir, í löndum, þar sem þeir fara með stjórn, þori ekki að bera fram á þingi stefnumál sín, vegna þess, að þau verði feld. En hann á hinn bóginn leyfir sjer að bera fram frumvarp, sem felt var í einu hljóði fyrir einu ári, á þingi, sem var skipað sömu mönnum og þetta er nú.

Það má vel vera, að jeg hafi áðan talað svo hógværlega, að orð mín hafi ekki haft tilætluð áhrif. En hinsvegar má mikið vera, ef hv. flm. hefir ekki sjálfur með ræðum sínum stuðlað að því, að málið verði drepið skilyrðislaust frá 2. umr.