13.03.1925
Neðri deild: 32. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í C-deild Alþingistíðinda. (2331)

39. mál, vegalög Suðurlandsvegur

Frsm. (Sveinn Ólafsson):

Jeg þykist ekki þurfa að hafa langa framsögu fyrir nefndarinnar hönd í þessu máli. Álit og tillögur hennar eru á þskj. 121, og nægir mjer í flestum atriðum að vísa til þess. Eins og skýrt er frá í nál., leitaði nefndin álits vegamálastjóra, bæði um þetta og öll önnur frv., sem fyrir liggja um breytingar á vegalögunum, og var hann eins hugar um þau öll og rjeð frá að aðhyllast þau, en að svipaðri niðurstöðu var nefndin áður komin.

Viðvíkjandi þessu frv. á þskj. 39, sem hjer er til umr., má að sjálfsögðu líta svo á eftir svari vegamálastjóra og efni vegalaganna, að óþörf sje breyting sú, er felst í 1. lið. Einföld skýring laganna nægir til að fullnægja ósk hv. flm. um þetta. Vegurinn hlýtur og verður að liggja um það svæði, Öræfi og Breiðamerkursand, þótt ekki sje berinn orðum nefnt, með því að enga aðra leið er hægt að fara.

Öðru máli er að gegna um síðari liðinn. Þar er um hliðarveg eða aukaveg að ræða, sem í eðli sínu er innanhjeraðsvegur, sem sje leiðin frá Hólum að Höfn í Hornafirði. Eftir nýlegri fjárveitingu úr ríkissjóði er ákvörðun tekin um að endurbæta þennan sýsluveg með helmings framlagi frá ríkinu, og virðist þá eigi ástæða til að leggja viðhald hans eftirleiðis á ríkissjóðinn, enda liggur hann ekki í umgerð þeirri eða hringbraut um landið, sem vegalögin einkum miða við. Vegamálastjóri hefir eindregið lagt á móti þessum vegarviðauka við þjóðvegi, og nefndin felst alveg á ástæður hans.

Frekar þykist jeg ekki þurfa að ræða þetta mál að sinni.