13.03.1925
Neðri deild: 32. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (2320)
48. mál, friðun rjúpna
Pjetur Ottesen:
Hv. frsm. minnihl. (ÁJ) hefir æskt friðar í þessu máli, og þá líklega fyrst og fremst sjálfum sjer til handa. En þá mætti ætla, að hann, þessi mikli postuli friðarins, ljeti ekki eins ófriðlega í garð rjúpunnar eins og raun hefir á orðið.
Háttv. frsm. minnihl., 2. þm. N.-M., talaði um það af miklum fjálgleik, að hjörtu manna mundu fara að slá ört, er minst væri á þetta mál, því að umræðurnar á síðasta þingi hefðu orðið harla fjörugar. Það var satt, að skoðanir manna voru nokkuð skiftar um málið, en þá niðurstöðu, sem þingið komst að í þessu máli, má tvímælalaust telja að ýmsu leyti heppilega, en það sem einungis skortir á, að málinu sje heppilega skipað, og það fyrir allra hluta sakir, er það, að þessi breyting, sem jeg hefi lagt til að gerð sje á lögunum, verði samþykt. Með því er, eins og jeg tók fram við 1. umr. þessa máls: í fyrsta lagi svo í hóf stilt með veiðitímann, að rjúpnastofninn er verndaður fyrir því, að verða eyðilagður af skotum, í öðru lagi siglt fram hjá því skeri, að rjúpnaveiðarnar komi svo mjög í bág við jarðabætur og önnur nauðsynleg haustverk, sem nú, og í þriðja lagi er það miklu betur trygt en ella, að rjúpan reynist góð verslunarvara. Það er því langt frá, að þetta mál eigi skilið, að um það sje rætt með hálfgerðri lítilsvirðingu og sem hjegómamál, því að það felur í sjer frekari verndun, hagkvæmari verkaskiftingu og trygging fyrir betri markaðsvöru. Þetta eru alt mikilsverð atriði.
Annars skilst mjer af nál., að báðir hlutar hv. nefndar hafi í rauninni fallist á ástæður mínar, að minsta kosti er ekkert fært fram gegn þeim í nál. minnihl. Það er þá helst í ræðu hv. frsm. minnihl. (ÁJ), þar sem hann var að tala um, að rjúpnaveiðar í október færu ekki í bág við hauststörfin í sveitum, því að menn væru ekki haldnir slíkri drápgirni, að þeir feldu niður nauðsynleg störf þessvegna. Hann virðist þannig ganga út frá því, að það sje af drápgirni aðeins, að menn stundi rjúpnaveiðar. Menn stunda þessar veiðar eins og aðrar veiðar fyrst og fremst af þörfinni, þörfinni á því að afla gjaldeyris, framleiða, og þarf sennilega ekki að fara lengra út í þær sakir eða lýsa þeirri þörf nánar í landi, sem verður að kaupa allar nauðsynjar frá útlöndum fyrir framleiðsluvörur.
Með þessari breytingu er, eins og jeg hefi svo oft tekið fram, girt fyrir það, að menn sjeu að fást við rjúpnaveiðar á þeim tíma, sem veiðarnar hljóta að koma meira og minna í bág við jarðabætur og önnur haustverk, og mikill hluti veiðinnar er svo lök útflutningsvara, að markaðinum stafar mikil hætta af. En það er sem sje viðurkent, að unga rjúpan er ekki orðin fullþroska, og þar af leiðandi ekki góð verslunarvara um miðjan október, og er auk þess ekki búin að fella fjaðrir, og því verri vara heldur en eldri rjúpan, en af þessu hlýtur að leiða verðfall allrar vörunnar. Og þegar þar við bætist, að þessi hluti rjúpunnar þolir líka ver flutning og geymslu, sem altaf hlýtur að verða nokkur, þá skil jeg ekki annað en að hv. frsm. minnihl. nefndarinnar (ÁJ) og aðrir hv. þdm. geti vel fallist á, að þetta mál sje þess vert, að siglt verði fram hjá þessu skeri.
Þá sagði hv. frsm. minnihl. (ÁJ), að í haust hefði verð verið hæst fyrst á rjúpunni, en hefði svo fallið. Það var auðvitað af því, að of snemma var byrjað skjóta og mikill hluti rjúpunnar var í því ástandi, sem jeg nú hefi lýst.
Það voru og aðrar ástæður, sem fram komu hjá hv. frsm. minnihl. (ÁJ), þær, að Norðlendingar gætu þá ekki notað sjer þessa tekjugrein, vegna þess, að þeir kæmu ekki rjúpunni á markaðinn, nema með ferðunum í október. Væri þetta svo mikils virði sem hv. þm. (ÁJ) sagði, væri þetta miklu frambærilegri ástæða en þær, sem færðar hafa verið áður; jeg get að vísu máske ekki talað af nægum kunnugleika um þetta mál, en mjer virðist þó, að það sje vert að athuga einmitt þessa. mótbáru dálítið. Eftir ákvæðum laganna má nú ekki byrja að veiða fyr en eftir miðjan október, eða einmitt á þeim tíma, sem hv. frsm. minnihl. (ÁJ) segir, að skipin, sein eigi að taka kjötið, sjeu á ferðinni. Mjer virðist því, eftir öllum atvikum að dæma, að það verði ekki nema örlítið af rjúpu, sem hægt sje að koma með þessum ferðum. Þvi er sjaldnast svo farið, að svo mikil uppgrip sjeu af rjúpu, að ekki þurfi að ganga á veiðar í fleiri daga, til þess að fá svo mikla veiði, að það borgi sig að flytja hana í kaupstaðinn, sjerstaklega þegar um langa og erfiða flutninga er að ræða. Mjer virðist því, að þessu athuguðu, að tæplega geti verið um nokkurn verulegan útflutning að ræða, ef aðeins er að tala um flutning með þessum skipum. Frá því sjónarmiði gerir það í rauninni hvorki til nje frá, hvort byrjað er að skjóta í miðjum október eða fyrst í nóvember, eins og gert er ráð fyrir í frv. Mjer skilst, að rjúpnaveiðar á Norðurlandi hljóti að byggjast á útflutningi í nóvember og desember. Eftir því, sem jeg hefi litið til í áætlun Eimskipafjelagsins fyrir þetta ár, sje jeg ekki annað en að Goðafoss eigi að koma við á nokkrum höfnum á Norðurlandi, á leið til útlanda, snemma í desember, og eins og kunnugt er, þá eru bergensku skipin á ferð um þetta leyti við Norðurland, án þess jeg viti beint, á hvaða hafnir þau komi þar. En það eru sjálfsagt möguleikar á því að koma rjúpunum á milli hafna, í veg fyrir millilandaskipin. Mjer finst því, að þessi ástæða móti frv. sje svo lítils virði, að ekki verði með henni kveðinn upp neinn dómsdagur yfir þessari breytingu. Auk þess er það ekkert aðalatriði í þessu máli, að svo og svo mikið sje veitt, heldur hitt, að það fáist góður og tryggur markaður fyrir það, sem veitt er, og verður naumast um það deilt, að þessi breyting sje gerð til þess að tryggja markaðinn að miklu, fram yfir það, sem nú er. Niðurstaðan verður því eins og fyr, þegar jeg flutti þetta frv., að þessi breyting eykur trygginguna í tveim mikilsverðum atriðum: að veiðin kemur ekki í bág við haustannirnar, og veitir tryggingu fyrir markaðshæfri vöru, en það er skilyrði fyrir góðum og ábyggilegum markaði, að alls öryggis sje gætt í þessu efni. Það er sjerstaklega nauðsynlegt, að tillit sje tekið til þess, að Englendingar eru mjög vöruvandir, en þar er einmitt bestur markaðurinn fyrir rjúpurnar.